Kvennafrídagurinn
1 2 ›
Bætum fleiri stólum við borðið Í ár fögnum við fimmtíu ára afmæli kvennafrídagsins sem eru stór tímamót í sögu jafnréttisbaráttunnar á Íslandi. Við megum svo sannarlega vera stolt af því hve langt við höfum náð. Skoðun 23.10.2025 13:32
Gagnrýna lítinn fyrirvara á skipulagi kvennafrídagsins Samtök atvinnulífsins gagnrýna breytingu á kvennafrídeginum á morgun þar sem konur og kvár séu nú með nær engum fyrirvara hvött til að leggja niður störf allan daginn. Þá minna þau á að engin skylda hvíli á atvinnurekendum að greiða laun í fjarvistum enda í misgóðri aðstöðu til að missa starfsfólk úr vinnu. Innlent 23.10.2025 13:03
Hvers virði er starfsleyfið okkar? Stundin er runnin upp! Þann 24. október eru 50 ár liðin frá kvennafrídeginum 1975 en þá þustu konur þessa lands út á göturnar, kröfðust launajafnréttis og að störf þeirra, launuð jafnt sem ólaunuð yrðu metin að verðleikum. Skoðun 23.10.2025 13:00
„Við finnum fyrir mikilli spennu frá heimsbyggðinni“ Augu heimsbyggðarinnar beinast að Kvennaverkfallinu sem boðað hefur verið á Íslandi á morgun. Þetta segir verkefnastýra Kvennaárs en boðað hefur verið til baráttufunda um allt land. Innlent 23.10.2025 12:56
Halla tekur sér frí og vill að karlmenn axli ábyrgð Halla Tómasdóttir forseti Íslands ætlar að taka sér frí á morgun til að standa með systrum sínum og bræðum gegn ofbeldi. Hún segir brýnt að kalla eftir enn virkari þátttöku karla og drengja í jafnréttisbaráttunni. Innlent 23.10.2025 10:30
Ég hef… Ég hef…orðið fyrir kynbundnu ofbeldi, …gengið heim í myrkri með lykil í lófanum. Skoðun 23.10.2025 07:33
Kröfur kvennaárs komnar í innheimtu og gjalddaginn fallinn Inga Auður Straumland, verkefnastýra Kvennaárs, segir skipulagningu ganga vel fyrir kvennaverkfall á föstudag en viðurkennir að verkefnalistinn sé nokkuð langur. Síðustu sjö daga hefur hnefa verið varpað á byggingar á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðin er táknræn og á að varpa ljósi á kröfur kvennaárs sem voru lagðar fram á kvennafrídeginum í fyrra. Innlent 22.10.2025 23:31
„Pylsusala“ á Lækjartorgi á kvennafrídaginn „Síðustu árin höfum við selt boli en í ár ákváðum við að breyta til og búa til klút - fyrir kvennaforsetann okkar, Höllu Tómasdóttur, sem hefur skapað tískustraum fyrir okkur og allar konur,“ segir Elísabet Gunnarsdóttir ein af konunum á bak við verkefnið Konur eru konum bestar. Lífið 22.10.2025 11:14
Klórar sér í kollinum yfir kvennaverkfallinu Fyrrverandi þingmaður segist ekkert skilja í því að konur eigi að fá auka frídag á föstudag þegar kvennaverkfall er boðað á fimmtíu ára afmæli þess fyrsta. Hún segist ekki myndu vilja reka fyrirtæki á Íslandi í dag. Innlent 22.10.2025 10:48
Hálfsdagslokun leikskóla skyndilega orðin að heilsdagslokun Leikskólar Reykjavíkurborgar verða sumir lokaðir allan daginn á föstudag vegna kvennafrídagsins. Foreldrum barna á leikskólunum var tilkynnt í síðustu viku að þeir yrðu lokaðir seinni hluta dags. Innlent 22.10.2025 10:38
Skýrt ákall um heilsdagsverkfall á kvennafrídegi í ár Á föstudag eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem og ólaunuð störf eins og konur gerðu fyrst árið 1975 þegar fyrsti kvennafrídagurinn var haldinn. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir hafa verið ákall um heilsdagsverkfall og því sé slíkt verkfall boðað í ár. Hún segir sérstaklega horft til kvenna í æðri stöðum og að hún voni að öllum verði gert kleift að taka þátt sem það vilja. Innlent 21.10.2025 23:42
Máttu neita karlmanni um leyfi í kvennaverkfalli Kærunefnd jafnréttismála telur að Íslenskar orkurannsóknir, Ísor, hafi mátt mismuna karlmanni á grundvelli kyns, með því að veita honum ekki leyfi til þess að taka þátt í kvennaverkfalli. Leyfi frá störfum sem konum og kynsegin fólki var veitt til að taka þátt hafi verið sértækar aðgerðar sem fælu ekki í sér brot gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Innlent 21.10.2025 14:12
Komið gott! Samkvæmt rannsókninni Áfallasaga kvenna hafa um 40% kvenna á Íslandi hafa orðið fyrir einhvers konar ofbeldi á lífsleiðinni. Staðan er enn verri hjá transfólki, kvárum, konum með fötlun og konum af erlendum uppruna en þeir hópar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir mismunun og valdbeitingu. Skoðun 21.10.2025 06:01
Götulokanir vegna kvennaverkfalls Götulokanir verða í gildi í miðborg Reykjavíkur vegna kvennaverkfallsins föstudaginn 24. október. Hluti miðborgarinnar verður lokaður akandi umferð frá tíu að morgni til fimm síðdegis. Innlent 20.10.2025 11:35
Verulega skert þjónusta vegna kvennaverkfalls Reikna má með að starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verði verulega skert föstudaginn 24. október næstkomandi vegna boðaðs kvennaverkfalls. Heilsugæslustöðvar verða opnar en munu eingöngu sinna bráðum erindum þennan dag. Innlent 20.10.2025 08:06
„Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upplifa svona rosalegt bakslag“ Drífa Snædal, talskona Stígamóta, og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, eru sammála um að þó svo að í dag sé bakslag í jafnréttisbaráttu hafi verið stigin afar stór skref síðustu ár. Það séu nýjar áskoranir í nýjum tegundum ofbeldis og nýjum kynslóðum gerenda, en þær séu vel tilbúnar að takast á við slíkar áskoranir. Innlent 20.10.2025 06:47
Samtal um launajafnrétti og virðismat starfa í tilefni af Kvennaári Þann 24. október eru liðin 50 ár frá Kvennafrídeginum þegar konur hér á landi lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags síns. Staða kvenna á vinnumarkaði var langt frá því jöfn á við stöðu karla á þeim tíma. Störf þeirra voru vanmetin sem leiddi til þess að laun þeirra voru lægri. Skoðun 16.10.2025 18:15
Munum eftir baráttu kvenna alltaf og alls staðar Þær ruddu brautina og sýndu fram á alvöru hugtaksins jafnrétti með því að taka til óspilltra málanna, halda ráðstefnu og skipuleggja kvennfrí eða kvennaverkfall eins og það var í raun. Skoðun 13.10.2025 09:02
Boða aftur til kvennaverkfalls fimmtíu árum eftir það fyrsta Framkvæmdastjórn Kvennaárs hefur boðað til kvennaverkfalls þann 24. október þegar fimmtíu ár eru frá því að fyrsti kvennafrídagurinn var haldinn á Íslandi. Farið verður í sögugöngu og efnt til útifundar á Arnarhóli og víðar um land. Viðburðurinn er frá 14 til 16. Innlent 9.10.2025 09:12
Heiður að fá að segja sögu kvennanna sem ruddu brautina Linda Ólafsdóttir, rit- og myndhöfundur, opnar um helgina sýninguna Ég þori! Ég get! Ég vil! á Borgarbókasafninu í Grófinni. Á sýningunni verður hægt að sjá frummyndir og skissur úr bókinni sem kom út árið 2023. Myndirnar hafa áður verið sýndar í New York og á bókahátíðinni í Bologna á Ítalíu. Menning 2.10.2025 11:01
Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Aðstandendur Kvennaárs blása til Kvennavöku að kvöldi dags í Hljómskálagarðinum þann 19. júní, á morgun. Tilefnið er meðal annars 110 ára afmæli kosningarréttar kvenna, en árið í ár hefur verið skilgreint sem sérstakt Kvennaár, þar sem ýmissa sögulegra tímamóta er minnst og kröfur um fullnaðarjafnrétti settar fram. Lífið 18.6.2025 12:12
Frekar ætti að styrkja forvarnir en reisa minnisvarða um þolendur ofbeldis Samtökin Stígamót, Hagsmunasamtök brotaþola og W.O.M.E.N samtök kvenna af erlendum uppruna leggjast öll gegn því að reistur verði minnisvarði fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis. Tillögu Vinstri grænna um minnisvarðann hefur nú verið vísað til borgarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Innlent 12.6.2025 06:19
Plottað um heimsyfirráð eða dauða Blásið verður til Kvennaárs með dansveislu í Iðnó í kvöld. Í ár eru fimmtíu ár liðin frá Kvennafrídeginum og í tilefni þess verður allt árið verður lagt undir jafnréttisbaráttu að sögn formanns BSRB. Tugir samtaka standa að viðburðinum. Innlent 30.1.2025 11:47
49 ár Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna helgaði árið 1975 stöðu kvenna. Af því tilefni tóku kvenfélög og kvennasamtök hér á landi höndum saman og skipulögðu viðburði til að koma kröfum kvenna um jafnrétti á framfæri. Tillaga um að konur legðu niður störf á degi Sameinuðu þjóðanna þann 24. október var ein þeirra. Skoðun 24.10.2024 13:02
Allt næsta ár undir til að halda byltingunni áfram Hátt í fjörutíu samtök munu í dag afhenda formönnum stjórnmálaflokkanna kröfugerð og krefjast aðgerða svo ná megi fullu jafnrétti. Stefnt er að fjölbreyttri dagskrá allt næsta ár, þegar 50 ár verða liðin frá fyrsta Kvennafrídeginum. Innlent 24.10.2024 11:49
Við ætlum áfram, ekki afturábak Á næsta ári verða liðin 50 ár frá kvennaverkfallinu árið 1975, þegar konur úr öllum samfélagshópum lögðu niður vinnu og stóðu saman með það að markmiði að berjast fyrir bættri stöðu og kjörum kvenna. Tilefnið var ærið, enda voru réttindi og staða kvenna á vinnumarkaði langtum verri en nú er. Skoðun 24.10.2024 11:15
Karlar á jeppum og því er snjóruðningur góður Talsverð vinna hefur verið lögð í það í fjárlögum að finna út hvaða áhrif lögin hafa á jafnrétti kynjanna. Þannig er að finna sérstakan kafla í frumvarpi til fjáraukalaga þar sem gerð er grein fyrir þessari vinnu og niðurstöðum hennar. Innlent 24.10.2024 10:24
Ómissandi fjársjóður! Ómissandi fjársjóður! Kvenréttindadagurinn mikli er í dag og tilvalið að ræða stöðu innflytjendakvenna, kvenna af erlendum uppruna. Konur af erlendum uppruna í atvinnulífinu á Íslandi eiga betra skilið. Skoðun 24.10.2024 07:16
Eltu kærustupar grunað um græsku um miðbæinn á kvennafrídaginn Karl og kona hafa hvort um sig fengið árslangan fangelsisdóm fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Parinu var gefið að sök að gera tilraun til að taka við tæplega 1,1 kílói af kókaíni sem kom með póstsendingu til landsins sem barst þann átjánda október í fyrra. Innlent 27.2.2024 14:26
Kvennaverkfallið var ekki uppskeruhátíð Fjórðungur þjóðarinnar svaraði ákalli skipuleggjenda Kvennaverkfallsins í ár og safnaðist saman á baráttufundum á Arnarhóli og nítján öðrum stöðum um allt land þann 24. október síðastliðinn. Skoðun 30.10.2023 12:31