„Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Jakob Bjarnar skrifar 13. júlí 2026 11:36 Lætin í göngunni í nótt voru slík að ef áframhald laxgengdarinnar þennan sólarhring verður í þeim takti þá er líklegt að nýtt sólarhringsgöngumet skili sér í lok dags, segir Jóhannes Sturlaugsson sem hefur lengi fylgst með Elliðaám. vísir/ívar fannar Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur hefur fylgst grannt með gangi mála í laxveiðinni og hefur hann rannsakað Elliðaárnar um hríð. Þar fylgist hann meðal annars með laxateljurum og segir árnar „bakkafullar af göngulaxi“.
Jóhannes segir að á 12 klukkustunda kafla, eða allt frá klukkan fimm í gær til klukkan fimm í morgun, hafi 572 laxar gengið upp árnar. „Þannig að nánast einn lax að meðaltali gekk upp um fiskteljarann í Elliðaárdalnum á hverri mínútu þann hálfa sólarhring. Í gær féll sólarhringsmetið frá 2024 þegar 466 laxar gengu upp fiskteljarann í Elliðaánum.“ Laxinn beinlínis tróðst í gegnum teljarann í nótt.Jóhannes Sturlaugsson Jóhannes bætir því við að til viðbótar þessari laxagengd hafi átta sjóbirtingar farið upp teljarann í gær og fjórir til viðbótar í nótt. Þetta eru góðar fréttir en samkvæmt veiðitölum á angling.is, sem er vefur Landssambands veiðifélaga, hefur byrjunin á laxveiðisumrinu ekki verið upp á marga fiska. En nú virðist laxinn mættur svo um munar. Og það sýna nýjustu tölur á angling. Jóhannes birti meðfylgjandi mynd á vef Stangveiðimanna. „Elliðaárnar krauma því hreinlega af laxi sem nýgenginn úr sjó er á leið sinni upp árnar. Líkt og tölurnar sýna þá fór fjöldi þessara göngulaxa í hæstu hæðir í gær og enn bætti í fjöldann í nótt. Lætin í göngunni í nótt voru slík að ef áframhald laxgengdarinnar þennan sólarhring verður í þeim takti þá er líklegt að nýtt sólarhringsgöngumet skili sér í lok dags,“ segir Jóhannes.
Lax Stangveiði Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira