Innlent

Einn fékk fimm ár, annar á­tján mánuði en þriðji sýknaður

Árni Sæberg skrifar
Mohamad gengur út úr dómsal þegar málið var þingfest í júní. Hann hlaut átján mánaða fangelsisvist.
Mohamad gengur út úr dómsal þegar málið var þingfest í júní. Hann hlaut átján mánaða fangelsisvist. Vísir/Vilhelm

Kareem M. M. Abufarhah hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars síðastliðnum. Mohamed Sayidali Ahmed var dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellda líkamsárás en þriðji maðurinn sem var ákærður, Qossay Ali Yahya Alsadi, var sýknaður.

Þetta segir Silja Rán Arnarsdóttir, sem sótti málið fyrir hönd ákæruvaldsins, í samtali við Vísi.

Í ákæru var Kareem sagður hafa ekið Land Rover-bifreið, á mikilli ferð á brotaþola, þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og féll í jörðina þar sem ákærði Qossay hafi barið brotaþola ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi og í kjölfarið hafi ákærði Mohamad stungið brotaþola í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni.

Dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×