Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. október 2026 23:18 Vance varaforseti var spurður út í það hvernig aftaka í beinni útsendingu samræmdist kristinni trú hans. Getty JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, dregur í efa að bandaríska varnarmálaráðuneytið muni standa við áform sín um að sýna aftöku Nidal Hasan í beinni útsendingu.
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið við blaðamenn í dag og sagði alls óvíst að bein útsending yrði frá aftökunni. „Ég veit ekki hvort þetta muni í raun gerast,“ sagði Vance. Hann bætti við að yrði aftökunni streymt í beinni myndi hann sjálfur ekki horfa á hana. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að stjórnvöld hygðust gera almenningi kleift að fylgjast með aftökunni í beinni útsendingu. Yfirlýsingin hefur verið fordæmd um allan heim. Vance tók fram að ágreiningurinn um framkvæmd aftökunnar mætti ekki skyggja á glæpi Hasans. Hann lýsti árásinni sem versta hryðjuverki á bandarískri grundu utan árásanna 11. september 2001 og benti á að Hasan hefði verið geðlæknir innan hersins, sem hefði átt að aðstoða hermenn sem glímdu við andleg veikindi og önnur vandamál. Þess í stað hefði hann skotið þá þegar þeir voru hvað berskjaldaðastir. Þrettán létust í árásinni Hasan hóf skothríð í fjölmennri heilbrigðisbyggingu á Fort Hood-herstöðinni í Texas 5. nóvember 2009. Þar biðu hermenn meðal annars eftir læknisskoðunum og bólusetningum áður en þeir yrðu sendir til starfa erlendis. Þrettán létust og 32 særðust. Um var að ræða mannskæðustu árás á bandaríska herstöð utan stríðsátaka í sögu landsins. Hasan, sem þá var majór í bandaríska hernum, viðurkenndi síðar fyrir dómi að hafa framið árásina. Við herrétt árið 2013 sagðist hann hafa talið sig vera að verja múslima og Talíbana í Afganistan gegn bandaríska hernum. „Bandaríkin eru betri en þetta“ Áformin um beina útsendingu aftökunnar hafa sætt harðri gagnrýni bæði úr röðum repúblikana og demókrata. John Curtis, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, hefur varað við því að opinberar aftökur geti breyst í blóðugt sjónarspil og ýtt undir það að fólk líti á aftökur sem skemmtun. Austin Scott, þingmaður repúblikana frá Georgíu, sagðist styðja dauðarefsingu yfir Hasan en ekki beina útsendingu. „Þetta er það sem jíhadistar gera. Bandaríkin eru betri en þetta,“ sagði Scott. Chris Murphy, öldungadeildarþingmaður demókrata, hefur sömuleiðis kallað hugmyndina viðbjóðslega og líkt henni við aftökur Íslamska ríkisins. Kaþólska biskuparáðið í Bandaríkjunum hefur fordæmt áformin. Vance snerist sjálfur til kaþólskrar trúar fyrir nokkrum árum og var sérstaklega spurður hvernig útsending aftökunnar samræmdist trú hans. Sameinuðu þjóðirnar fordæma áformin Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur sagt beina útsendingu frá aftökunni jafngilda opinberri aftöku og geta brotið gegn fortakslausu banni við pyndingum. Opinberar aftökur eru nú afar sjaldgæfar. Samkvæmt Amnesty International fóru opinberar aftökur aðeins fram í tveimur ríkjum á síðasta ári sem vitað er af, Íran og Afganistan. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sjálfur lýst stuðningi við að Hasan verði tekinn af lífi af aftökusveit. Embættismaður í Hvíta húsinu sagði þó að afstaða forsetans til beinu útsendingarinnar væri ekki endanlega ákveðin.
Bandaríkin Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Sjá meira