Bandaríkin

Barr vill flytja Bítla ISIS til Bandaríkjanna
Hermenn Bandaríkjanna munu afhenda alræmda vígamenn Íslamska ríkisins til yfirvalda Íraks. Um er að ræða tæplega 50 ISIS-liða sem fluttir voru úr haldi sýrlenskra Kúrda eftir innrás Tyrkland á yfirráðasvæði þeirra í Sýrlandi.

Árásarmaðurinn í El Paso lýsir yfir sakleysi sínu
Bandaríkjamaðurinn Patrick Crusius, sem var handtekinn og ákærður fyrir að hafa myrt 22 og sært 24 aðra í skotárás í verslun Walmart í borginni El Paso í Texas, lýsti yfir sakleysi sínu í réttarsal í dag.

Orkumálaráðherra Bandaríkjanna sér á báti við Hringborð norðurslóða
Orkumálaráðherra Bandaríkjanna nefndi loftslagsbreytingar ekki á nafn í ávarpi sínu við setningu Hringborðs norðurslóða í dag en skaut föstum skotum að ríkjum sem hann sagði boðflennur á norðurslóðum. Forystufólk annarra ríkja lagði hins vegar áherslu á að þjóðir heims tækju höndum saman til að vinna gegn loftslagsbreytingunum.

Tveir samverkamenn Giuliani vegna Úkraínu handteknir
Mennirnir tveir aðstoðuðu persónulegan lögmann Trump forseta við að koma á fundum við úkraínska embættismenn sem þeir vildu að fyndu skaðlegar upplýsingar um pólitískan mótherja forsetans.

Forseti Úkraínu neitar því að Trump hafi reynt að kúga sig
Hann segist ekki hafa vitað af því að Trump hefði stöðvað hernaðaraðstoð fyrr en eftir símtal þeirra sem hratt af stað rannsókn Bandaríkjaþings á Trump.

Tyrkir sækja dýpra inn í Sýrland
Ólíkum sögum fer af árangri hersveita Tyrkja í árás þeirra á Kúrda.

Segir Bandaríkjastjórn ekki hafa verið samþykka innrásinni
Mike Pompeo reynir nú að verja þá ákvörðun Donald Trump forseta um að kalla bandaríska hermenn frá svæðinu.

Bleik og blóði drifin dragt
Jackie Kennedy, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, er ein áhrifamesta tískufyrirmynd 20. aldar. Ein þekktasta flíkin sem Jackie klæddist á sér þó grafalvarlega sögu.

Bítlar ISIS í haldi Bandaríkjanna
Tveir breskir vígamenn Íslamska ríkisins sem kallaðir hafa verið "Bítlarnir“ eru nú í haldi Bandaríkjamanna. Þeir hafa verið fluttir úr haldi sýrlenskra Kúrda vegna innrásar Tyrkja í norðausturhluta Sýrlands.

Gekk til móður sinnar í beinni útsendingu
Sonur fréttakonunnar Courtne Kube gekk inn á sjónvarpssett hennar þegar hún var í beinni útsendingu á MSNBC í kvöld.

Hefur litlar áhyggjur af flótta ISIS-liða til Evrópu
Hersveitir Tyrkja hafa gert innrás í norðausturhluta Sýrlands eftir loftárásir og stórskotaliðsárásir í dag. Nú í kvöld voru hermenn og sveitir hliðhollar Tyrkjum sendar yfir landamærin.

Var gripinn glóðvolgur við að leka hernaðarleyndarmálum til fjölmiðla
Henry Kyler Frese, starfsmaður leyniþjónustu herafla Bandaríkjanna (e.Defense Intelligence Agency), hefur verið handtekinn og er sakaður um að hafa lekið hernaðarlega mikilvægum leynigögnum til tveggja blaðamanna. Brotin er sögð hafa verið framin í ár og í fyrra.

Segir Trump hafa svikið Bandaríkin
Joe Biden hefur í fyrsta sinn kallað eftir því að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, verði ákærður fyrir embættisbrot.

Kúrdar segja Tyrki ráðast gegn óbreyttum borgurum
Evrópskir leiðtogar fordæma innrásina og hvetja Tyrki til stillingar.

Rick Perry mættur til Íslands
Rick Perry, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, er kominn til landsins og sótti heim höfuðstöðvar HS Orku í Svartsengi eftir hádegið í dag.

Yngsta fórnarlamb rafreykinga sautján ára gamall drengur
Rúmlega tuttugu manns hafa látið lífið í Bandaríkjunum af völdum dularfulls lungasjúkdóms sem virðist tengjast rafreykingum.

Tyrkir reiðubúnir að halda inn í Sýrland "innan skamms“
Bandaríkjaher hefur kallað hersveitir sínar til baka frá norðurhluta Sýrlands. Talsmenn Kúrda hafa hótað "allsherjarstríði“ gangi áætlun Tyrklandshers eftir.

Fá Nóbelsverðlaun fyrir þróun litínjónarafhlaðna
John B. Goodenough, M. Stanley Whittingham og Akira Yoshino hljóta Nóbelsverðlaun í efnafræði í ár fyrir þróunina á litínjónarafhlöður.

Kaliforníubúar búa sig undir rafmagnsleysi
Er ætlunin að taka rafmagnið af um 800 þúsund heimilum, verslunum og skólum í tilraun til að koma í veg fyrir mögulega kjarrelda.

Trump lýsir yfir stríði við þingið
Ríkisstjórn Donald Trump ætlar ekki á nokkurn hátt að starfa með þingmönnum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á nokkurn hátt og lögmaður forsetans segir ákæruferlið gegn forsetanum vera ólögmætt.

Varpa frekara ljósi á starfsemi „Tröllaverksmiðju“ Rússa
Þingmenn bæði Repúblikanaflokksins og Demókrataflokksins kalla eftir því að þingið, Hvíta húsið og tæknifyrirtæki Bandaríkjanna komi í veg fyrir að samfélagsmiðlar verði notaðir til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári.

Styttist í afdrifaríka ákvörðun um réttindi hinsegin fólks í Bandaríkjunum
Hæstiréttur Bandaríkjanna er nú að taka það fyrir hvort lög sem banna mismunun á vinnustöðum eigi líka við hinsegin fólk, þar á meðal samkynhneigða og trans einstaklinga.

Biles sigursælust í sögu HM
Simone Biles er orðin sigursælasta fimleikakonan á HM í sögunni eftir að hafa unnið til verðlauna með bandaríska liðinu á HM í Stutgart í dag.

Einn æðsti leiðtogi al-Qaeda drepinn í aðgerðum Bandaríkjanna og Afganistan
Einn æðsti leiðtogi al-Qaeda var drepinn í sameiginlegri hernaðaraðgerð Afganistan og Bandaríkjanna í síðasta mánuði. Þetta segir í tilkynningu frá leyniþjónustu Afganistan (NDS).

Utanríkisráðherra segir ákvörðun Trumps vera áhyggjuefni: „Þarf oft ekki mikið til þess að kvikni í púðurtunnu“
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, segir að ákvörðun Bandaríkjaforseta að draga um þúsund bandaríska hermenn frá Sýrlandi og gera Tyrkjum þannig kleift að herja á Sýrlenska Kúrda sé mikið áhyggjuefni.

Telja rússneska leynisveit reyna að valda óstöðugleika í Evrópu
Vestrænar leyniþjónustur hafa tengt fjórar aðgerðir við sömu rússnesku leyniþjónustusveitina, þar á meðal taugaeiturstilræðið á Englandi í fyrra.

Stefnubreyting Trump í Sýrlandi verður rædd í ríkisstjórn
Ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að draga um þúsund hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi og gera Tyrkjum þannig kleift að herja á sýrlenska Kúrda, Verður tekin upp á vettvangi ríkisstjórnar Íslands.

Banna lykilvitni að koma fyrir þingnefnd
Sendiherra Bandaríkjanna gagnvart ESB sem sá um samskipti Trump-stjórnarinnar við Úkraínu ber ekki vitni í dag eins og til stóð samkvæmt ákvörðun utanríkisráðuneytisins.

Otuðu sínum tota á meðan Trump sakaði Biden um spillingu
Bandarískir athafnamenn notfærðu sér tengsl við Trump forseta og lögmann hans til að reyna að koma ár sinni fyrir borð hjá stóru úkraínsku orkufyrirtæki.

„Eins og að láta NASA ekki vita af því að þú ætlir að sprengja tunglið í loft upp“
Spjallþáttastjórnendur í Bandaríkjunum gerðu sér í nótt mat úr nýjust ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að draga um þúsund hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi.