Hart sótt að fjármálaráðherra Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 19. mars 2026 12:15 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra boðar aukið aðhald ríkisins. Vísir/Anton Brink Hart var sótt að fjármálaráðherra vegna stöðunnar í efnahagslífinu á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin var sökuð um aðhaldsleysi og að hafa ýtt undir verðbólgu. Fjármálaráðherra segir að aðhald í rekstri hins opinbera verði aukið.
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í gær að hækka stýrivexti um 0,25 punkta. Vextir höfðu staðið í stað frá því í nóvember en síðan þá hefur verðbólga aukist og óvissa í alþjóðamálum líka. Hart var sótt að Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra vegna stöðunnar í efnahagslífinu á Alþingi í dag. Á meðal þingmanna sem kröfðu hann svara var Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins. „Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til þess að ná niður verðbólgunni? Því hún er ekki að gera nokkurn skapaðan hlut annað en að ýta undir verðbólguna. Ég ætla bara að benda hæstvirtum fjármálaráðherra á það að aðhaldið hefur ekkert verið hjá þessari ríkisstjórn. Ekkert verið. Það var meira aðhald í tíð fyrri ríkisstjórnar, mun meira.“ Hún gagnrýndi einnig frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. „Það er allt í ólagi hjá þessari ríkisstjórn því í dag stendur til að greiða hér atkvæði um frumvarp um tengingu bóta við launavísitölu. Seðlabankastjóri hefur sagt að þetta skjóti nú skökku við. Þetta hjálpar ekki til. Seðlabankastjóri hefur sagt að þetta muni ýta undir verðbólguna.“ Daði Már sagði að í fjármálaáætlun sem kynnt verður í næstu viku sé gert ráð fyrir auknu aðhaldi ríkisins. „Varðandi aðrar aðgerðir þá er ljóst að ef við ætlum að vinna á því langvarandi vandamáli sem of há verðbólga hefur verið á Íslandi þurfum við að gera ákveðnar breytingar. Hér hafa verið umræður um mögulega að draga úr vægi verðtryggingar. Verðtryggingin er allavega óheppileg, sérstaklega eins og hún birtist í mælingum á verðlagi þar sem til dæmis verðtryggðir húsaleigusamningar eru hluti af mælingu verðlags, sem þýðir að hækkun á verðlagi leiðir til hækkunar á verðlagi.“
Alþingi Fjármál heimilisins Fjármálamarkaðir Seðlabankinn Efnahagsmál Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira