Seðlabankinn
1 2 3 4 5 6 … 46 ›
Krónan styrkist þegar ríkisbréfin komust á radarinn hjá erlendum sjóðum Eftir að hafa styrkst um meira en þrjú prósent á örfáum vikum er gengi krónunnar núna nálægt sínu hæsta gildi á móti evrunni á þessu ári. Krónan veiktist nokkuð skarpt í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, en nú hefur sú þróun snúist við samhliða því að erlendir sjóðir hafa verið að sýna íslenskum ríkisbréfum aukinn áhuga, að sögn sérfræðinga á markaði. Innherji 9.10.2024 10:07
Hagkerfið á vendipunkti og hætta á að tekjum sé ofspáð en gjöldin vanmetin Mikil vaxtabyrði ríkissjóðs, umtalsvert hærri borið saman við flestar aðrar Evrópuþjóðir, þýðir að það þarf að nást meiri afgangur á frumjöfnuði en núverandi áætlanir gera ráð fyrir eigi að takast að grynnka skuldahlutfallinu, að mati Samtaka atvinnulífsins. Hættan er að hagkerfið sé á vendipunkti, þar sem tekjum sé ofspáð en gjöldum áfram vanspáð, en Seðlabankinn telur að ljósi þróunar verðbólgu sé „brýnt“ að ekki verði vikið frá því að beita aðhaldi í ríkisfjármálum á komandi misserum. Innherji 5.10.2024 15:57
Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Allir vita að bankarnir hafa grætt mikið á þeim úrræðum sem Seðlabankinn hefur beitt gegn verðbólgunni. Hávaxtastefnan hefur verið megininntak þessara aðgerða Seðlabankans. Bankarnir hafa skilað methagnaði síðustu ár og það skilar sér síðan til stjórnenda bankanna í auknum bónusum og miklum ávinningi af kaupréttarsamningum. Skoðun 5.10.2024 12:03
Bankarnir farið „óvarlega“ þegar verðtryggingarmisvægi þeirra margfaldaðist Mikill vöxtur í verðtryggðum útlánum stóru viðskiptabankanna til heimila og fyrirtækja án þess að þeir væru með verðtryggða fjármögnun á móti þeim eignum hefur valdið því að verðtryggingarmisvægi þeirra er í hæstu hæðum en seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi þar farið „heldur óvarlega.“ Meira en eitt ár er liðið síðan allar reglur sem kváðu á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkum voru afnumdar en frá þeim tíma hefur hins vegar verið óveruleg aukning í slíkum innstæðum. Innherji 3.10.2024 16:56
Indó lækkar líka vexti Sparisjóðurinn Indó hefur ákveðið að lækka vexti sína í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabankans. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir eðlilegt að fjármálafyrirtæki lækki vexti sína þegar Seðlabankinnn gerir það, alveg eins og það er eðlilegt að hækka vexti þegar stýrivextir hækka. Viðskipti innlent 3.10.2024 15:30
Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Formaður Neytendasamtakanna fagnar þessu en segir ekki mega gleyma að íbúðalánavextir á Íslandi séu með þeim hæstu á Vesturlöndum og bankarnir séu nýbúnir að hækka þá. Neytendur 3.10.2024 12:31
Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Óverðtryggðir vextir íbúðalána lækka um allt að 0,6 prósentustig en verðtryggðir vextir standa í stað. Viðskipti innlent 3.10.2024 10:44
Betra að byrja en bíða þangað til hagkerfið er „sannarlega komið í kreppu“ Peningastefnunefnd mat áhættuna af því að byrja vaxtalækkunarferlið minni heldur en að bíða enn lengur og þurfa þá mögulega ráðast í hraðar lækkanir samhliða því að hagkerfið væri að sigla inn í „kreppu,“ að sögn seðlabankastjóra, sem hefur væntingar um að verðbólgan sé að fara koma skarpt niður og aðhaldsstigið gæti því aukist enn frekar. Falli hlutirnir með nefndinni fram að næsta fundi seint í nóvember megi búast við frekari lækkunum en nefndin var ekki sérstaklega með augun á vaxtalækkunum stóru erlendu seðlabankanna að undanförnu við ákvörðun sína þótt ljóst sé að Ísland er mjög tengt þróuninni í Bandaríkjunum. Innherji 3.10.2024 07:50
Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2.10.2024 22:01
Hætt við að ein „aumingjaleg lækkun“ láti hjól hagkerfisins snúa hraðar á ný Yfirlýsing peningastefnunefndar til að réttlæta óvænta vaxtalækkun var lítið annað en „kirsuberjatínsla“, gögn sérstaklega dregin fram til að styðja við lækkun, en lítið gert með fyrri orð og gjörðir sem gæti komið niður á trúverðugleika Seðlabankans, að mati greiningar Arion, en ljóst sé að nefndarmenn hafi ekki verið samstíga. Hagfræðingar bankans fara nokkuð hörðum orðum um þá ákvörðun að lækka vexti, sem þeir eru ekki sannfærðir um að sé tekin á réttum tímapunkti, og búið sé að skapa væntingar um frekari vaxtalækkanir sem kunni að ýta undir þenslu og verðbólguþrýsting. Innherji 2.10.2024 20:39
„Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í fyrsta skipti í fjögur ár í morgun, um 0,25 prósentur. Varaseðlabankastjóri segir að við séum þó ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna. Hagkerfið verði að hægja meira á sér eigi þróunin að halda áfram niður á við. Viðskipti innlent 2.10.2024 18:31
Tekist að hefja vaxtalækkunarferlið án þess að búa til of miklar væntingar Markaðir brugðust við með afgerandi hætti eftir nokkuð óvænta vaxtalækkun Seðlabankans í morgun en hlutabréfaverð flestra félaga hækkaði skarpt og ávöxtunarkrafa stuttra ríkisbréfa lækkaði talsvert. Flestir markaðsaðilar vænta þess að peningastefnunefndin muni fylgja lækkuninni eftir með stærra skrefi í næsta mánuði – 50 punkta lækkun eða meira – en með ákvörðuninni í morgun sýndi Seðlabankinn framsýni með því að senda merki um að hann sé ekki fastur að horfa í „baksýnisspegilinn,“ að mati fjárfestis á skuldabréfamarkaði. Innherji 2.10.2024 16:37
....og þá var eins og blessuð skepan skildi..... Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti það sem seðlabankastjóri kallaði í vor „aumingjalega stýrivaxtalækkun“ í morgun. Um leið var tekið fram að hænufet morgunsins væri ekki endilega ávísun á meiri lækkun á næstunni. Skoðun 2.10.2024 13:29
Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Seðlabankastjóri segir að ákvörðun viðskiptabankanna um að hækka verðtryggða útlánavexti hafi vegið þungt í ákvörðun hans um lækkun stýrivaxta. Peningastefnunefnd leit hins vegar alfarið fram hjá áhrifum gjaldfrjálsra skólamáltíða á verðbólguna. Viðskipti innlent 2.10.2024 10:54
Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir ákvörðun Seðlabanka um lækkun vaxta um 25 punkta vera fagnaðarefni. Hann segir þó að hann hefði viljað sjá lækkun upp á 50 punkta en segir ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið. Viðskipti innlent 2.10.2024 09:17
Ræðst í fyrstu vaxtalækkunina í fjögur ár samhliða minnkandi verðbólguþrýstingi Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta, fyrsta vaxtalækkun nefndarinnar frá árslokum 2020, samhliða því að undirliggjandi verðbólga hefur minnkað, verðbólguálág lækkað og merki um frekari kólnun í efnahagslífinu. Mikil óvissa var um hvers mætti vænta við vaxtaákvörðun nefndarinnar, fjárfestar og markaðsaðilar skiptust í tvær fylkingar hvort hún myndi hefja vaxtalækkunarferlið, en nefndin undirstrikar hins vegar að kröftug innlend eftirspurn kalli á „varkárni.“ Innherji 2.10.2024 09:16
Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, munu gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndarinnar um að lækka stýrivaxti á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 2.10.2024 08:55
Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta og fara þeir því úr því að vera 9,25 prósent í 9 prósent. Þetta er í fyrsta sinn sem nefndin lækkar stýrivexti síðan í árslok 2020. Þeir hafa staðið í 9,25 prósentum síðan í ágúst á síðasta ári. Viðskipti innlent 2.10.2024 08:31
Ekki útilokað að stýrivextir lækki Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir ekki útilokað að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir á morgun. Hann spáir þó óbreyttum vöxtum en segir styttast í lækkun þeirra. Viðskipti innlent 1.10.2024 22:12
Kjörin bötnuðu mikið þegar Landsbankinn gaf út fimm ára evrubréf Útgáfa Landsbankans á grænum skuldabréfum til fimm ára upp á 300 milljónir evra er sú lengsta á meðal útistandandi ótryggðra evrubréfa viðskiptabankanna en talsverður áhugi fjárfesta þýddi að vaxtaálagið lækkað nokkuð frá upphaflegu viðmiði þegar útboðið hófst. Aðgengi íslensku bankanna að erlendum fjármagnsmörkuðum hefur farið mjög batnandi að undanförnu og Seðlabankinn hvatt þá til að viðhalda sterkri lausafjárstöðu komi til þess að sú staða breytist. Innherji 1.10.2024 15:08
