Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Hann varð öllum á óvörum ein af stærstu stjörnum heimsmeistaramótsins í fótbolta þrátt fyrir að vera nær algjörlega óþekktur fyrir utan heimalandið fyrir keppnina. Hann var án liðs á mótinu en nú hefur hann samið. Fótbolti 25.7.2026 17:31
Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Luis de la Fuente, þjálfari heimsmeistara Spánverja, var ekki hrifinn af framkomu Argentínumanna eftir úrslitaleik HM á sunnudaginn og segir hana óþolandi og óásættanlega. Fótbolti 25.7.2026 09:02
Æfir íslenskuna daglega í klefanum Spánverjinn Nacho Heras fagnaði heimsmeistaratitli á sunnudag og sigri í Bestu deildinni á mánudag. Hann óraði ekki fyrir því þegar hann kom hingað til lands árið 2017 að hann yrði enn hér í dag. Íslenski boltinn 25.7.2026 08:02
Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Lionel Messi var ekki valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins, sem hneykslaði marga knattspyrnuspekinga, enda fór hann fyrir argentínska landsliðinu á mótinu og var efstur í afar mörgum mikilvægum tölfræðiþáttum hjá liðinu. Fótbolti 23. júlí 2026 07:31
Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fabian Ruiz og Gavi, leikmenn spænska landsliðsins, fengu höfðinglegar móttökur þegar þeir komu til baka í heimabæinn sinn Los Palacios y Villafranca. Þeir fengu þyngd sína í tómötum við heimkomuna. Fótbolti 23. júlí 2026 07:03
Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Veggmynd sem listamaðurinn Tvboy málaði í Barselóna til heiðurs Ferran Torres eftir sigur Spánar á heimsmeistaramótinu var skemmd með veggjakroti. Fótbolti 23. júlí 2026 06:34
Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Leandro Paredes réðst á Gavi eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Þrátt fyrir það finnst Gavi að Paredes eigi ekki að fá refsingu fyrir hegðun sína eftir leikinn. Fótbolti 22. júlí 2026 18:31
Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Hógværð og lítillæti hafa alltaf verið stór hluti af vinsældum þess sem margir telja vera besta fótboltamann sögunnar. Fótbolti 22. júlí 2026 17:31
Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Hann hugsaði vel um liðsfélaga sína á heimsmeistaramótinu en Michael Olise er sakaður af fyrrverandi kærustu um að hugsa ekki um barnið sitt. Fótbolti 22. júlí 2026 10:32
Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Vinicius Jr. hefur vakið mikla athygli eftir heimsmeistaramótið fyrir nýtt útlit sitt. Svo virðist sem hann hafi farið í lýtaaðgerð og stækkað hökuna sína. Fótbolti 22. júlí 2026 07:01
Stoltur af argentíska liðinu Enzo Fernandez segir að argentíska landsliðið hafi verið landi sínu til sóma á heimsmeistaramótinu. Fernandez fékk rautt spjald í úrslitaleiknum og hefur hegðun argentíska liðsins í úrslitaleiknum verið gagnrýnd. Fótbolti 21. júlí 2026 17:17
Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Spænska þjóðin var heldur betur með á nótunum í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta og fögnuður hennar mældist á jarðskjálftamælum. Fótbolti 21. júlí 2026 16:01
Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Rodrigo De Paul, leikmaður argentínska landsliðsins, gagnrýnir þá sem telja að Argentína hafi notið velvildar dómara á heimsmeistaramótinu í fótbolta í ár. Fótbolti 21. júlí 2026 15:31
Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Spænski heimsmeistarinn Lamine Yamal hefur greint frá því hvað fór á milli hans og Lionel Messi og tilfinningaþrunginni stundu eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins á sunnudagskvöldið. Fótbolti 21. júlí 2026 14:47
Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Argentínumaðurinn Leandro Paredes varð sér og þjóð sinni til skammar eftir tapið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins en hann hefur nú tjáð sig um handalögmálin við Gavi eftir leikinn. Fótbolti 21. júlí 2026 12:31
Svaf ekki fyrir fagnaðarlátum á Spáni Spánn varð í gærkvöld heimsmeistari karla í fótbolta í annað sinn eftir sigur á Argentínu í úrslitum í New York vestanhafs. Íslendingur á Spáni svaf lítið fyrir fagnaðarlátum í fyrrinótt. Fótbolti 21. júlí 2026 11:00
Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Breski popparinn Robbie Williams tróð upp í hálfleik úrslitaleiks HM á sunnudaginn en vakti þó mun meiri athygli vegna viðtals sem hann fór í eftir leikinn. Þar lenti hvítt korn á hljóðnemanum sem popparinn hélt á og var hann fljótur að fjarlægja það. Netverjar voru snöggir að lýsa því yfir að þarna væri um kókaín að ræða en popparinn sjálfur segir um saklausari efni að ræða. Lífið 21. júlí 2026 10:48
Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Hjartnæm stund átti sér stað eftir úrslitaleik Spánar og Argentínu þegar Nico Williams, sá sem átti stoðsendinguna í sigurmarkinu, leitaði uppi móður sína í stúkunni. Fótbolti 21. júlí 2026 08:03
Giskaði á réttan sigurvegara HM í fimmta skiptið í röð EA Games, sem framleiðir vinsæla fótboltatölvuleikinn EAFC, sem hét áður Fifa, hefur giskað á réttan heimsmeistara fimm skipti í röð. Fótbolti 21. júlí 2026 07:01
Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA virtist hafa klippt Donald Trump forseta og Gianni Infantino, forseta FIFA, út af myndum sem deilt var á samfélagsmiðlum til að fagna sigri Spánar á heimsmeistaramótinu í fótbolta en Hvíta húsið deildi seinna röð mynda þar sem forsetinn er áberandi á þeim öllum. Fótbolti 21. júlí 2026 06:32
Argentína nú þegar undir rannsókn Fifa mun líklegast setja af stað rannsókn vegna skammarlegrar hegðunar leikmanna argentíska landsliðsins eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fifa er nú þegar að rannsaka Argentínu eftir að liðið hélt á pólitískum borða eftir leik Argentínu og Englands. Fótbolti 20. júlí 2026 20:32
Horfðu á alla leiki HM í glerkassa Tveir menn geta sagt að þeir hafi átt vægast sagt skemmtilegt sumar þar sem þeir fengu borgað af Fox í Bandaríkjunum fyrir að horfa á alla leiki HM í glerkassa á Times Square. Um sex þúsund manns sóttu um að horfa á leikinn í kassanum. Fótbolti 20. júlí 2026 19:46
„Sársaukinn er gríðarlegur“ Lionel Messi er virkilega sár eftir að hafa tapað úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Hann reynir þó að horfa á mótið með bjartsýnisaugum og hugsar um allar góðu stundir mótsins. Fótbolti 20. júlí 2026 19:00
Hefur þjálfað hetjuna sína í fjórum landsliðum Það var Barcelona-leikmaður sem tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn, bara kannski ekki sá Börsungur sem flestir bjuggust við. Ferran Torres kom inn á sem varamaður í úrslitaleiknum og skoraði sigurmark Spánverja í framlengingunni. Fótbolti 20. júlí 2026 17:15