Innlent

Sýkla­lyfjaónæmar bakteríur í fyrsta sinn í ís­lensku bú­fé

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Sýklalyfjaónæmar bakteríus greindust í skimunarsýnum við slátrun svína.
Sýklalyfjaónæmar bakteríus greindust í skimunarsýnum við slátrun svína. Vísir/MHH

Sýklalyfjaónæmar bakteríur hafa greinst í búfé á Íslandi í fyrsta skipti. Meticillín ónæmir Staphylococcus aureus (MÓSA) greindust í skimunarsýnum við slátrun svína sem tekin voru í síðustu viku.

Þetta kemur fram í tilkynningu Matvælastofnunar en þar segir að þessar sýklalyfjaónæmu bakteríur séu mjög útbreiddar í búfé í Evrópu og víðar.

Fram kemur að MÓSA sé ekki matarborið smit og því sé ekki talin hætta á neyslu á svínaafurðum.

„Ekki er heldur um eiginlegan dýrasjúkdóm að ræða því smitið er almennt ekki talið valda veikindum í dýrum heldur verða þau einkennalausir berar. Fólk sem starfar í mikilli nálægð við dýrin er í aukinni áhættu að verða fyrir smiti.“

„Líkt og hjá dýrum veldur smit í fólki sjaldnast veikindum, nema ef það berst í fólk með skert ónæmiskerfi eða veldur sárasýkingum. Þá getur verið erfitt að meðhöndla slíkar sýkingar með hefðbundnum sýklalyfjum. Því er afar mikilvægt að MÓSA smit berist ekki inn á heilbrigðisstofnanir.“

Þá segir að síðustu vikur hafi Matvælastofnun skimað fyrir MÓSA við slátrun svína, en þær skimanir séu hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis 2025 - 2029.

„Stroksýni eru tekin úr nefholi svína frá öllum svínabúum sem slátra eldisgrísum, samtals 15 búum. Nú þegar hefur verið skimað í svínum frá 13 búum og reyndust þrenn þeirra jákvæð í skimuninni. Þekkt er að MÓSA getur smitast á milli svína við flutning í sláturhús og því ekki hægt að útiloka krossmengun á milli svínanna, en þeim var öllum slátrað á svipuðum tíma í sama sláturhúsi.“

„Næstu skref miða að því að sannreyna hvort MÓSA sé að finna á þeim búum sem svínin komu frá, með sýnatökum á búunum sjálfum. Í framhaldi mun Matvælastofnun á næstu vikum fara í sýnatökur á öllum svínabúum landsins til að kanna frekari útbreiðslu, ásamt því að fara í viðeigandi aðgerðir til að hindra frekari smitdreifingu í þéttu samstarfi við hagaðila,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×