Innlent

Lík­legt að Ís­lendingar finni ó­beint fyrir El niño

Kjartan Kjartansson skrifar
Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, sem vill láta meta áhættu af El niño á Íslandi.
Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, sem vill láta meta áhættu af El niño á Íslandi. Vísir/Anton Brink

Óvenjusterkur El niño-atburður í Kyrrahafi er líklegur til þess að hafa óbeinar afleiðingar á Íslandi. Loftslagsráðherra vill láta greina möguleg áhrif veðurfyrirbrigðisins á aðfangakeðjur og afhendaröryggi Íslands.

Gert er ráð fyrir einstaklega miklum veðuröfgum fram á næsta ár vegna fordæmalauss El niño í Kyrrahafi sem leggst ofan á hnattræna hlýnun sem menn valda með losun sinni á gróðurhúsalofttegundum. Frávik í sjávarhita í Kyrrahafi sem er notað sem mælikvarði á El niño-atburði hefur aldrei mælst eins mikið og í þessum mánuði.

Náttúruhamfarir á borð við flóð, þurrka og gróðurelda eru taldar líklegar til þess að hafa veruleg efnahagsleg áhrif, til dæmis í formi uppskerubresta og truflana á framleiðslu og flutningsleiðir.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, lagði fram minnisblað um möguleg áhrif El niño á Ísland á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í því segir að beinar afleiðingar verði litlar en líklegt sé að óbeinna afleiðinga verði vart hér, bæði á samfélag og efnahagslíf.

„En umfang þeirra og birtingarmyndir eru enn háð[ar] verulegri óvissu,“ segir í minnisblaðinu.

Vill meta áhættu fyrir verðlag og afhendingu vara

Ísland sé berskjaldað gagnvart áföllum í aðfangakeðjum og gæti auk þess fundið fyrir röskunum á alþjóðlegum fjármálamarkaði.

Erfitt sé þó að afla upplýsinga um upprunalönd innfluttra aðfanga á Íslandi og því sé erfiðara að greina hættu sem steðji að henni vegna El niño hér en víða annars staðar.

Því lagði ráðherrann til við ríkisstjórn að kallað yrði eftir fyrirliggjandi upplýsingum um aðfangakeðjur til Ísland sem kynnu að vera sérstaklega útsettar fyrir raski af völdum El niño. Hann vill einnig kanna hvort raunhæft sé að meta áhættu fyrir verðlag og afhendingaröryggi á grundvelli sviðsmynda um áhrif veðurfyrirbrigðisins.

„Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið munu því á næstunni óska eftir slíkum upplýsingum frá Veðurstofu Íslands og Skattinum og verða stofnanirnar beðnar um að meta stöðu þekkingar á áhættu fyrir aðfangakeðjur í samstarfi við viðeigandi sérfræðinga,“ segir í minnisblaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×