Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. ágúst 2025 12:58 Prís rekur eina verslun sem staðsett er á Smáratorgi. Vísir/Vilhelm Verslunin Prís í Kópavogi hefur verið ódýrust í samanburði verðlagseftirlits ASÍ frá opnunardegi verslunarinnar í ágúst í fyrra og verið vel undir verði annarra verslana allan þann tíma. Sem stendur er Prís um 6% ódýrara en Bónus og Krónan að meðaltali og 10% ódýrara en Nettó. Sælgæti frá Nóa Siríus heldur áfram að hækka í verði og áhugavert er að sjá lækkun á vöruverði hjá Krónunni við komu Prís á markaðinn.
Þetta kemur fram í samantekt verðlagseftirlitsins . Ýmsar vörur mátti finna í nýjasta samanburði verðlagseftirlitsins sem eru umtalsvert ódýrari í Prís en í Bónus. Þar ber að nefna: Merrild kaffi (899kr í Prís, 1159kr í Bónus) KEA kaffi- og vanilluskyr 500gr (459kr í Prís, 583kr í Bónus) SS beikon í sneiðum (430kr í Prís, 529kr í Bónus) „Verðmunur á einstökum vörum getur verið allt að 22-28% milli verslana svo innkaupakarfan getur verið mun ódýrari ef vel hittir á,“ segir í tilkynningu ASÍ. Verðmunur milli Prís og Krónunnar getur orðið allt að 58% á einstökum vörum en má þar nefna Ömmu flatkökur sem kosta 275 krónur í Krónunni borið saman við 174 krónur í Prís. Opnun Prís hafði áhrif á vöruverð víða Við opnun Prís voru mörg dæmi um verðbreytingar hjá helstu samkeppnisaðilum strax á fyrstu dögum. Eins og sjá má á grafinu hefur þó lítið breyst í stóru myndinni undanfarna mánuði. Þó hafði opnun Prís ein eftirtektarverð áhrif. Í Krónunni lækkuðu verð á þeim vörum sem ekki fundust í Bónus þegar Prís mætti til leiks. Eftirlitsmenn ASÍ telja þessar breytingar vera vísbendingu um að annað hvort hafi Krónan haft aðeins hærri verð á þeim vörum sem Krónan og Bónus voru ekki í samkeppni um, eða þá að Krónan hafi frekar treyst sér til að keppa við Prís en við Bónus í ágúst í fyrra. Dæmi um slíkar vörur má sjá á grafinu að neðan. Á grafinu að neðan má sjá verðsamanburð á fjölmörgum vörum. Hægir á verðhækkunum dagvöru í júlí og ágúst Verðlag á matvöru hækkaði um 0,1% milli júní og júlí og verðathuganir fyrripart ágúst benda til þess að verðlag á dagvöru hafi að mestu staðið í stað milli júlí og ágúst. Er um nokkurn viðsnúning að ræða frá tímabilinu febrúar til júní þegar meðalhækkunin nam 0,6%. Verðlag í dagvöru hækkaði um 0,3% ef aðeins eru skoðaðar matar- og drykkjarvörur. Vörur frá Nóa Síríus hækkuðu enn, til dæmis hækkaði 240gr poki af Nóa kroppi um 13% í Bónus milli júní og júlí. Nóa súkkulaðiperlur hækkuðu um 17% í Hagkaup, hvítir og konsúm súkkulaðidropar hækkuðu um 12% í Krónunni og um 13% í Nettó, segir í samantekt ASÍ.
Matvöruverslun Verðlag Kópavogur Verslun Neytendur Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent