Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Agnar Már Másson skrifar 18. janúar 2026 18:14 Donald Trump Bandaríkjaforseti og Mark Rutte, framkvæmdastjóra Nató, munu hittast á ráðstefnu World Economic Forum á morgun. AP Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, segist hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseta vegna „öryggisástandsins“ á Grænlandi. Rutte segist hlakka til að sjá Trump á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsstofnunarinnar (World Economic Forum) sem hefst á morgun.
Donald Trump Bandaríkjaforseti varpaði í gær sprengju inn í Atlantshafsbandalagið (NATO) þegar hann boðaði tolla á átta aðildarríki sem studdu ekki innlimunaráform Bandaríkjastjórnar um Grænland, sem heyrir undir dönsku krúnuna. Leiðtogar þessara átta landa – Bretlands, Þýskalands, Hollands, Frakklands og Norðurlanda að Íslandi undanskildu – brugðust ókvæða við þessum 10 prósenta Grænlandstollum, sem áttu að óbreyttu að hækka í 25 prósent hinn 1. júní ef ekkert breyttist í afstöðu ríkjanna, sem öll eiga það sameiginlegt að hafa sent hermenn á æfingu á Grænlandi. Evrópuleiðtogar stilla nú saman strengi um hvernig eigi að svara Bandaríkjamanninum og svo alvarleg þótti staðan að boðað var til aukafundar í ráði Evrópusambandsins í dag, sunnudag. Sjá meira: Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands „Ræddi við @POTUS [Bandaríkjaforseta] hvað varðar öryggisástandið á Grænlandi og norðurslóðum. Við munum halda áfram að vinna að þessu, og ég hlakka til að sjá hann í Davos síðar í vikunni,“ skrifar Rutte í færslu á X. Með Davos vísar hann til ráðstefnu Alþjóðaefnahagsstofnunarinnar sem hefst í Davos í Sviss á morgun. Að líkindum má búast við vandræðalegri stemningu milli Bandaríkjamanna og fulltrúa annarra NATO-ríkja. Trump hefur ekkert tjáð sig opinberlega um boðaða tolla frá því að hann tilkynnti um þá í gær. Útfærsla tollanna liggur ekki fyrir en þar sem Evrópusambandsríki eru í tollabandalagi mun hann líklega þurfa að leggja toll á ESB eins og það leggur ef hann hyggst í raun leggja á þessa Grænlandstolla.
Donald Trump NATO Evrópusambandið Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Bandaríkin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira