Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. júlí 2026 16:33 Fjölgun tilkynninga um tilraunir til netbrota gefi til kynna að almenningur sé sífellt betur vakandi fyrir tilraunum af þessu tagi og láti vita af þeim. Getty Tilkynningum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um tilraunir til netbrota hefur fjölgað það sem af er ári en 1.745 ábendingar hafa borist á fyrri helmingi þessa árs. Fjárhagslegt tjón netbrota sem tilkynnt hafa verið það sem af er ári nemur 427 milljónum króna.
Til samanburðar bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 552 ábendingar allt árið 2025 og 153 árið þar á undan, 2024. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur þetta fram en þar segir að fjölgun tilkynninga um tilraunir til netbrota sé ekki í hlutfallslegu samræmi við fjölgun netbrotanna sjálfra. Fjölgunin gefi til kynna að almenningur sé sífellt betur vakandi fyrir tilraunum af þessu tagi og láti vita af þeim. Þróunin sé jákvæð og gefi til kynna að fræðsla og aukin vitund almennings geri fleiri vel í stakk búna til að þekkja og tilkynna netbrotatilraunir. Brotamenn haldi þó áfram að þróa aðferðir sínar og beini í auknum mæli sjónum að flóknari og markvissari brotum sem geti valdið miklu fjárhagslegu tjóni. Langflestar tilkynningar vegna tilrauna til netbrota séu fjarskiptasvik (e. telecom fraud) og tölvupóstveiðar (e. phishing). Fjárfestingasvik (e. investment fraud), ástarsvik (e. romance scam) og fölsk fyrirmæli (e. BEC/CEO fraud) séu þróaðri brot sem geti valdið miklum miska. Þau síðastnefndu valdi að jafnaði mestu fjárhagslegu tjóni. Fjárhagslegt tjón netbrota sem tilkynnt hafa verið það sem af er ári til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nemi 427 milljónum króna. Tilkynnt tjón hafi numið 586 milljónum króna allt árið 2025 og 191 milljón króna árið 2024. „Þrátt fyrir að brotum fjölgi ekki er tjónið í einstökum málum þó enn verulegt.“ Lögreglan hvetji því fólk til að vera áfram á varðbergi, ræða opinskátt um netbrot og tilkynna tilraunir sem það verður fyrir. Aukin þekking á aðferðum brotamanna auki líkurnar á að hægt sé að koma í veg fyrir brot og fjárhagslegt tjón. „Telji fólk sig hafa orðið fyrir netbroti og fjárhagstjóni er því bent á að hafa strax samband við sinn viðskiptabanka, fá þar ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu. Það má til að mynda gera í gegnum Ísland.is,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Lögreglumál Tækni Netglæpir Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira