Stangveiði

Fréttamynd

Smíði nýrrar brúar yfir Þjórs­á boðin út

Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá á móts við þorpið Árnes hefur verið boðin út ásamt nýbyggingu Búðafossvegar. Brúarsmíðin og vegarlagningin boða einhverja mestu samgöngubyltingu í uppsveitum Suðurlands um áratugaskeið. Dæmi eru um að leiðir milli einstakra byggða í Árnes- og Rangárþingi styttist um yfir fimmtíu kílómetra.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast lög­banns við lax­veiðum Iðufólks í Stóru-Laxá

Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast.

Innlent
Fréttamynd

Ólafur hjá Morgun­blaðinu kærður til siða­nefndar BÍ

Ólafur E. Jóhannsson blaðamaður á Morgunblaðinu hefur verið kærður fyrir að hafa brotið siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Kærandi er Bergsnös ehf. og Finnur Harðarson forsvarsmaður félagsins en gerð er krafa um að viðurkennt verði að Ólafur hafi gerst brotlegur við siðareglurnar.

Innlent
Fréttamynd

„Elliða­árnar eru bakka­fullar af göngu­laxi“

Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur hefur fylgst grannt með gangi mála í laxveiðinni og hefur hann rannsakað Elliðaárnar um hríð. Þar fylgist hann meðal annars með laxateljurum og segir árnar „bakkafullar af göngulaxi“.

Innlent
Fréttamynd

Kærir Iðufólk fyrir líkams­árásir, þjófnað og hótanir

Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra.

Innlent
Fréttamynd

Dræm lax­veiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“

Fyrstu laxveiðitölur sem berast eru þannig að hroll setur að veiðimönnum og þeim sem hafa með villta laxinn að gera. Guðni Guðbergsson er sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun og hann neitar að spá fyrir um laxveiðisumarið – segist aðeins spá ef spáin sé góð.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Deila um veg­slóða fyrir Hæsta­rétt

Eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð hafa fengið leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar í deilu um vegslóða til réttarins. Málið er einn angi mikilla deilna landeigenda við leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá.

Innlent
Fréttamynd

Skólp og klór frá Hvera­gerði gerir Ölfusingum lífið leitt

Íbúar í Ölfusi eru langþreyttir á mengun í Varmá sem kemur frá nágrönnum þeirra í Hveragerði. Skólplykt leggur yfir íbúðahverfi í Ölfusi og fiskar hafa drepist í ánni vegna klórs frá sundlauginni í Laugaskarði. Bæjaryfirvöld tilkynntu ekki um klórslys sem varð í vor fyrr en daginn eftir að það átti sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Tólf eldislaxar fundust í sex ám

Erfðagreining á 34 löxum hefur leitt í ljós að tólf þeirra reyndust eldislaxar. Eldislaxarnir veiddust í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá, Blöndu, Reykjadalsá í Borgarfirði og Miðfjarðará.

Innlent
Fréttamynd

Sjö eldis­laxar fundist í fjórum ám

Erfðagreining á 22 löxum úr fjórum ám sem bárust Hafrannsóknastofnun leiddi í ljós að sjö þeirra væru eldislaxar. Sex þeirra eru taldir koma úr fiskeldi í Dýrafirði en uppruni eins er tilrannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Staðan ekki al­var­leg í Hauka­dals­á

Hrönn Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, segir fjölda eldislaxa í Haukadalsá undir þeim mörkum sem teljast alvarleg. Fjögur prósent veiddra laxa í tiltekinni á þurfa að vera eldislaxar til að hættuástand skapist vegna erfðablöndunar.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hluti hefur á­hyggjur af laxa­stofninum nema í fjörðunum

Rúmur helmingur svarenda í skoðanakönnun segist hafa miklar áhyggjur á því að íslenski laxastofninn sé í hættu. Afgerandi munur er hins vegar á afstöðu eftir landhlutum. Íbúar á Vestfjörðum og Austurlandi þar sjóeldi á laxi er mest stundað hafa áberandi minnstar áhyggjur af stofninum.

Innlent
Fréttamynd

Andaðu ró­lega elskan...

Framkvæmdastjóri SFS, skrifaði nýlega grein þar sem hún leggur til að við sýnum stillingu og „öndum rólega“ þegar eldislax finnst í íslenskum ám.

Skoðun
Fréttamynd

Öndum ró­lega – á meðan húsið brennur

Nokkuð erfitt var að lesa grein framkvæmdastjóra SFS hér á Vísi í gær sem sett var fram af talsverðu yfirlæti. Þar var bændum og veiðiréttarhöfum sagt að „anda rólega“. Anda rólega á meðan framandi eldislaxar hellast upp í laxveiðiár landsins og ógna villtum laxastofnum og lífsviðurværi fjölda fólks.

Skoðun
Fréttamynd

Vara við eldislax í Hauka­dals­á

Íslenski náttúruverndarsjóðurinn varar við strokulax í Haukadalsá og segir að fjöldi stórra laxa allt að 90 sentímetrar að stærð hafi fundist neðarlega í ánni.

Innlent