Landspítalinn

Fréttamynd

Ragnari Frey býðst hærra starfs­hlut­fall á Land­spítalanum

Framkvæmdastjóri á Landspítalanum segir að rík aðhaldskrafa stjórnvalda á spítalann hafi valdið því að fækka þurfi stöðugildum. Ákveðið hafi verið að segja frekar upp fólki sem er með minni stöðugildi og því hafi staða Ragnars Freys Ingvarssonar læknis verið lögð niður. Ragnari verði hins vegar boðið hærra starfshlutfall. Ragnar Freyr er undrandi á uppsögninni.

Innlent
Fréttamynd

Kollegar furðu lostnir og gagn­rýna upp­sögn Ragnars

Uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar læknis á Landspítalanum hefur vakið mikla athygli og harða gagnrýni á samfélagsmiðlum. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Oddur Steinarsson heimilislæknir og fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins.

Innlent
Fréttamynd

Ragnari Frey sagt upp störfum á Land­spítala

Ragnari Frey Ingvarssyni lækni hefur verið sagt upp störfum á Landspítala. Hann starfaði í um áratug sem sérfræðingur í almennum lyflækningum á sjúkrahúsinu í Fossvogi. Ragnar er einn af þekktari læknum landsins og hefur gefið út bækur og sjónvarpsþætti undir heitinu Læknirinn í eldhúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Land­spítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað?

Staðan í heilbrigðiskerfinu hefur sjaldan verið jafn slæm, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarnar vikur. Yfirfullur spítali. Aldraðir sem sitja fastir á spítalanum ófærir um að fara heim en hvergi til samastaður við hæfi. Svo virðist sem kerfið hafi verið þróað áfram á slökkvistarfinu einu og sér. Nú er vatnið í slökkvitækinu að klárast og enn ekki komin heildar mynd á það hvernig við ætlum að ráða við vaxandi áskoranir.

Skoðun
Fréttamynd

Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid

Samkvæmt eftirgrennslan Vísis var byrjað að gefa starfsfólki Landspítalans páskaegg í Covid sem var fyrir um sex árum. Hér er því varla hægt að tala um hefð en ákvörðun stjórnenda að hætta með páskaeggjagjafir lagðist hins vegar afar þungt í margan starfsmanninn.

Innlent
Fréttamynd

Ætla að fara fram á frá­vísun málsins

Héraðssaksóknari hefur ákveðið að ákæra Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni fyrir manndráp af ásetningi vegna andláts 73 ára konu sem var í hans umsjá á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Verjandi hans ætlar að fara fram á frávísun í málinu. Uppkomin börn konunnar sem er ákært vegna gagnrýna harðlega að Skúli Tómas hafi starfað við Landspítalann meðan mál hans var til rannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Engin egg í Skaftahlíðina

„Við sendum Helga Vilhjálmssyni og hans góða starfsfólki bestu kveðjur og þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf.“ Svo segir í pósti til allra starfsmanna Landspítalans sem Vísir hefur undir höndum.

Innlent
Fréttamynd

Bylting í bráðaþjónustunni?

Fyrir nokkru kom framkvæmdastjóri á Landspítalanum í fjölmiðla til að kynna nýja og það sem hann kallaði „byltingarkennda“ breytingu á bráðaþjónustu spítalans. Við bráðalæknar tókum þessum hugmyndum fagnandi í upphafi – eins og öllu því sem gæti bætt þjónustu við okkar sjúklinga og bætt starfsumhverfi okkar.

Skoðun
Fréttamynd

1,2 milljarðar á milli í bílastæðadeilu við nýjan Land­spítala

Nýr Landspítali ohf. og Reykjavíkurborg deila um hver eigi að bera kostnað af uppbyggingu bílakjallara og bílastæðahúss við nýja Landspítalann við Hringbraut. Nýr Landspítali telur borgina eiga að greiða 1.695 milljónir króna en borgin telur sig aðeins skuldbundna til að greiða 450 milljónir króna. Þar munar því 1.245 milljónum króna eða rúmum 1,2 milljörðum.

Innlent
Fréttamynd

Hokin af reynslu og vill stórt egg fyrir strákinn

Páskaeggjavertíðin er í hámarki um þessar mundir en alls eru framleidd á aðra milljón súkkulaðieggja fyrir súkkulaðiþyrsta landsmenn. Í verksmiðju Góu var framleiðsla á páskaeggjum fyrir starfsfólk Landspítalans í fullum gangi.

