Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Árni Sæberg skrifar 2. september 2026 09:44 Skúli Tómas starfar öllu jafna á Landspítalanum en hann mun ekki gera það á meðan mál hans er til meðferðar. Vísir Landspítalinn hefur afþakkað vinnuframlag Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjartalæknis á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Hann sætir ákæru fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn.
Greint var frá því í gær að Landsréttur hefði síðastliðinn fimmtudag ógilt frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness og gert dómstólnum að taka mál Skúla Tómasar til efnismeðferðar. Eftir að ákærunni var vísað frá sneri Skúli Tómas aftur til starfa á Landspítalanum, þrátt fyrir að niðurstaða héraðsdóms hefði verið kærð til Landsréttar. Héraðsdómur vísaði máli hans frá á þeim grundvelli að að Skúla Tómasi hefði þegar verið refsað fyrir meint brot með því að Landlæknir svipti hann lækningaleyfi. Þannig taldi dómurinn að það myndi brjóta í bága við bann við tvöfaldri málsmeðferð að refsa honum í sakamáli. Niðurstaða Landsréttar var að svipting starfsleyfis Skúla Tómasar væri hvorki refsing né refsikennd viðurlög og málið hjá Landlækni væri því ekki sakamál í eðli sínu. Því bryti það ekki í bága við bann við tvöfaldri málsmeðferð að halda sakamáli á hendur Skúla Tómasi til streitu. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hefur vinnuframlag Skúla Tómasar verið afþakkað á meðan mál hans hlýtur efnismeðferð fyrir héraðsdómi.
Læknamistök á HSS Landspítalinn Heilbrigðismál Dómsmál Tengdar fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Landsréttur hefur ógilt frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli læknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar. Ákæra á hendur honum fyrir manndráp fær því efnismeðferð. 1. september 2026 14:24 Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir fer fram á að ákæru á hendur honum, fyrir að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi, verði vísað frá dómi. 19. maí 2026 14:12 Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Fólk hefur keppst við að ausa Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hamingjuóskum en hann greindi í gær frá því að ákæru á hendur honum fyrir manndráp hefði verið vísað frá dómi. 22. júlí 2026 11:33 Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Sjá meira
Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Landsréttur hefur ógilt frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli læknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar. Ákæra á hendur honum fyrir manndráp fær því efnismeðferð. 1. september 2026 14:24
Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir fer fram á að ákæru á hendur honum, fyrir að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi, verði vísað frá dómi. 19. maí 2026 14:12
Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Fólk hefur keppst við að ausa Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hamingjuóskum en hann greindi í gær frá því að ákæru á hendur honum fyrir manndráp hefði verið vísað frá dómi. 22. júlí 2026 11:33