Viðskipti innlent
137 138 139 140 141 142 143 144 145 … 334 ›
67,6 milljarða lakari viðskiptajöfnuður 44,2 milljarða króna halli var á viðskiptajöfnuði við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2021. Niðurstaðan er 61,2 milljarða lakari en ársfjórðunginn á undan og 67,6 milljarða lakari en á sama tímabili árið 2020. Viðskipti innlent 2.3.2022 11:34
Gísli Freyr tekur við af Stefáni Einari Gísli Freyr Valdórsson hefur verið ráðinn fréttastjóri viðskiptadeildar Morgunblaðsins og tekur hann við stöðunni af Stefáni Einari Stefánsyni. Viðskipti innlent 2.3.2022 07:20
Vínbúðin tekur rússneskan vodka úr sölu Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur tekið ákvörðun um að taka fjórar tegundir af fimm af rússneskum vodka úr sölu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Vodkinn verður fjarlægður úr hillum vínbúða á landinu þar til annað verður ákveðið. Viðskipti innlent 1.3.2022 21:26
Guide to Iceland skiptir um nafn Ferðatæknifyrirtækið Guide to Iceland hefur breytt nafni sínu í Travelshift. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 1.3.2022 15:28
Nýja Vínbúðin tekur rússneskar vörur úr sölu Nýja Vínbúðin, vefverslun með áfengi, hefur tekið allar rússneskar vörur úr sölu á vefverslun sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá búðinni. Viðskipti innlent 1.3.2022 11:02
Segist finna til ábyrgðar að stýra stærsta fyrirtæki sjávarbyggðar Útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason hefur byggt upp stærsta atvinnufyrirtæki Bolungarvíkur á undanförnum árum með milljarða fjárfestingum í útgerð og fiskvinnslu. Hann segist finna til ábyrgðarinnar og sé ekki á leiðinni í burtu með kvótann. Viðskipti innlent 28.2.2022 23:10
Björn Ingi gjaldþrota Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson er gjaldþrota. Viðskipti innlent 28.2.2022 17:44
Mikki Mús veitir íslenskum miðlum harða samkeppni 43,1% íslenskra heimila er með áskrift að streymisveitunni Disney+ og hefur fjöldinn hátt í tvöfaldast á einu ári. Þetta sýna nýjar niðurstöður Maskínu sem rýndi í áhorfsvenjur Íslendinga. Í fyrra sögðu 24,0% svarenda að einhver á heimilinu væri með aðgang að Disney+. Viðskipti innlent 25.2.2022 11:11
Fjögur ráðin til Brandenburg Þorleifur Gunnar Gíslason, Dana Rún Hákonardóttir, Sóley Lee Tómasdóttir og Hildur Hafsteinsdóttir hafa öll verið ráðin til starfa hjá hönnunar- og auglýsingastofunni Brandenburg. Viðskipti innlent 25.2.2022 10:10
Verðbólga eykst í 6,2 prósent Ársverðbólga mælist nú 6,2% en hún var 5,7% í janúar. Tólf mánaða verðbólga mældist síðast hærri í mars 2012 þegar hún var 6,40%. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í febrúar 2022, hækkar um 1,16% frá janúar og vísitalan án húsnæðis um 1,26%. Viðskipti innlent 25.2.2022 09:06
Kristín Hildur hjá Fortuna Invest til Íslandsbanka Kristín Hildur Ragnarsdóttir, eina af meðlimum Fortuna Invest, hefur verið ráðin til starfa hjá Íslandsbanka og þar sem hún mun leiða vöruþróun fyrir ungt fólk og fjárfestingar. Viðskipti innlent 24.2.2022 13:05
Góði hirðirinn flytur í Kassagerðina Góði hirðirinn mun flytja úr Fellsmúla og í gömlu Kassagerðina við Köllunarklettsveg 1 í Reykjavík. Stefnt er að flutningum þann 1. janúar á næsta ári. Viðskipti innlent 24.2.2022 08:26
Fresta erlendri markaðsherferð vegna átakanna í Úkraínu Íslandsstofa hefur seinkað erlendri markaðsherferð sem til stóð að gangsetja í dag vegna stríðsátakanna við landamæri Úkraínu og Rússlands. Viðskipti innlent 23.2.2022 08:38
Play bætir við áfangastað í Norður-Ameríku Íslenska flugfélagið Play hefur opnað fyrir miðasölu á flugi til Orlando í Bandaríkjunum. Fyrsta flug félagsins til Orlando verður 30. september næstkomandi en þangað verður flogið þrisvar í viku. Viðskipti innlent 23.2.2022 08:10
Ásthildur Bára nýr markaðsstjóri SalesCloud Ásthildur Bára Jensdóttir hefur verið ráðin markaðsstjori fjártæknifyrirtækisins SalesCloud. Viðskipti innlent 23.2.2022 07:59
Nær aldrei bæst við fleiri íbúðir en í fyrra Mikill fjöldi íbúða bættist við húsnæðisstofn höfuðborgarsvæðisins í fyrra og fjölgar íbúðum í byggingu, að sögn Hagfræðideildar Landsbankans. Þó er óvist hvort framboðsaukningin sé næg miðað við núverandi aðstæður þar sem eftirspurn er mikil. Viðskipti innlent 22.2.2022 16:11
Guðbjörg Sæunn frá Veitum til Einingaverksmiðjunnar Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Einingaverksmiðjunnar ehf. Hún tekur við af Sigurbirni Óla Ágústssyni sem hefur gegnt starfinu síðustu 28 ár. Viðskipti innlent 22.2.2022 11:49
Ekki allt sem sýnist varðandi hækkun eldsneytisverðs Eldsneytisverð hefur hækkað umtalsvert síðustu misseri samhliða hækkunum á erlendum olíumörkuðum. Þrátt fyrir að greint hafi verið frá því að verð á bensíni og dísilolíu hafi aldrei verið hærra í krónum talið hér á landi segir það þó ekki alla söguna. Viðskipti innlent 22.2.2022 11:20
Arion banki hækkar óverðtryggða vexti Arion banki hefur tekið ákvörðun um að hækka óverðtryggða breytilega íbúðalánavexti um 0,50 prósentustig og verða þeir 4,79%. Óverðtryggðir fastir íbúðalánavextir til þriggja ára hækka um 0,45 prósentustig og verða 5,69%. Viðskipti innlent 22.2.2022 09:35
Baader kaupir restina af hlutfé Skagans 3X Þýska fyrirtækið Baader hefur samið um kaup á 40 prósent hlutafjár í hátæknifyrirtækinu Skaganum 3X. Árið 2020 keypti Baader 60 prósent hlutafjár í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 21.2.2022 17:28
Kristín Björg frá Torgi til Orkunnar Kristín Björg Árnadóttir hefur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Orkunnar. Hún starfaði síðast sem fjármálastjóri hjá Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins, DV, Hringbrautar og tengdra miðla. Viðskipti innlent 21.2.2022 09:25
Með greiðslumat og útborgun en eiga samt ekki séns Hjón sem hafa árangurslaust boðið í íbúðir á höfuðborgarsvæðinu síðasta eina og hálfa árið segja fasteignamarkaðinn vonlausan fyrir venjulegt fólk. Íbúð sem þau buðu í fyrir þremur mánuðum var sett aftur á sölu í gær og var þá orðin tíu milljónum dýrari. Viðskipti innlent 19.2.2022 11:23
Hagnaðurinn aldrei meiri og stjórnin vill greiða 15 milljarða í arð Hagnaður Landsvirkjunar jókst töluvert á milli ára og nam 29,5 milljörðum króna, sem er tæplega 64 prósent aukning frá árinu 2020. Stjórn fyrirtækisins hyggst leggja til að greiddur verði 15 milljarða króna arður aftur í ríkissjóð. Þetta kemur fram í ársreikningi Landsvirkjunar fyrir árið 2021 sem kom út í dag. Viðskipti innlent 18.2.2022 15:31
Elín Pálmadóttir nýr sviðsstjóri hjá PwC Elín Pálmadóttir hefur tekið við sem sviðstjóri bókhalds og launa hjá PwC en sviðið aðstoðar fyrirtæki og rekstraraðila með bókhald, laun, ársreikninga og framtalsskil. Viðskipti innlent 18.2.2022 11:19
Guðjón nýr forstöðumaður hjá Isavia Guðjón Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður á þjónustu og rekstrarsviði Isavia. Framkvæmdastjóri sviðsins segir stór verkefni bíða eftir niðursveiflu í kjölfar faralursins. Viðskipti innlent 18.2.2022 09:28
Hækkaði um tíu milljónir á þremur mánuðum: „Hvernig á fólk að gera þetta?“ Hjón í fasteignaleit segja það lyginni líkast að ásett verð íbúðar sem þau hafi gert tilboð í fyrir þremur mánuðum hafi síðan hækkað um tíu milljónir króna. Seljandinn, sem vill nú fá 8,6 milljónum meira fyrir íbúðina en hann greiddi í desember, segir að fólki sé frjálst að gera tilboð. Viðskipti innlent 18.2.2022 07:00
„Það eru stóru fyrirtækin sem ráða för“ Formaður Atvinnufjelagsins, hagsmunasamtaka smærri fyrirtækja, segir mikilvægast við kjarasamninga að atvinnurekendur og launþegar skilji þá. Breyta verði nálgun við gerð kjarsamninga enda bera smærri fyrirtæki hlutfallslega hærri byrði en þau sem stærri eru. Viðskipti innlent 17.2.2022 23:06
„Við ætlum að fara fetið, förum varlega af stað“ Framkvæmdastjóri Niceair, nýjasta flugfélags Íslands, telur að markaðurinn fyrir millilandaflug til og frá Akureyri sé sterkur. Fyrst um sinn verður farið varlega af stað með einni Airbus-þotu. Viðskipti innlent 17.2.2022 21:11
Pollapönkarar kaupa hlut í elstu hljóðfæraversluninni Þeir Arnar Gíslason og Guðni Finnson hafa keypt sig inn í rekstur Hljóðfærahússins. Þeir vinna saman í versluninni auk þess að standa vaktina í hljómsveitum á borð við Pollapönk, Dr. Mugison, Dr. Spock, Jónas Sig og Ensími svo eitthvað sé nefnt. Viðskipti innlent 17.2.2022 15:28
Skipulagsbreytingar hjá Landsvirkjun á sviði sölu og þjónustu Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Landsvirkjun í hópi stjórnenda á sviði sölu og þjónustu hjá fyrirtækinu en nýir forstöðumenn hafa verið ráðnir. Að því er kemur fram í tilkynningu um málið er um að ræða forstöðumenn viðskiptastýringar, viðskiptagreinar og þróun markaða, og viðskiptaþjónustu. Viðskipti innlent 17.2.2022 12:09