Rekstrarfélögin Geysir Shops ehf. og Arctic Shopping ehf., sem voru í eigu Jóhanns Guðlaugssonar, voru tekin til gjaldþrotaskipta í byrjun mars eftir að verslunarkeðjan hætti rekstri og starfsfólki var sagt upp.
Fjölskyldan sem á Hótel Geysi hyggst ekki opna fleiri verslanir og ætlar að einbeita sér að Haukadalnum. Áður voru fimm aðrar verslanir reknar undir merkjum Geysis í Reykjavík og á Akureyri.

„Það verður bara mjög gaman að takast á við þetta. Þetta eru sérstakir tímar núna í faraldrinum og það er mjög leiðinlegt að sjá á eftir þessu,“ segir Elín Svafa Thoroddsen, einn eiganda Hótel Geysis, í samtali við Vísir.
„Þau hafa unnið frábært starf með því að byggja upp þessar búðir og það er mikil eftirsjá hjá kúnnanum. Við finnum það að fólk bíður óþreyjufullt eftir því að geta verslað þessar vörur aftur og það er mjög mikill áhugi fyrir þeim.“
Þróa bað- og snyrtivörulínu
Fréttablaðið greindi fyrst frá fyrirætlununum en nú er unnið að því að taka saman vörulagerinn og fara í gegnum hann.
Elín segir að ekki verði tekið við inneignarnótum úr gömlu verslununum þar sem um sé að ræða aðskilið fyrirtæki sem hafi einfaldlega keypt vörurnar úr þrotabúinu. Hún bendir á að viðskiptavinir geti lýst kröfum í þrotabú Geysir shops ehf. og Arctic shopping ehf. en Hótel Geysir hefur sömuleiðis gert kröfu í búið vegna vangreiddra leigugreiðslna.
Neytendasamtökin greindu frá því í febrúar að kröfur í þrotabú vegna inneignarnóta og gjafabréfa fáist sjaldan greiddar.
„Við erum með hótelið og veitingastaði svo verslunin styður við alla þá starfsemi sem er hérna,“ segir Elín en fjölskyldan átti fyrir verslunarhúsnæðið í Haukadalnum og vörumerkið sem var leigt áfram til verslunarrekstursins.
Þau ætla ekki að láta þar við sitja og hyggjast þróa bað- og snyrtivörulínu undir merkjum Geysis samhliða opnun heilsulindar á svæðinu.
Hyggjast draga úr framleiðslu
„Þau náttúrulega unnu stórkostlegt starf við að byggja upp þetta vörumerki, þannig að við viljum bara halda því góða starfi áfram og ætlum að vinna að áframhaldandi vöruþróun á Geysismerkinu,“ segir Elín.
Aðspurð nánar um það í hverju hún muni felast segir Elín það enn vera til skoðunar. Ólíklegt sé að þau muni halda úti jafn umfangsmikilli fatalínu og fyrri eigendur en einhver framleiðsla muni þó halda áfram.
Þá telur hún líklegt að vöruúrvalið muni almennt taka meira mið af kröfum erlendra ferðamanna nú þegar aðeins ein verslun stendur eftir. Það ætti þó ekki að koma neinum á óvart að fjölskyldan í Haukadal hafi þurft að venjast samdrætti á því sviði undanfarið ár.
„Í dag eru hér nær eingöngu Íslendingar þannig að það verður alveg miðað við þann kúnnahóp líka. Þetta er gott að nota þennan tíma til að fara yfir hlutina og endurmeta hvert við förum með þetta vörumerki,“ segir Elín.
Geysir seldi klæðnað frá fjölda erlendra fatamerka auk þess sem rekstrarfélag þess rak ferðamannaverslanir á borð við Lundann, Thor og Óðinn í miðbæ Reykjavíkur.
Elín segir að hluti lagersins verði seldur áfram en Vísir greindi frá því fyrr í dag að athafnakonan Rakel Þórhallsdóttir hafi þegar samið um kaup á Fjällräven vörum sem hún ætli að selja í nýrri verslun sinni.