Innlent

Hjól­reiða­maður al­var­lega slasaður við Kerlingar­fjöll

Agnar Már Másson skrifar
Slysið varð við afleggjarann að Kerlingarfjöllum. Myndin er úr safni.
Slysið varð við afleggjarann að Kerlingarfjöllum. Myndin er úr safni. Getty/Andreas Werth

Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kölluð út rétt fyrir klukkan 15 í dag vegna hjólreiðamanns sem slasaðist í grennd við Kerlingarfjöll.

„Þetta var talið það alvarlegt að þetta var boðað út á fyrsta forgang,“ segir Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, sem staðfestir slysið í samtali við fréttastofu. Þyrlan er á leiðinni á vettvang.

Björgunarsveitir frá Grímsnesi og Laugarvatni hafa einnig verið kallaðar út, ásamt sjúkraflutningamönnum Selfossi.

Slysið varð á Kjalvegi nálægt afleggjaranum að Kerlingarfjöllum, segir hann. Tildrög slyssins eru óljós en aðeins einn slasaðist að sögn Ásgríms.

Ásgrímur segir enn fremur að sennilega verði flogið með hjólreiðamanninn til Reykjavíkur, annað hvort á Reykjavíkurflugvöll eða beint á Landspítalann. 

Veist þú meira um málið? Við tökum á móti ábendingum af öllu tagi á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×