Opið hús í Höfða í dag Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 10. október 2026 13:11 Opið hús er í Höfða í dag. vísir/vilhelm Landsmönnum gefst kostur á að skoða hið sögumerka hús Höfða í Reykjavík í dag en þar er búið að koma fyrir söguhorni. Tilefnið er friðarvika á vegum Reykjavíkurborgar.
Opna húsið í Höfða stendur til klukkan fjögur í dag og er hluti af friðarviku á vegum Reykjavíkurborgar. Fjörutíu ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða og af því tilefni verður dagskrá þar í dag. Guðbrandur Benediktsson er safnstjóri Borgarsögusafns. „Við erum að opna sýningu eða söguhorn inni í Höfða sem var vettvangur mikilla viðburða hér fyrir 40 árum þegar að Ronald Reagan og Gorbatsjov hittust til að ræða afvopnun, fundur sem hafði mikil áhrif á íslenskt samfélag, öll fjölmiðlaumfjöllunin og það. Og auðvitað líka svona fyrsta skrefið í þíðu á milli stórveldanna getum við sagt. Og það leiddi síðan af sér áframhaldandi samræður. En þetta var kannski, ísinn var kannski brotinn hérna á Íslandi.“ Leiðtogafundurinn er í forgrunni á sýningunni en einnig er leitað leiða til að varpa ljósi á tíðarandann á þessum tíma. „Það var náttúrulega mikið sem gerðist árið '86. Reykjavík varð 200 ára og eignaðist Viðey. Síðan var lottó og Eurovision þannig að Íslendingar fundu svolítið til sín af allri þessari athygli sem þeir fengu samhliða fundinum því að hér var náttúrulega bara heimspressan mætt á staðinn með augun og eyrun opin.“ Tendrun friðarsúlu Yoko Ono fór fram í Viðey í gær. „Yoko hefur nú gjarnan komið en hún er nú ekki á landinu núna, orðin nokkuð gömul, en friðarsúlan er auðvitað orðin svona ákveðið tákn í Reykjavík og minnir okkur líka bara á þá ósk að um frið, um heim allan.“ Guðbrandur hvetur fólk til að kíkja í Höfða í dag. „Ég hvet fólk til að kynna sér þá dagskrá sem er í boði í friðarvikunni og taka þátt í henni. Þetta er náttúrulega mikilvægur boðskapur og vert að hafa hann í huga, sérstaklega á tímamótum sem þessum.“
Reykjavík Leiðtogafundurinn í Höfða Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira