Innlent

Sláandi hversu margir telji of­beldi hluta af kyn­lífi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
María Hjálmtýsdóttir, formaður Félags kynjafræðikennara, segir nauðsynlegt að efla kynfræðslu og taka á ofbeldi í kynlífi.
María Hjálmtýsdóttir, formaður Félags kynjafræðikennara, segir nauðsynlegt að efla kynfræðslu og taka á ofbeldi í kynlífi.

Mun algengara er að yngri konur en eldri séu beittar kyrkingartaki í kynlífi án samþykkis og kennari segir sláandi hversu útbreidd sú skoðun sé orðin að ofbeldi sé eðlilegur fylgifiskur kynlífs. Nauðsynlegt sé að bregðast við með fræðslu.

Þúsundir krefjast þess að óháð útekt verði gerð á meðferð kynferðisofbeldismála eftir umdeildan dóm Landsréttar þar sem karlmaður var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. Í rökstuðningi dómsins er vísað til samskipta fólksins á Instagram og talið að af þeim mætti ráða að konan hafi gert sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Í ákæru er því meðal annars lýst að maðurinn hafi tekið konuna hálstaki, slegið hana og þrýst hné sínu á bringu hennar. Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, áverka á höfði, tognun í hálsi og öxl og heyrnartap.

Edda Björk Þórðardóttir, dósent í faraldsfræði og annar af aðalhöfundum rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna, ræddi málið í Bítinu og fór meðal annars yfir það hversu algengt sé orðið að þrengt sé að öndunarvegi kvenna í kynlífi án samþykkis.

„Í okkar rannsókn er þetta þrefalt algengara meðal yngri kvenna en eldri kvenna þannig það er að verða einhver breyting þegar kemur að birtingarmyndum kynferðisofbeldis,“ sagði Edda. 

Allir séu að gera þetta

María Hjálmtýsdóttir, formaður Félags kynjafræðikennara og kennari við Menntaskólann í Kópavogi, segir dóm Landsréttar óskiljanlegan og sláandi hversu algengt sé orðið að kyrkingartaki sé beitt meðal ungmenna.

„Þau segja að allir séu að gera þetta og manni bregður bara. Sextán til sautján ára krakkar eru að segja að þetta sé eitthvað sem fólk er að gera þegar það er að sofa saman í fyrsta skipti. Ég talaði líka við konur um tvítugt þar sem heilu vinahóparnir þekktu þetta.“

Verið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi.

„Þau sem vinna með þolendum kynferðisofbeldis á öllum aldri sjá áhrif klámsins svo skýrt og við vitum það alveg að þarna er eitthvað búið að breytast. Krakkarnir okkar sem eru að byrja í samböndum og að byrja að stunda kynlíf og unga fólkið sem er að kynnast einhverjum nýjum og að fara að sofa hjá, þau eru í bara ákveðinni hættu. Leggja af stað út í lífið sem kynverur með hugmyndir um ofbeldi sem einhvern náttúrulegan fylgifisk kynlífs.“

María er meðal þeirra sem kom að vitungarvakningu sem lögregla og ýmis samtök stóðu fyrir í sumar um hættuna sem fylgir kyrkingartaki. Hún segir átak duga skammt, nauðsynlegt sé að bregðast við þróuninni af festu.

„Það þarf bara að setja þetta inn í bara skólakerfið markvisst. Það þarf að fræða krakka um þetta í kynfræðslu sem öll ættu að fá. Því fyrr, því betra myndi ég segja.“


Tengdar fréttir

Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af nauðgun í Landsrétti. Hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun.

Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk

Réttargæslumaður konu sem slasaðist alvarlega eftir að hafa farið á fund við karlmann til að stunda kynlíf er verulega hissa á viðsnúningi í málinu fyrir íslenskum dómsmálum. Hún segir mikilvægt að ríkissaksóknari sæki um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar.

Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun

Undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Verkefnastjóri við Háskóla Íslands segir dómarana tvo sem sýknuðu manninn í mótsögn við eigin rökstuðning og hafi varpað ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konuna.

BDSM á Ís­landi for­dæmir sýknu­dóm í of­beldis­máli

BDSM á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum og fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar í nýbirtum sýknudómi þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×