Bandaríkin

Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn
Þráinn Hafstein Kristjánsson, athafnamaður, tónlistarmaður og veitingastjóri, er látinn, 84 ára gamall. Hann lést 2. október síðastliðinn og verður jarðsettur þriðjudaginn 8. október í Steinbach í Manitoba.

Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi
Bandaríski stórleikarinn Al Pacino segist hafa verið nær dauða en lífi árið 2020 þegar hann var smitaður af Covid-19.

Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu
Bandaríska söngkonan Dolly Parton tilkynnti á föstudag að hún ætlar að gefa eina milljón Bandaríkjadala í hjálparstarf vegna fellibylsins Helenu sem reið yfir Bandaríkin í síðustu viku.

Sneri aftur á vettvang banatilræðisins
Donald Trump sneri aftur til Butler í Pennsýlvaníu þar sem honum var veitt banatilræði í sumar. Auðjöfurinn Elon Musk steig á svið með svarta MAGA-derhúfu á höfðinu.

Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi
Athafnakonan Kim Kardashian vill að Menendez bræðrunum sem myrtu foreldra sína árið 1989 verði veitt frelsi. Hún segir þá vera breytta menn í dag. Nýjar vísbendingar í máli þeirra gæti orðið til þess að mál þeirra verði tekið upp að nýju.

Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur
Nokkrum dögum áður en stuðningsmenn hans ruddu sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna til að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020 og hótuðu meðal annars að hengja Mike Pence, varaforseta, sagði Donald Trump, forseti, Pence að hann yrði „fyrirlitinn“ og talinn „heimskur“ ef hann stöðvaði ekki áðurnefnda staðfestingu. Pence hafði aldrei vald til að gera það en Trump þrýsti ítrekað á hann.

Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku
Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, verður á faraldsfæti í barátturíkjunum í næstu viku til að hvetja fólk til að kjósa Kamölu Harris í forsetakosningunum í nóvember.

Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols
Þrír fyrrverandi lögregluþjónar í Memphis í Bandaríkjunum voru sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Tyre Nichols. Þeir voru þó sakfelldir fyrir að hafa áhrif á vitni í málinu og einn þeirra var sakfelldur fyrir að brjóta á réttindum Nichols.

Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna
Samkomulag hefur náðst á milli stéttarfélaga hafnarverkamanna og eigenda hafna um að binda enda á þriggja daga langt verkfall sem hefur stöðvað skipaflutninga til stórra hafna á austurströnd Bandaríkjanna og við Mexíkóflóa.

Bandarískir kaþólikkar efndu til mótmæla við Páfagarð
Efnt var til mótmæla við Páfagarð í gær þar sem mótmælendur breiddu meðal annars úr fimmtán metra löngu bútasaumsteppi með sögum kaþólskra kvenna sem hafa gengist undir þungunarrof.

21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt
Kona af ættbálki Jasída, sem liðsmenn Ríkis íslam rændu fyrir tíu árum í Írak, þegar konan var aðeins 11 ára gömul, hefur verið bjargað úr prísund sinni á Gasa.

Tapsár Jordan lögsækir NASCAR
Michael Jordan hefur lögsótt bandarísku aksturskeppnina NASCAR eftir langvinnar deilur. Lögsóknin er sögð geta haft sögulegar afleiðingar, og breytingar í för með sér.

Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja
Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon.

Hinn langi USArmur Ísraels
Að þessu sinni hófst ófriðurinn með innrás Hamas í Ísrael 7. okt.´23. Þeir drepa þar meira en 1200 manns og taka yfir 200 gísla, segjast vera að minna á mál Palestínu sem þeim virtust gleymd.

Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn.

Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu
„Hvað með það?“ er Donald Trump sagður hafa svarað þegar honum var sagt að Mike Pence, varaforseti hans, hefði þurft að flýja undan æstum múgi sem réðst á bandaríska þinghúsið. Þetta kemur fram í gögnum úr rannsókn á árásinni sem voru lögð fram í gær.

Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna
Melania Trump, eiginkona Donald Trump, tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og rétti kvenna til að ráða yfir eigin líkama í nýrri ævisögu sinni. Bókin kemur út um það bil mánuði eftir forsetakosningarnar.

Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry
Læknir sem ákærður er fyrir að hafa átt þátt í fíkniefnatengdum dauða leikarans Matthew Perry hefur játað sök í málinu.

Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn
Francis Bean Cobain dóttir tónlistarmannsins Kurt Cobain og Riley Hawk sonur hjólabrettagoðsagnarinnar Tony Hawk hafa eignast sitt fyrsta barn saman. Um er að ræða strák sem kom í heiminn 17. september.

Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin
Bandaríska fréttavefsíðan Axios hefur eftir háttsettum embættismanni í Ísrael að þarlend yfirvöld kunni að hefna fyrir umfangsmikla árás Íran í gær með árás á olíuframleiðslu Írana og aðra mikilvæga innviði.

Leikarinn John Amos látinn
Bandaríski leikarinn John Amos er látinn, 84 ára að aldri. Hann átti langan og farsælan feril sem leikari þar sem hann fór meðal annars með hlutverk hins fullorðna Kunta Kinte í þáttunum Roots og illmennisins Major Grant í Die Hard 2.

Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum
Varaforsetaefnin J.D. Vance og Tim Walz mættust í kappræðum í New York í gær, sem stjórnmálaskýrendur virðast sammála um að hafi verið óvenju kurteisar og fremur óspennandi.

Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar
Vísindakonan og ofurskvísan Áshildur Friðriksdóttir er 28 ára gömul og stundar doktorsnám í hinum eftirsótta og virta háskóla Stanford í Kaliforníu. Hún sér framtíðina fyrst og fremst fyrir sér á rannsóknarstofunni að skoða kristalbyggingar í smásjánni. Samhliða því hefur hún mikla ástríðu fyrir tísku og hætti í listaháskólanum Parsons í New York til þess að færa sig yfir í verkfræðina.

Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn
Þeir Tim Walz og JD Vance, varaforsetaefni þeirra Kamölu Harris og Donalds Trump, mætast í þeirra fyrstu og líklega síðustu kappræðum í kvöld. Kosningabaráttan virðist í járnum, ef marka má kannanir og berjast framboðin af mikilli hörku um hvert atkvæði.

Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega
Forsvarsmenn ísraelska hersins hafa ákveðið að kalla út fjögur stórfylki af varaliði vegna átakanna við landamærin Ísrael og Líbanon. Hermennirnir eiga að verða sendir að landamærunum en Ísraelar hafa verið að gera loftárásir og áhlaup yfir landamærin þar sem sérsveitarmenn eru sagðir hafa farið inn í göng og hella sem eiga að hafa verið í notkun af vígamönnum Hezbollah.

Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, heldur í dag upp á hundrað ára afmæli sitt en hann hefur verið í líknandi meðferð í tæplega tvö ár. Forsetinn fyrrverandi hefur fengið kveðjur víðsvegar að úr heiminum.

Draumkennt brúðkaup á Sardiníu
Ástralska leikkonan Rebel Wilson og Ramona Agruma giftu sig undir berum himni á ítölsku eyjunni Sardiníu síðastliðinn laugardag. Hjónin deildu fallegum myndum frá brúðkaupsdeginum á Instagram.

Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun
Herforingi í flugher Bandaríkjanna segir rússneska flugmenn hafa hagað sér mjög ófagmannlega þegar bandarískir flugmenn flugu að fjórum rússneskum herflugvélum nærri Alasaka. Flugvélarnar fjórar sáust á ratsjám þann 23. september og voru flugmenn sendir til móts við þær.

„Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu
Neyðarástand ríkir víða í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Helena olli þar „fordæmalausum“ hörmungum. Úrhellið sem fylgdi Helenu olli þar stórum skyndiflóðum og aurskriðum og eru minnst 37 dánir en búist er við að talan muni hækka enn frekar.

Ekki lengur undir sérstöku eftirliti
Tónlistarmaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy, er ekki lengur undir sérstöku eftirliti, svokallaðri sjálfsvígsvakt. Þetta segir lögmaður tónlistarmannsins sem nú er í haldi lögreglu vestanhafs vegna meintrar skipulagðrar glæpastarfsemar, mansals, mútuþægni og kynferðisbrota.