Björguðu manni úr sjónum í Reykjavíkurhöfn Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. september 2020 22:48 Maðurinn datt í sjóinn í Reykjavíkurhöfn. Vísir/vilhelm
Fjölmennt lið viðbragðsaðila var kallað út að höfninni í miðbæ Reykjavíkur, skammt frá Hörpu, um tíuleytið í kvöld vegna manns sem dottið hafði í sjóinn. Manninum var bjargað upp úr höfninni um fimmtán mínútum eftir að útkallið barst, að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Hlynur Höskuldsson varðstjóri segir í samtali við Vísi að fyrsta útkall hafi hljóðað upp á einstakling sem dottið hefði í sjóinn og væri meðvitundarlaus. Atvikið reyndist þó ekki jafnalvarlegt og talið var í fyrstu. Hlynur hafði ekki upplýsingar um líðan mannsins nú en hann hafi þó verið með meðvitund þegar honum var komið upp í sjúkrabíl. Slökkvibíll, körfubíll, kafarabíll og fjórir sjúkrabílar voru sendir á vettvang þegar útkallið barst. Hlynur gerir þannig ráð fyrir að allt að tólf manna lið viðbragðsaðila hafi farið á staðinn. Ekki fengust upplýsingar um það hvernig slysið bar að eða hvort maðurinn hafi verið einn á ferð.
Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf Innlent Fleiri fréttir „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Sjá meira