Markaðurinn klofinn hvers megi vænta nú þegar vextirnir eru á „snúningspunkti“ Flest hefur fallið með peningastefnunefnd frá síðustu ákvörðun með lækkandi verðbólgu og verðbólguvæntingum, sem hefur um leið þýtt enn hærra raunvaxtastig, og nefndin mun því velja á milli þessa að milda tóninn í yfirlýsingu sinni eða ráðast í sína fyrstu vaxtalækkun frá tímum faraldursins – sem gæti jafnvel orðið meiri en 25 punktar. Markaðsaðilar eru klofnir í afstöðu sinni til ákvörðunar nefndarinnar í vikunni, samkvæmt könnun Innherja, en þeir sem vænta óbreyttra vaxta telja að bankinn vilji sjá skýrari merki áður en hann breytir um kúrs en aðrir segja að aðhaldsstigið sé nú þegar mun meira en þurfi til að ná verðbólgu niður í markmið. Innherji 30.9.2024 11:08
Gjaldeyriskaup lífeyrissjóða skreppa saman um fjórðung Talsvert hefur hægt á kaupum lífeyrissjóðanna á erlendum gjaldeyri á undanförnum mánuðum samhliða meðal annars því að fjármagnsinnflæði í íslensk hlutabréf og ríkisskuldabréf var nánast hverfandi. Eftir að hafa veikst nokkuð í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, hefur gengi krónunnar styrkst undanfarið og er að nálgast að nýju gildið 150 á móti evrunni. Innherji 27.9.2024 15:51
Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda stýrivöxtunum óbreyttum og þeir verði því áfram 9,25 prósent. Peningastefnunefnd kynnir vaxtaákvörðun sína næstkomandi miðvikudag. Viðskipti innlent 27.9.2024 13:05
Það sem „gleymist“ að segja Það getur verið ákveðin kúnst að lesa á milli lína eða rýna í það sem er ósagt. En stundum er það furðulétt, ekki síst þegar hið ósagða blasir við okkur öllum á hverjum einasta degi. Seðlabankastjóri sagði í gær að nýlegar vaxtahækkanir viðskiptabankanna á verðtryggðum lánum væru brattar. Skoðun 27.9.2024 08:01
Spá enn einum fundinum án breytingar Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunardegi, þann 2. október næstkomandi. Deildin telur þó að vaxtalækkunarferlið hefjist innan skamms. Viðskipti innlent 26.9.2024 16:19
Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Aðalhagfræðingur Samtaka Iðnaðarins segir misskilnings gæta í ummælum Seðlabankastjóra um stöðu byggingageirans og hússnæðisskort. Seðlabankastjóri tali með skringilegum hætti um áhrif hárra vaxta á greinina, líklega í tilraun til að halda verðbólguvæntingum niðri. Viðskipti innlent 26.9.2024 12:17
Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ég hefði talið að það væri öllum ljóst að þörf væri á frekari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis um allt land. Þetta sýna auðvitað allar tölur, með sterku ákalli frá verkalýðshreyfingunni, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem sér um að greina stöðuna á húsnæðismarkaði mjög markvisst. Skoðun 26.9.2024 07:45
Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur samþykkt samruna TM og Landsbankans. Í tilkynningu á vef bankans kemur fram að Fjármálaeftirlitið telji Landsbankann hæfan til að eiga virkan eignarhlut í TM tryggingum hf. Bankinn undirritaði samning um kaup á öllu hlutafé í TM í maí 2024. Viðskipti innlent 25.9.2024 17:14
Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Seðlabankastjóri telur hækkanir viðskiptabankanna á verðtryggðum vöxtum íbúðalána brattar á skömmum tíma. Hann telur hins vegar að þær muni leiða til þess að hækkun á fasteignaverði heyri sögunni til. Hann kveður umræðu um að of lítið sé byggt, á villigötum. Útlán til byggingageirans séu mikil og nóg af eignum til sölu. Viðskipti innlent 25.9.2024 13:01
Vaxandi verðtryggingarmisvægi gæti reynst „áskorun“ fyrir fjármálakerfið Þótt fjármálakerfið standi traustum fótum, sem birtist meðal annars í því að álagspróf sýna að það myndi standast „umtalsvert“ álag, þá gæti þrálát verðbólga samtímis minnkandi umsvifum í efnahagslífinu skapað áskoranir fyrir bankana, að mati fjármálastöðugleikanefndar. Hún sér ástæðu til að vara við hratt vaxandi verðtryggingarmisvægi sem gæti valdið erfiðleikum fyrir fjármálakerfið. Innherji 25.9.2024 09:12