Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Lovísa Arnardóttir skrifar 6. ágúst 2026 08:07 Líða fer að því að elstu börnin í leikskólum borgarinnar fari í grunnskóla. Þá eru tekin inn ný börn. Flest eru þau átján mánaða en það yngsta er fimmtán mánaða. Vísir/Bjarni Yngsta barnið sem fékk boð um vistun í leikskóla í Reykjavík í haust er fætt í júní 2025 og verður því um fimmtán mánaða þegar það hefur leikskólavist í haust.
Öll börn sem verða átján mánaða 1. september, það er öll börn sem eru fædd í febrúar 2025 og eldri, fengu boð um leikskóla í stóru úthlutuninni sem hófst í mars og lauk í apríl. Í maí voru 5.344 börn í borgarreknum leikskólum og 1.391 börn í sjálfstætt starfandi leikskólum. Samkvæmt svari borgarinnar um málið fengu foreldrar 1.658 barna í borgarreknum leikskólum og 191 barna í sjálfstætt starfandi leikskólum boð í stóru úthlutuninni fyrir haustið 2026 eða alls 1.849 börn. „Mjög misjafnt var hversu langt niður í aldur unnt var að bjóða pláss í einstaka leikskóla en öll börn 18 mánaða og eldri fengu boð um vistun í leikskóla í stóru úthlutuninni, þó kom það fyrir að þau fengju ekki sitt fyrsta val,“ segir í svari borgarinnar. Þar kemur einnig fram að þegar stóru úthlutuninni var lokið hafi verið unnið áfram með þann biðlista sem hafði myndast eftir það og börnum boðin pláss sem eru fædd í mars og apríl 2025 í leikskólum þar sem enn voru laus pláss. „Einnig var farið neðar í aldri í leikskóla með skilgreindar ungbarnadeildir, ef ekki voru eldri börn á biðlista þess skóla, og var yngsta barn sem fékk boð fætt í júní 2025.“ Innritun allt árið Að lokum kemur fram að innritun standi yfir allt árið þannig að öll pláss sem losna nýtist. „Almennt er aldur barna 18 mánaða miðað við 1. september en farið er neðar í aldri að því gefnu að ekki sé eldra barn á biðlista hjá þeim leikskóla.“ Hvað varðar mönnun í leikskólum borgarinnar kemur fram í svari borgarinnar að kannað sé með mönnun að hausti og því liggi ekki fyrir upplýsingar að svo stöddu um hvort það vanti starfsfólk eða hvar.
Skóla- og menntamál Leikskólar Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira