Innlent

Ný skýrsla: Raf­orku­verð heimila hafi hækkað um ellefu prósent

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra.
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra. Vísir/Vilhelm

Raforkukostnaður heimila hefur síðastliðin fimm ár hækkað um ellefu prósent að því er fram kemur í nýrri skýrslu um þróun raforkukostnaðar sem kynnt var í morgun. Umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra segir mikilvægt að brugðist verði við, hann hafi þegar kynnt frumvörp þess efnis í þinginu.

Umhverfis, orku- og loftlagsráðuneytið óskaði í janúar eftir því að Umhverfis- og orkustofnun ynni skýrslu um þróun raforkukostnaðar hér á landi undanfarin ár. Skýrsla þess efnis var kynnt af Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra í morgun. Raforkukostnaður heimila hefur undanfarin fimm ár hækkað um ellefu prósent á föstu verðlagi en raforkukostnaður fyrirtækja um 24 prósent. Alls hafi hækkunin numið 39 prósentum undanfarin fimm ár en 78 prósentum frá árinu 2005 til 2020.

„Ég óskaði eftir þessari skýrslu þegar það var ljóst hvað raforkuverð hafði hækkað mikið mánuðina á undan, þetta var í janúar þegar ég er nýtekinn við embætti og þessi vinna hefur undið svolítið upp á sig, þetta er löng og ítarleg skýrsla þar sem er verið að greina raforkukostnað hjá mismunandi hópum. Það sem mér finnst þessi skýrsla undirstrika er mikilvægi þess að við klárum þessi mál sem ég hef þegar komið með inn í þingið og flest þessi eru meira að segja komin út úr nefndum þingsins þannig okkar ætti ekkert að vera að vanbúnaði.“

Þar skipti sköpum að einfalda regluverk, tryggja aukna skilvirkni í stjórnsýslu og tryggja áframhaldandi framboð á raforku. Ráðherra segir orkuverð hér á landi þó enn lágt í alþjóðlegum samanburði.

„Þessar hækkanir að undanförnu eru áhyggjuefni og undirstrika þetta sem ég nefndi að við bæði gerum breytingar á umgjörð raforkumarkaðarins og aukum framboð, góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að við erum í algjörri sérstöðu miðað við löndin í kringum okkur. Ég nefndi það hér áðan að orkukaupmáttur íslenskra heimilda er 2,5 fimmfaldur á við orkukaupmátt heimila í Evrópusambandinu, þannig þetta er staða sem við verðum að viðhalda og styrkja ennfrekar að heimili fái raforku á viðráðanlegu verði og að fyrirtæki fái raforku á samkeppnishæfu verði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×