Segir andstæðingum hvalveiða til syndanna og kallar þá hræsnara Vésteinn Örn Pétursson skrifar 18. desember 2024 16:22 Vilhjálmur Birgisson er ekki par sáttur við málflutning andstæðinga hvalveiða um að fimm ára endurnýjanlegt veiðileyfi Hvals hf. sé óeðlilegt eða andstætt lögum. Blæs á slíka gagnrýni og segir fólki til syndanna. Vísir/Vilhelm Formaður Verkalýðsfélags Akraness gefur lítið fyrir gagnrýni Katrínar Oddsdóttur, lögmanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, og Henrys Alexanders Henryssonar, siðfræðings, á ákvörðun Bjarna Benediktssonar starfandi matvælaráðherra um að gefa út fimm ára hvalveiðileyfi til Hvals hf., sem endurnýjast árlega. Hann telur málflutning þeirra einkennast af hræsni.
Dregur hlutleysi Henrys í efa Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagði Henry að hann teldi margt bogið við leyfisveitingarferlið, og að nýr ráðherra málaflokksins myni líklega leita allra leiða til að ógilda leyfið. Vilhjálmur tekur ekki undir þetta. „Grundvallaratriðið er það að það eru til lög um hvalveiðar og það er í hvívetna verið að fara eftir þeim. Þeir aðilar sem hafa verið að tjá sig núna að undanförnu, þau Henry og Katrín, þetta eru einir hörðustu andstæðingar hvalveiða á Íslandi. Það liggur fyrir að Henry er í fagráði sem skilaði áliti til fyrrverandi matvælaráðherra. Miðað við ummæli hans um veiðar og vinnslu á hvalaafurðum, þá má draga stórlega í efa það hlutleysi sem fólk í fagráði á að gæta,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Katrín hafi klappað hæst þegar vertíðin fór í vaskinn Í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag sagði Katrín svo ákvörðunina ekki í samræmi við stjórnskipunarvenjur, og að hún væri til marks um spillingu. Vilhjálmur segir ljóst að ákvörðunin standist lög, en að Katrín tali á öðrum nótum því hún sé einn harðasti andstæðingur hvalveiða í landinu. „Hún hefur tjáð sig grimmt um það. Hún hefur líka verið einn harðasti stuðningsmaður þess að hér sé tekin upp ný stjórnarskrá, vegna þess að sú sem er við lýði í dag sé ekki að verja okkur nógu vel. Hún var nánast með standandi lófaklapp þegar fyrrverandi matvælaráðherrar brutu gegn stjórnarskrá, að mati Umboðsmanns Alþingis, með því að fresta og banna hvalveiðar árið 2023 og 24. Mér finnst gæta mikillar hræsni í málflutningi þessa fólks.“ Útflutningstekjur og lífsviðurværi undir Vilhjálmur segist vilja halda þessum sjónarmiðum til haga, til varnar hagsmunum félagsmanna sinna. „Ég er að verja lífsafkomu 200 fjölskyldna. Ég vil líka minna á að Hvalur hf. hefur frá árinu 2010 skilað 21 milljarði núvirt í útflutningstekjur frá 2010. Hvalur greiðir 1,2 milljarða í laun til starfsmanna yfir hávertíðina. Hér er um gríðarlega hagsmuni fyrir okkur Akurnesinga að ræða, og nærsamfélögin.“ Vilhjálmur segir það mega vera lýðum ljóst að til þess að standa megi undir velferðarkerfi hér á landi þurfi verðmætasköpun að geta átt sér stað. „Tek bara ekkert mark á því“ Sjálfvirk framlengin leyfisins um eitt ár er nýmæli, og hefur aldrei fyrirfundist áður í leyfi eins og því sem Bjarni veitti Hval, líkt og Katrín nefndi í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Spurður hvort ekki sé að finna málefnalegheit í gagnrýni á slíkt þvertekur Vilhjálmur fyrir það. „Ég tek bara ekkert mark á því. [Katrín] var með standandi lófaklapp þegar fólk var mætt til vinnu árið 2023 og vertíðin var blásin af með ólöglegum aðgerðum fyrrverandi matvælaráðherra. Það fannst henni bara í góðu lagi. Núna talar hún um spillingu og lélega stjórnsýslu. Það er léleg stjórnsýsla að fara ekki eftir þeim lögum sem eru í gildi. Öll fyrirtæki verða að hafa fyrirsjáanleika til þess að geta keypt aðföng, ráðið mannskap, undirbúið skipin og svo framvegis.“ „Engin atvinnustarfsemi getur þrifist á Íslandi ef hún hefur ekki fyrirsjáanleika inn í framtíðina. Það er útilokað mál,“ segir Vilhjálmur að lokum.
Hvalveiðar Stjórnsýsla Akranes Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Sjávarútvegur Tengdar fréttir „Þetta heitir á góðri íslensku spilling“ Útgáfa hvalveiðileyfis sem endurnýjast sífellt og sjálfkrafa er fráleit stjórnsýsla hjá ráðherra í starfsstjórn segir lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Málið sé ekkert annað en spilling og hún bindur vonir við að ný ríkisstjórn grípi í taumana. 18. desember 2024 11:51 Hafró og Fiskistofa skiluðu umsögnum um hvalveiðar fyrir kosningar Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofa skiluðu umsögnum sínum um hvalveiðar til matvælaráðuneytisins fyrir síðustu alþingiskosningar. Í leynilegum upptökum sem fréttastofa hefur undir höndum kemur fram að ef ekki næðist að gefa út hvalveiðileyfi fyrir kosningar væri vel hægt að gera það á meðan aðrir flokkar reyndu að mynda ríkisstjórn. 6. desember 2024 19:00 Mest lesið Afþakkaði boð Samherja og fékk 35 milljóna reikning Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2024 Innlent Galnar nafnabreytingar og dularfull veikindi Innlent Rafbyssu beitt í fyrsta sinn Innlent Sáðlát yfir andlit með valdi nauðgun eftir allt saman Innlent Stefán Einar sýknaður af kæru eins höfunda áramótaskaupsins Innlent Þorsteinn banaði konu sinni á Akureyri Innlent „Kimdátar“ berjast og falla í Kúrsk Erlent Matsgerð sem Þorsteinn Már vildi sögð tilgangslaus Innlent „Þetta heitir á góðri íslensku spilling“ Innlent Fleiri fréttir Ráðist á tíu ára gamlan dreng fyrir utan Rimaskóla Valdníðsla, rafbyssur og vitringar Sigríður óvænt hætt sem bæjarstjóri Fjallabyggðar Öryggi verði minna í fangelsinu og dómar muni fyrnast Fastir í Múlagöngum í tvo tíma „Ég tek bara ekkert mark á því“ Réðst á dóttur sína sem var sú eina sem þorði að mótmæla honum Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2024 Matsgerð sem Þorsteinn Már vildi sögð tilgangslaus Múlagöng lokuð vegna bilaðrar hurðar Ók ölvaður og svefnlaus á gangandi vegfarendur Samið um lagningu skíðagöngubrauta á Hólmsheiði og Rauðavatni Sáðlát yfir andlit með valdi nauðgun eftir allt saman „Þetta heitir á góðri íslensku spilling“ Vilja ekki sjá listaverk á Eldfelli Sterkt samband formanna gott veganesti Hafi fjórar til fimm vikur á nýju ári Talað um fráleita stjórnsýslu í hvalveiðimálinu Rafbyssu beitt í fyrsta sinn Leggja til framtíðarsýn fyrir breytta Grindavík Stefán Einar sýknaður af kæru eins höfunda áramótaskaupsins Trjádeila í Kópavogi fer fyrir Hæstarétt Þorsteinn banaði konu sinni á Akureyri Skera niður í fangelsunum vegna tugmilljóna króna hallarekstrar Féllst á að greiða tugi milljóna vegna áramótaíkveikju á Akranesi Afþakkaði boð Samherja og fékk 35 milljóna reikning Galnar nafnabreytingar og dularfull veikindi Stjórn segir uppbygginguna þrekvirki en frjálsíþróttirnar harma stöðuna Sjóvá bótaskylt vegna slyss á flugslysaæfingu Eldur í iðnaðarhúsnæði á Akureyri Sjá meira
„Þetta heitir á góðri íslensku spilling“ Útgáfa hvalveiðileyfis sem endurnýjast sífellt og sjálfkrafa er fráleit stjórnsýsla hjá ráðherra í starfsstjórn segir lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Málið sé ekkert annað en spilling og hún bindur vonir við að ný ríkisstjórn grípi í taumana. 18. desember 2024 11:51
Hafró og Fiskistofa skiluðu umsögnum um hvalveiðar fyrir kosningar Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofa skiluðu umsögnum sínum um hvalveiðar til matvælaráðuneytisins fyrir síðustu alþingiskosningar. Í leynilegum upptökum sem fréttastofa hefur undir höndum kemur fram að ef ekki næðist að gefa út hvalveiðileyfi fyrir kosningar væri vel hægt að gera það á meðan aðrir flokkar reyndu að mynda ríkisstjórn. 6. desember 2024 19:00