Efnahagsmál
1 2 3 4 5 6 … 87 ›
Rauður dagur í Kauphöllinni Kauphöllin var lengst af glóandi rauð í dag. Örfá fyrirtæki náðu þó að snúa vörn í sókn síðustu klukkustundina af opnun hennar og enduðu í grænu. Mest var hækkun Haga upp á 0,81% en viðskipti með bréf félagsins námu sextíu og þremur milljónum. Mesta lækkunin varð á bréfum Alvotech, um 4,76%, í viðskiptum upp á tæpar nítíu og fimm milljónir. Viðskipti innlent 3.6.2026 16:56
Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir skort á aga og að hafa gefið markaðinum misvísandi skilaboð sem leiðir til hærri verðbólgu. Innlent 3.6.2026 11:20
Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Seðlabankinn boðar til kynningarfundar klukkan 09:30 þar sem yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar verður kynnt nánar. Fundinn má sjá í beinni á Vísi. Viðskipti innlent 3.6.2026 09:20
Útlánatap bankanna gæti numið um 150 milljörðum við „alvarlegt áfall“ Samkvæmt álagsprófi Seðlabankans gætu kerfislega mikilvægu bankarnir þrír staðið af sér „alvarlegt áfall“, sem gæti þýtt fyrir þá samtals um 150 milljarða króna útlánatap, án þess að þeir þyrftu að skerða of mikið framboð af lánsfé til viðskiptavina. Fjármálastöðugleikanefnd vekur athygli á vaxandi skuldum í byggingargeiranum samhliða því að lengri tíma tekur að selja eignir og beinir því til lánveitenda að þeir þurfi að „gæta að aukinni áhættu í geiranum.“ Innherji 3.6.2026 09:09
Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans sem birt var klukkan 8:30. Viðskipti innlent 3.6.2026 08:33
Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Atvinnuleysi mælist 5,8% en var 3,3% á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi dregst saman milli mánaða en síðasta mæling Hagstofunnar var 6,3%. Atvinnuleysistölur eru birtar mánaðarlega. Viðskipti innlent 30.5.2026 11:41
Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Hvers vegna umræðan í Kastljósi á fimmtudag átti að snúast um vexti, ekki form Skoðun 30.5.2026 10:00
Eftir sumarið tekur við óvissa Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir stöðuna góða innan greinarinnar yfir sumarið og sólmyrkvann 12. ágúst vera mikla búbót. Í haust taki þó við óvissa. Viðskipti innlent 29.5.2026 16:59
Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Kostnaður við íslensku krónuna er verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli, að mati erlends sérfræðingahóps sem fjármála-og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Fjármálaráðherra segir skýrsluna sýna að valkostir Íslands séu bara tveir, áframhaldandi ástand eða upptaka evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu. Innlent 29.5.2026 14:25
Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. Viðskipti innlent 29.5.2026 13:37
„Afar brýnt“ að klára frumvarp um rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir að nú þegar blikur séu á lofti í íslensku hagkerfi þá skipti máli að búa yfir öflugu lífeyriskerfi til að koma hjólum atvinnulífsins af stað, meðal annars með aðkomu að innviðaverkefnum. Þess vegna sé „afar brýnt“ að lögfesta frumvarp um um rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóðanna fyrir sumarið. Innherji 29.5.2026 11:12
Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Ekki er hægt að fullyrða að innleiðing 4G og aukin notkun snjalltækja valdi því beinlínis að fæðingartíðni hafi farið lækkandi á heimsvísu, að mati sérfræðings í fæðingartíðni. Stjórnmálamenn leiti logandi ljósi að einfaldri lausn og einfaldri orsök á vanda sem sé bæði flókinn og margþættur. Innlent 29.5.2026 07:00
Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka VR, LÍV og fagfélögin fordæma vaxtahækkanir viðskiptabankanna sem tilkynntar voru fyrir helgi í kjölfar þess að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 25 punkta og standa því í 7,75 prósentum. Þau krefjast þess að bankarnir dragi vaxtahækkanir til baka svo kjarasamningar haldist. Innlent 27.5.2026 15:38
Verðbólguþróunin í sumar mun ríða baggamuninn um næstu skref bankans Ef mælingin núna í maí, sú fyrsta af þremur þangað til peningastefnunefnd kemur næst saman, verður yfir fimm prósent þá mun það halda annarri vaxtahækkun í ágúst opinni, að mati aðalhagfræðings Kviku. Sé litið á meðalspá fimm greinenda þá er útlit fyrir að tólf mánaða takturinn lækki eilítið en verði eftir sem áður rúmlega fimm prósent. Innherji 25.5.2026 12:50
Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna verða afhent verða í Osló í dag, fimmtudaginn 21. maí kl. 13:30. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine er tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Fyrirtækið hefur þróað snjallsiglingarkerfi sem nýtir gervigreind til að birta skipsstjórnendum leiðsögn í rauntíma. Fylgjast má með afhendingu verðlaunanna í beinu streymi hér að neðan. Erlent 21.5.2026 13:11
Skatturinn birtir álagningu í dag Niðurstöður álagningar einstaklinga 2026, vegna tekna 2025, verða birtar á þjónustuvef Skattsins í dag, 21. maí. Fyrir þau heppnu verða inneignir greiddar út 1. júní. Fyrir þau sem nýta upphaf sumars til að gefa til baka verður upplýsingum um skuldir komið til launagreiðanda. Viðskipti innlent 21.5.2026 11:35
Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Ísland er orðið dýrasta land heims í dag. Það er orðið nær tvöfalt dýrara en Evrópa að meðaltali og hefur aldrei verið eins dýrt og akkúrat núna. Við erum orðin miklu dýrari heldur en dýrustu lönd heims sem við berum okkur iðulega saman við.“ Innlent 21.5.2026 11:19
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. Lífið 21.5.2026 07:02
„Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Sjálfstæðismenn mættu í vígahug í fyrirspurnartíma eftir hlé sem gert var á þingstörfum meðan sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram, fullir sjálfstrausts eftir kosningaúrslitin. Þeir vildu þjarma að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og spurðu hana út í efnahagsstjórnina. Kristrún varðist fimlega. Innlent 20.5.2026 17:01
„Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Seðlabankastjóri segir verðbólgu allt of mikla og að peningastefnunefnd hafi ákveði að hækka vexti í 7,75 prósent til þess að koma í veg fyrir að hún aukist enn meira. Framhaldið muni ráðast af því hvað gerist í haust, þegar forsenduákvæði kjarasamninga mun virkjast, miðað við verðbólguspá Seðlabankans. Viðskipti innlent 20.5.2026 12:21
„Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir stöðu efnahagskerfisins undirstrika að Seðlabankinn megi ekki standa einn í baráttunni við verðbólguna. Ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins þurfi öll að leggjast á eitt til að ná niður verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lægri vexti. Viðskipti innlent 20.5.2026 11:25
Vextir hækkaðir samhliða horfum á minni hagvexti og meira atvinnuleysi Annan fundinn í röð hefur peningastefnunefnd ákveðið að hækka meginvexti Seðlabankans um 25 punkta, sem var í samræmi við spár flestra greinenda, á sama tíma og ný þjóðhagsspá teiknar upp dekkri efnahagshorfur sem einkennast af minni hagvexti og meira atvinnuleysi. Nefndin segist reiðubúin að herða taumhald peningastefnunnar frekar en ekki er útlit fyrir að verðbólgan fari undir fjögur prósent fyrr en á seinni hluta næsta árs. Innherji 20.5.2026 09:17
Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndar um hækkun stýrivaxta og sitja fyrir svörum á blaðamannafundi, sem hefst klukkan 09:30 og verður í beinni hér á Vísi. Þá mun Karen Áslaug Vignisdóttur, aðalhagfræðingur bankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, kynna efni Peningamála, sem komu út í dag. Viðskipti innlent 20.5.2026 09:06
Hækka stýrivexti aftur Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,50 prósentum í 7,75. Stýrivextir voru hækkaðir í fyrsta sinn um langt skeið þann 18. mars síðastliðinn þegar þeir voru færðir upp í 7,5 prósent. Þá var verðbólga 5,2 prósent, sú sama og í dag. Flestir greiningaraðilar höfðu spáð 25 punkta hækkun. Viðskipti innlent 20.5.2026 08:30
Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir sífellt fleiri ferðamenn hafa ekki fundist ferðalagið sitt þess virði vegna hás verðlags. Hann kallar eftir því að stjórnvöld hætti að líta á ferðaþjónustuna sem „einhvers konar tunnu sem hægt sé að moka peningum í ríkissjóð“. Innlent 19.5.2026 21:02
Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna Búast má við stýrivaxtahækkun um 0,25 prósentustig, samkvæmt aðalhagfræðingi Landsbankans. Hún segir forsvarsmenn Seðlabankans hafa gefið skýrt til kynna við síðustu ákvörðun að herða þyrfti taumhaldið. Það þyrfti að gera þó það gæti kælt hagkerfið. Viðskipti innlent 19.5.2026 19:25
„Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki vanur því að setja á sig spádómshattinn en segir þó að stýrivaxtahækkun á morgun kæmi honum ekki á óvart. Viðskipti innlent 19.5.2026 13:20
Höfrungahlaup Seðlabanka Íslands Seðlabankastjórarnir reita hár sitt um þessar mundir. Þeir skilja ekki af hverju verðbólgan hjaðnar ekki. Þeir telja það jafnframt mikla ráðgátu, til margra ára, af hverju markaðsaðilar telji aðhald peningastefnunnar sé allt of mikið en geri á sama tíma ekkert ráð fyrir að verðbólgumarkmiðið náist. Seðlabankastjóri hefur sett þá spurningu fram á opinberum kynningarfundi peningastefnunefndar hvort markaðsaðilar séu mögulega kleifhugar! Skoðun 18.5.2026 14:31
Spá stórri vaxtahækkun til að ná aðhaldinu á ný upp í „æskilegt stig“ Trúverðugleiki peningastefnunnar er „mjög laskaður“ eftir lang tímabil þar sem verðbólgan hefur verið umfram markmið og nefndin mun sennilega vilja ná fram sama aðhaldi og var áður en verðbólgan fór að rísa á nýjan leik undir lok síðasta árs, að mati hagfræðinga IFS, sem spá því að vextir hækki um fimmtíu punkta í næstu viku. Innherji 16.5.2026 12:39
Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Nýlega birti Seðlabanki Íslands rannsóknarritgerð þeirra Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra og Bjarna G. Einarssonar: „What sets trend? The evolution and drives of Icelandic trend inflation“ Skoðun 15.5.2026 15:01