Innlent

Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Fjöldi fólks tók þátt í kröfugöngu á vegum félagsins Ísland-Palestína.
Fjöldi fólks tók þátt í kröfugöngu á vegum félagsins Ísland-Palestína. Þórdís Reynisdóttir

Félagið Ísland-Palestína stóð fyrir kröfugöngu frá Hlemmi og samstöðufundi á Austurvelli í kjölfarið í tilefni alþjóðlegs aðgerðardags fyrir Palestínu. Félagið krefst þess að íslensk stjórnvöld láti verkin tala. 

„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu. Ekkert hefur hins vegar komið fram um hvaða aðgerða Ísland hyggst grípa til til að fylgja yfirlýsingunni eftir,“ segir í tilkynningu frá félaginu Ísland-Palestína.

Gangan endaði með samstöðufundi á Austurvell. Þórdís Reynisdóttir

Alþjóðlegt bandalag fyrir Palestínu boðaði í dag til alþjóðlegs aðgerðadags en hundruð samtaka víða um heim taki þann dag þátt í samræmdum aðgerðum fyrir frjálsri Palestínu.

Þátttakendur mættu margir með spjöld og borða. Þórdís Reynisdóttir

Ísland-Palestína segir að þrátt fyrir sögulegar hæðir stuðnings almennings við réttindi Palestínumanna hafi aðgerðarleysi stjórnmálafólks og blekking um vopnahlé gert það að verkum að hörmungarástand viðhaldist á Gaza og Vesturbakkanum án afskipta alþjóðasamfélagsins. Félagið kalli eftir aðgerðum en ekki fleiri yfirlýsingum. 

„Árásir og eyðilegging Ísraels einskorðast ekki við Gasa. Ofbeldi og landrán landræningja á hernumdum svæðum Palestínu eykst stöðugt. Á meðan ríkisstjórnir heimsins senda frá sér óljósar yfirlýsingar fela börn á Vesturbakkanum sig fyrir áhlaupum landræningja í hnipri á bak við rafmagnsturna. Þetta ofbeldi nýtur fulls stuðnings Ísraelsríkis. Afskiptaleysi og stuðningur vestrænna ríkja við Ísrael skapar skilyrði fyrir þjóðarmorðinu, landráninu og hernáminu í heild sinni.“

Páll Óskar var meðal ræðumanna og flutti tónlist að ræðuhöldum loknum. Þórdís Reynisdóttir

Fundarstjóri var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingkona og framkvæmdastjóri Courage International. Ræðumenn voru Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, Montaser Dwikat frá Nablus á Vesturbakkanum og Svava Sigbertsdóttir, einkaþjálfari og stofnandi Viking Method. Páll Óskar flutti einnig tónlist í lok fundar.

Þrjú ár voru í vikunni frá því að Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Um 1200 voru myrt í árás Hamas og 251 tekin höndum, af þeim komust aðeins 168 lífs af. Um 74 þúsund Palestínumenn, þar af 21 þúsund barn, hafa verið drepin í árásum Ísraela sem hófust í kjölfar árásar Hamas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×