Innlent
Fréttamynd

Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni

Forsvarsmenn Klíníkurinnar telja það ekki hagkvæma lausn að eiga í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur legurýma. Þjónustan sé of frábrugðin starfsemi Klíníkurinnar og kalli á of mikla uppbyggingu hvað varðar aðbúnað og mannafla. Meðal annars þyrfti að gera miklar breytingar á húsnæði fyrirtækisins og þar að auki yrði um tiltölulega litla rekstrareiningu að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Ragnar brosir allan hringinn eftir sím­tal frá Góu og Omnom

Ragnar Freyr Ingvarsson, jafnan þekktur sem læknirinn í eldhúsinu, segist brosa allan hringinn í kjölfar símtals þar sem hann ræddi við „ljúfa fólkið í Góu og Omnom“ um að þau væru tilbúin að leysa stóra Páskaeggjamálið sem fréttir hafa borist af síðastliðna daga.

Innlent
Fréttamynd

Gremja innan Land­spítala vegna stóra páska­eggja­hallærisins

Ragnar Freyr Ingvarsson, sem bæði starfar sem sjálfstætt starfandi læknir sem og inni á Landspítalanum, furðar sig á forgangsröðunni en á Landspítalanum hefur verið tekin ákvörðun um að gefa starfsfólki ekki páskaegg í ár vegna niðurskurðarkröfu. Á sama tíma fær starfsfólk í heilbrigðisráðuneytinu páskaegg og ráðherra gefur ráðherrum veglegt egg.

Innlent
Fréttamynd

Stóra Hringbrautarmálið

Í dag þegar þessi orð eru skrifuð lenti ég í kunnuglegu atviki. Við útdyrnar í stigaganginum þar sem ég bý stóð manneskja með ferðatösku sem ætlaði sér að fara á Landspítalann við Hringbraut.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðaröryggishætta Nýja Land­spítalans

Þann 16. júní 2023 birtist í Viðskiptablaðinu grein með fyrirsögninni: “Vitlausasta ríkisframkvæmd Íslandssögunnar”. Þar eru raktar dæmalausar hrakfarir í framkvæmdum hjá Nýjum Landspítala ohf (NLSH ohf).

Skoðun
Fréttamynd

Staðan ekki breyst í sam­ræmi við lýsingar ráð­herra

Heilbrigðisráðherra segir búið að grípa inn í vanda Landspítalans með öllum tiltækum ráðum og færa fimmtíu sjúklinga líkt og um hafi verið beðið. Samkvæmt gögnum frá Landspítala hefur staðan hins vegar lítið breyst frá því að starfsfólk sendi frá sér neyðarkall.

Innlent
Fréttamynd

Sjúk­lingar enn á göngum bráðamóttökunnar

Sjúklingar liggja enn á göngum bráðamóttöku Landspítalans mánuði eftir að starfsfólkið lýsti ófremdarástandi þar og krafðist aðgerða. Formaður Félags bráðalækna bindur vonir við að boðaðar aðgerðir stjórnvalda hafi áhrif með vorinu en ljóst sé að bregðast hefði þurft miklu fyrr við.

Innlent
Fréttamynd

„Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnar­skyldu heil­brigðis­starfs­fólks

Sé brýn nauðsyn eða lífi eða heilsu sjúklings ógnað með yfirvofandi hætti á þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks að víkja fyrir verndarskyldu. Gunnar Ármannsson lögmaður segir að annars eigi þagnarskyldan að gilda. Skrá eigi ofbeldi eða grun um það og tilkynna fáist leyfi frá sjúklingi. Hafni sjúklingur aðstoð verði heilbrigðisstarfsfólk að meta hættu og tilkynna telji þeir brýna nauðsyn til. 

Innlent
Fréttamynd

Krónunum kastað fyrir aurinn

Fréttir af því að Landspítalinn hafi skipt gamla góða smjörvanum út fyrir erlent jurtasmjörlíki hafa vakið töluverð viðbrögð og eflaust mun meiri viðbrögð en stjórnendur spítalans hafa búist við.

Skoðun
Fréttamynd

Steina vill á­frýja: „Brotið gegn grund­vallar­réttindum um­bjóðanda míns“

Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur hefur falið Vilhjálmi Vilhjálmssyni, verjanda sínum, að óska eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar í dag. Þar var hún sakfelld fyrir manndráp af gáleysi. Vilhjálmur telur að brotið hafi verið á grundvallarréttindum Steinu til réttlátrar málsmeðferðar og það sé meðal margra atriða, sem gæti orðið til þess að Hæstiréttur veiti áfrýjunarleyfið.

Innlent
Fréttamynd

Sakfelling Steinu stað­fest

Landsréttur hefur staðfest sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðingur fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing.

Innlent
Fréttamynd

Ný bráða­mót­taka að taka á sig mynd

Framkvæmdum við Nýjan Landspítala miðar vel þessa dagana en þó er ekki gert ráð fyrir að hann verði tekinn í gagnið fyrr en árið 2030, eða fjórum árum á eftir áætlun. Á spítalanum verður stærsta bráðamóttaka Norðurlandanna.

Innlent