Viðskipti innlent

ASÍ segir húsnæðisverð helsta drifkraft verðbólgu

Samúel Karl Ólason skrifar
Án áhrifa húsnæðis mælist verðbólga 2,8 prósent.
Án áhrifa húsnæðis mælist verðbólga 2,8 prósent. Vísir/Vilhelm

Húsnæðisverð er helsti drifkraftur verðbólgu á Íslandi samkvæmt Alþýðusambandi Íslands. Sé horft framhjá áhrifum húsnæðis mælist verðbólga í samræmi við markmið Seðlabankans.

Í tilkynningu frá ASÍ segir að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,47 prósent milli mánaða og ársverðbólga hafi mælst 4,4 prósent í september, samanborið við 3,5 prósent í sama mánuði í fyrra. 1,7 prósents hækkun á reiknaðri húsaleigu hafi mest áhrif á hækkun vísitölunnar og þau séu 1,72 prósent.

Án áhrifa húsnæðis mælist verðbólga 2,8 prósent og sé það nærri verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands.

ASÍ segir einnig að þegar komi að hækkun á vísitölu neysluverðs sé hækkun á innfluttri vöru, sem rekja megi til hækkana á fötum og skóm vegna útsöluloka, næst á eftir húsnæðinu.

Hækkun á innfluttri mat- og drykkjarvöru megi að mestu rekja til hækkana á berjum, grænmeti og kartöflu og þar að auki hafi bensín og olía hækkað nokkuð milli mánaða.

„Samkvæmt íbúðarvísitölu þjóðskrár hækkaði húsnæðisverð um 2,2% milli mánaða í ágúst og ekkert lát virðist á þenslu á húsnæðismarkaði. Árshækkun húsnæðisverðs mældist 16,4% milli ára í ágúst og þar af hefur hækkun sérbýlis numið 20,4%. Húsnæðisverð hefur hækkað hratt síðustu misseri og skýrist þróunin fyrst og fremst af hröðum vaxtalækkunum inn í umhverfi tregbreytanlegs framboðs,“ segir í tilkynningu ASÍ.

Þá segir að leiguverð hafi haldist tiltölulega stöðugt í heimsfaraldrinum, ólíkt húsnæðisverði. Þar spili inn í áhrif af fækkun ferðamanna og tímabundin tilfærsla af húsnæði úr skammtímaleigu í langtímaleigu. Leiguverð hafi lækkað en sé byrjað að hækka á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×