Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar 7. apríl 2026 11:15 Staðan í heilbrigðiskerfinu hefur sjaldan verið jafn slæm, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarnar vikur. Yfirfullur spítali. Aldraðir sem sitja fastir á spítalanum ófærir um að fara heim en hvergi til samastaður við hæfi. Svo virðist sem kerfið hafi verið þróað áfram á slökkvistarfinu einu og sér. Nú er vatnið í slökkvitækinu að klárast og enn ekki komin heildar mynd á það hvernig við ætlum að ráða við vaxandi áskoranir. En hvaða áskoranir erum við að tala um? Fráflæðisvandi Landspítalans er aðeins einn angi af mörgum í þessum stóra vef stofnana og úrræða sem heilbrigðiskerfið er. Lengi hefur verið bent á að þjóðin sé að eldast. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem eru 67 ára og eldri á sama tíma og fæðingartíðni lækkar. Þetta þýðir fjölgun einstaklinga með fjölþættan heilbrigðisvanda sem þurfa þjónustu við hæfi. Þjónustu sem veitt er af fagfólki innan heilbrigðiskerfisins. Á sama tíma fækkar einstaklingum á vinnumarkaði. Færri sem greiða skatta af tekjum sínum og færri sem vinna þau störf sem samfélagið þarf til þess að við getum veitt góða þjónustu, hvort sem það er í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu eða annarsstaðar. Hvernig leysum við vandann? Er lausnin að byggja fleiri hjúkrunarrými? Mun það leysa allan vanda? Svarið er ekki alveg svona einfalt. Jú, við þurfum fleiri hjúkrunarrými. En fyrir hvern eru hjúkrunarheimili? Þau eru fyrir fólk sem ekki getur búið heima vegna veikinda. Fólk sem þarf sólarhrings umönnun. Fólk með flókinn heilbrigðisvanda. Fólk sem þarf aðstoð fagfólks í heilbrigðiskerfinu. Við ráðum lítið um aldurssamsetning þjóðarinnar en þurfum að hafa hana til hliðsjónar við áætlanagerð. Við þurfum að horfa lengra til framtíðar en næsta kjörtímabils. Við getum ekki staðið með slökkvitækið í höndunum og úðað á handónýtt kerfi og vonað að upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verði frábært. Forvarnir eru lykillinn að farsælli öldrun Hvernig tökumst við á við þær áskoranir sem fylgja fjölgun aldraðra? Markmiðið þarf að vera að flestir aldraðir þurfi ekki hjúkrunarrými. Með forvörnum og endurhæfingu er hægt að koma í veg fyrir eða seinka hrumleika. Hver mánuður sem einstaklingur getur búið sjálfstætt með stuðningi við hæfi sparar bæði samfélaginu gríðarlegan kostnað á sama tíma og það eykur lífsgæði einstaklingsins. Hver króna sem sett er í forvarnir og stuðning við einstaklinga sem búa heima er þess virði, fyrir alla. Það þarf að fjölga úrræðum eins og dagdvölum og leggja meira fé í þann málaflokk svo hægt sé að veita hjúkrun og aðra heilbrigðisþjónustu innan dagdvalanna. Með því að leysa einfaldari mál í dagdvölum má draga úr komum á heilsugæslur og bráðamóttöku og jafnvel fækka sjúkrahúsinnlögnum. Réttur sjúklingur á réttum stað Öll úrræði innan heilbrigðiskerfisins eru fjármögnuð með skattfé almennings. Það er mikilvægt að því fé sé varið af ábyrgð og að þjónustan sé skipulögð þannig að hún sé bæði hagkvæm og viðeigandi fyrir hvern einstakling. Kostnaður við þjónustu er mjög mismunandi eftir þjónustustigi: dagur á bráðamóttöku kostar um 150.000 krónur, dagur á hjúkrunarheimili um 40.000 krónur og dagdvöl um 10.000 krónur. Að tryggja réttan sjúkling á réttum stað er lykilforsenda bæði gæða og hagkvæmni í heilbrigðisþjónustu. Þegar þjónusta er veitt á of háu þjónustustigi eykst kostnaður án þess að bæta árangur, sem leiðir til óhagkvæmrar nýtingar fjármuna og það vill enginn. Við erum öll saman í liði Ljóst er að engin ein lausn leysir þann vanda sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir, sem meðal annars birtist í fráflæðisvanda Landspítala. Lausnirnar liggja þó fyrir og eru fjölmargar. Nú þarf að bretta upp ermar og hrinda þeim í framkvæmd. Hluti af lausninni er klárlega að efla nýliðun innan heilbrigðisstétta. Gera störfin aðlaðandi með góðum starfsaðstæðum og samkeppnishæfum launum. Þannig fáum við hæft fólk sem brennur fyrir það að vinna saman að bættu heilbrigðiskerfi í stað þess að brenna út. Það þarf nýtt sjúkrahús, fleiri hjúkrunarrými, fleiri dagdvalir, fleiri þjónustukjarna með heilsueflandi aðbúnaði fyrir eldra fólk sem býr heima, eflingu heimahjúkrunar og stuðnings heima, aukið aðgengi að heilsugæslu og samvinnu allra aðila. Heilbrigðisyfirvöld þurfa að hafa góða heildarsýn. Stofnanir þurfa að vinna saman sem ein heild. Við megum ekki gleyma að við erum öll í sama liði. Við erum öll með sama markmiðið, að kerfið virki fyrir þau sem þurfa á því að halda. Það er allra hagur. Burtu með sílóin. Hættum að flækja málin. Hættum að slökkva elda og byrjum að byggja upp heildrænt kerfi til framtíðar. Höfundur er varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfar sem þjónustustjóri á Sléttunni Lífsgæðakjarna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Landspítalinn Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar