Hafnaði lægstu tilboðum í brúasmíði á Vestfjörðum Kristján Már Unnarsson skrifar 3. júlí 2025 16:54 Brýrnar eiga að koma yfir Gufufjörð og Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum og eru liður í endurnýjun Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Vegagerðin Vegagerðin hefur hafnað tveimur lægstu tilboðum sem bárust í eitt af stærstu útboðsverkum ársins, smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Þess í stað hefur Vegagerðin ákveðið að ganga til samninga við norskan verktaka, sem átti þriðja lægsta boð. Ákvörðunin hefur verið kærð til Úrskurðarnefndar útboðsmála.
Tilboðin sem var hafnað voru annarsvegar frá Vörubílstjórafélaginu Mjölni á Selfossi, sem átti lægsta boð upp á 1.626 milljónir króna, og hins vegar frá Sjótækni í Reykjavík, upp á 1.705 milljónir króna. „Það er búið að hafna tveimur lægstu tilboðum þar sem þau stóðust ekki kröfur. Stefnt er á að semja við þriðja lægsta bjóðanda, sem er Leonhard Nilsen & Sønner,” segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, í svari við fyrirspurn fréttastofu. Brúin yfir Gufufjörð verður 130 metra löng. Fjær sér inn í Brekkudal.Vegagerðin Leonhard Nilsen & Sønner buðust til að vinna verkið fyrir 1.852 milljónir króna, sem er 14 prósentum og 226 milljónum króna hærra en lægsta boð. „Lægstbjóðandi kærði þá niðurstöðu til Úrskurðarnefndar útboðsmála og er það í ferli núna. Það er ekki ljóst hvenær niðurstaða fæst í það mál og þá hvenær verður samið,” segir G. Pétur. Fjögur tilboð bárust í brúasmíðina. Í verkinu felst annars vegar smíði 58 metrar langa brúar á Djúpafjörð við Grónes og hins vegar 130 metrar langrar brúar á Gufufjörð. Innifalið í verkinu er rif á núverandi 119 metra bráðabirgðabrú á Gufufirði ásamt efnisflutningum úr núverandi vinnuplönum og gerð grjótvarnar og rofvarnar. Þetta er næstsíðasti áfangi einhverrar umdeildustu vegagerðar á Íslandi, sem jafnan er kennd við Teigsskóg. Áður var búið að brúa Þorskafjörð og leggja þjóðveginn um Teigsskóg. Einnig er lokið gerð tengivega að sveitabæjum í Gufudal og Djúpadal, sem tímabundið eru hluti Vestfjarðavegar. Minni brúin yfir Djúpafjörð. Fjær sér á fyrirhugaðan áningarstað á Grónesi, milli Gufufjarðar og Djúpafjarðar.Vegagerðin Lokaútboðið í endurnýjun Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er hins vegar eftir. Það er smíði 250 metra langrar stálbogabrúar yfir Djúpafjörð. Sú brú verður í stíl við brúna yfir Mjóafjörð í Djúpi og nýju Eldvatnsbrúna í Skaftárhreppi. Brúin verður smíðuð á verkstæði en sett saman á staðnum. „Áætlað er að bjóða út stálbogabrúna fyrripart vetrar á árinu 2025,” segir G. Pétur. Með framkvæmdunum í heild styttist Vestfjarðavegur um 22 kílómetra. Jafnframt færist leiðin af tveimur fjallvegum, Hjallahálsi og Ódrjúgshálsi, og verður eingöngu láglendisvegur um Gufudalssveit. Vegagerðin var skýrð í þessari frétt Stöðvar 2 í lok nóvember 2023 þegar vegurinn um Teigsskóg var opnaður:
Vegagerð Samgöngur Teigsskógur Reykhólahreppur Úrskurðar- og kærunefndir Tengdar fréttir Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Vörubílstjórafélagið Mjölnir á Selfossi átti lægsta boð í smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Tilboð Selfyssinga hljóðaði upp á 1.626 milljónir króna, sem er 0,1 prósenti yfir kostnaðaráætlun. 29. apríl 2025 18:54 Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. 30. nóvember 2023 21:00 Mest lesið Krefjast bóta á umferðaröryggi í kjölfar alvarlegs slyss sjö ára drengs Innlent Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Innlent Stór lögregluaðgerð í Laugardal Innlent Vill palestínska fánann niður við ráðhúsið Innlent Þingflokksformenn semja inn í nóttina Innlent Minnihluti verði að sætta sig við að hann sé ekki við völd Innlent Taldi ekki ástæðu til að kalla inn varamann á meðan hún fór í frí Innlent Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Innlent Hefði stoppað Magga Mix á punktinum Innlent Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Innlent Fleiri fréttir Þingflokksformenn semja inn í nóttina Krefjast bóta á umferðaröryggi í kjölfar alvarlegs slyss sjö ára drengs Vill palestínska fánann niður við ráðhúsið Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Minnihluti verði að sætta sig við að hann sé ekki við völd Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Taldi ekki ástæðu til að kalla inn varamann á meðan hún fór í frí „Börnin útskrifast með bókstaf hjá okkur en tölur í framhaldsskóla“ Stór lögregluaðgerð í Laugardal Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Gæsluvarðhald frönsku konunnar framlengt Málþóf, hætta í umferðinni og umdeildur fáni Birna tekur sæti Áslaugar á þingi Afkomanda Trampe greifa hleypt inn í Alþingishúsið Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Þyrlan sækir slasaðan göngumann í Patreksfjörð „Mun koma í ljós“ hvort kennarar eða Tripical þurfi að endurgreiða Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Fjórtán fengu úthlutað fræðimannadvöl í Jónshúsi Væri hræddari við loftárásir en Palestínumenn væri hún í Palestínu Sýklalyfjaónæmar bakteríur greindust í íslenskum svínum Þrýst á flugmenn Landhelgisgæslunnar meðan samningar tefjist „Mjög óeðlileg nálgun“ Óvenjulegt málþóf og lítill pólitískur ávinningur Palestínski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Hefði stoppað Magga Mix á punktinum „Það er samkeppni um starfsfólk“ Landspítalaforstjóri fagnar svörtu skýrslunni Þarf að láta sér átta ára dóm lynda Krefur ráðuneytið svara um föstudagslokun Sjúkratrygginga Sjá meira
Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Vörubílstjórafélagið Mjölnir á Selfossi átti lægsta boð í smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Tilboð Selfyssinga hljóðaði upp á 1.626 milljónir króna, sem er 0,1 prósenti yfir kostnaðaráætlun. 29. apríl 2025 18:54
Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. 30. nóvember 2023 21:00