Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Agnar Már Másson skrifar 3. febrúar 2026 21:10 Meirihlutinn samþykkti að gera Strætó frían fyrir börn 15 ára og yngri. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ræddi við Sýn í kvöld. Vísir/Anton Brink Áætlað er að það myndi kosta sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu aukalega um 300 milljónir króna á ári að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir grunnskólabörn, þar af 167 milljónir fyrir borgina. Borgarstjóri segir að boðaðar breytingarnar séu til þess fallnar að auka frelsi reykvískra barna.
Strætó bs. reiknaði nýlega út kostnað sveitarfélagana við að gera Strætómiða á höfuðborgarsvæðinu gjaldfrjása fyrir 15 ára og yngri eftir að tillaga þess efnis barst frá ungmennaráðum Kópavogs og Grafarvogs. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einmitt tillögu þess efnis frá meirihlutanum í dag og nái áform borgarstjórnar fram að ganga taka breytingarnar gildi 1. maí. Óljóst er hvort önnur sveitarélög muni fylgja eftir en forstjóri Strætó segir við Vísi að önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu kanni nú einnig hvort þau ættu að fylgja fordæmi Reykjavíkur. Kostar 55 prósent meira að hleypa öllum börnum frítt inn Kostnaðurinn við slíkar breytingar er rakinn í sérstakri samantekt í fundargerð stjórnar Strætó frá því í janúar. Þar segir að samkvæmt fjárhagsáætlun 2026 hafi verið gert ráð fyrir 300 milljóna króna í miðatekjur frá börnum á grunnskólaaldri (12-15 ára), sem nemi um 65% af heildarfjölda greiddra ungmennafargjalda hjá Strætó. Það myndi kosta sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um 300 milljónir króna á ári að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir grunnskólabörn.Strætó „Af fenginni reynslu með önnur frí fargjöld má einnig gera ráð fyrir neikvæðum áhrifum á innheimtu fargjalda í öðrum fargjalda flokkum,“ segir í samantekt Strætó um málið en börn 11 ára og yngri fá þegar frítt í Strætó. Þarna er vísað til þess að hætta myndist á auknu svindli þar sem börn geta þóst verið yngri til að komast undan því að borga fargjöld. Það sé þegar vandamál í núverandi kerfi. Skipt á milli sveitarfélaga (reiknað út frá íbúafjölda) má gera ráð fyrir að borgin borgi bróðurhlutann af þessum kostnaði. Strætó reiknaði einnig út hvað það myndi kosta ef allir yngri en 18 fengju frítt í Strætó, en Framsóknarmenn lögðu einmitt fram tillögu þess efnis, en þá má gera ráð fyrir að kostnaðurinn nemi um 465 milljóna króna, sem er það sem Strætó gerir ráð fyrir í af ungmennafargjöldum í heildina (12-17 ára). Það myndi því kosta um 55 prósentum meira að hleypa öllum börnum frítt í strætó. Heiða: Til þess fallið að auka frelsi barna Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri sagði í kvöldfréttum að meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur vildi með þessu ná því fram að börn geti ferðast frjáls um borgina. „[Börnin] eiga auðvitað borgina. Og þar sem þetta hefur verið gert þá hefur það jafnað stöðu barna og aukið öryggi og sjálfstæði þeirra, og það er auðvitað markmið okkar að gera það,“ sagði hún í samtali við Smára Jökul fréttamann í kvöldfréttum Sýnar. Henni fannst óþörf að samþykkja tillögu Sjálfstæðismanna sem lögðu til að málinu yrði vísað til fjármálasviðs enda fjalli tillagan um það að fela borgarstjóra, fjármálsasviði og Strætó bs. að finna fyrirkomulag á þessum breytingum. „Við erum að gera þetta af því að við sjáum fjárhagslegt svigrúm,“ segir hún. „Og það er gleðilegt og þetta er eitt af því sem við settum okkur í byrjun þessa kjörtímabils.“ En hvað með hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu? Verður það ekki erfitt ef önnur sveitarfélög taka ekki þátt? „Ég held að það ætti ekki að skipta svo miklu máli, við erum fyrst og fremst að hugsa um grunnskólabörn í Reykjavík. Þetta er líka til þess að einfalda grunnskólunum að fara með börn á söfn og annað.“ Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar er stefnt er að rúmlega 3,4 milljarða króna rekstrarafgangi A-hluta. Strætó sáttur ef tekjumissirinn er bættur Jóhannes Svavar Rúnarsson, forstjóri Strætó, segist í samtali við Vísi að byggðasamlagið taki enga sérstaka afstöðu til málsins. Hann viti þó að þetta sé til umfjöllunar hjá öðrum sveitarfélögum. „Þetta er svo sem pólitísk ákvörðun hjá Reykjavík og ég veit að þetta sé til umfjöllunar hjá hinum sveitarfélögunum. Þetta skiptir okkur svo sem engu máli svo lengi sem við fáum bættan tekjumissi,“ segir hann í stuttu spjalli við Vísi.
Borgarstjórn Strætó Borgarlína Rekstur hins opinbera Reykjavík Hafnarfjörður Garðabær Seltjarnarnes Kópavogur Mosfellsbær Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Fleiri fréttir Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Sjá meira