Fjármálamarkaðir
6 7 8 9 10 11 12 … 12 ›
Arnór stýrir SIV eignastýringu sem fær starfsleyfi Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt SIV eignastýringu hf., dótturfélags tryggingafélagsins VÍS, starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða með viðbótarheimild til eignastýringar auk móttöku og miðlun fyrirmæla varðandi fjármálagerninga. Viðskipti innlent 14.6.2023 11:54
Sala á Norðurböðum bjarga ÍV frá umtalsverðu tapi Hefði Íslensk verðbréf ekki selt hlut sinn í Norðurböðum hefði félagið tapað 109 milljónum króna í fyrra. Salan gerði það að verkum að hagnaður ársins var 16 milljónir króna fyrir skatta. Eignir í stýringu félagsins, sem námu 104 milljörðum í árslok, drógust saman um tíu prósent við erfiðar markaðaðstæður en afkoma samstæðunnar var langt undir væntingum. Innherji 9.6.2023 16:05
Óviss framtíð rafmyntageirans undir smásjá eftirlitsstofnana Rafmyntageirinn er undir smásjá bandarískra fjármálayfirvalda sem aldrei fyrr eftir að tvær af stærstu rafmyntakauphöllum heims voru kærðar í byrjun vikunnar. Prófessor í fjármálum segir að rafmyntir gætu orðið ónothæfar í kjölfarið en rafmyntafjárfestir telur geirann standa áhlaupið af sér. Viðskipti innlent 8.6.2023 07:01
Seðlabankastjóri: Verðbólgan gæti hjaðnað hraðar en spár gera ráð fyrir Vísbendingar eru um að verðbólgan kunni að ganga hraðar niður en hagspár gera ráð fyrir, að sögn seðlabankastjóra, og vísar þar meðal annars til þess að hrávöruverðshækkanir erlendis eru að koma til baka auk þess sem væntingar eru um að gengi krónunnar eigi eftir að styrkjast. Hann segir til mikils að vinna að stigin verði frekari trúverðug skref í ríkisfjármálum til að ná niður verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði sem muni þá um leið lækka ávöxtunarkröfu langra ríkisbréfa. Innherji 7.6.2023 16:46
Önnur rafmyntamiðlun í sigti bandarískra yfirvalda Coinbase, stærsta rafmyntamiðlun Bandaríkjanna, er sakað um ólöglega starfsemi í kæru bandarískrar verðbréfaeftirlitsstofnunar. Sama stofnun stefndi Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims, fyrir aragrúa brota og blekkinga í gær. Viðskipti erlent 6.6.2023 15:40
Stærsta rafmyntakauphöll heims sögð hafa óhreint mjöl í pokahorninu Bandarísk eftirlitsstofnun sakar Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims, og stofnanda hennar um misferli með fjármuni fjárfesta, að starfa án tilskilinna leyfa og brot á aragrúa reglna um verðbréf. Brotunum svipar til þeirra sem komu ljós í rekstri keppinautarins FTX sem varð gjaldþrota í haust. Viðskipti erlent 6.6.2023 08:58
Lífeyrissjóðir mættu huga að „fleiri hólfum“ á skuldahlið bankanna Þrátt fyrir að vaxtakjör íslensku bankanna á nýlegum erlendum útgáfum hafi verið ein þau hæstu frá fjármálahruninu 2008 þá er það „rétt stefna“ að halda þeim mörkuðum opnum á tímum þegar aðstæður eru krefjandi, að sögn seðlabankastjóra. Það væri góð þróun ef íslensku bankarnir gætu farið að fjármagna sig innanlands til lengri tíma á nafnvöxtum en þá þyrftu lífeyrissjóðirnir að fara huga að „fleiri hólfum“ á skuldahlið bankanna. Innherji 1.6.2023 13:07
Að læra af mistökum: „Loksins hætta þeir þessu kjaftæði hugsaði starfsfólkið“ Það er einstaka sinnum sem við heyrum frábærar sögur um nýsköpunarfyrirtæki sem einfaldlega ná góðu flugi strax. Atvinnulíf 1.6.2023 07:00
Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir nærri fjóra milljarða frá áramótum Almennir innlendir verðbréfasjóðir hafa horft upp á nettó útflæði í hverjum mánuði frá áramótum samhliða áframhaldandi erfiðum aðstæðum á mörkuðum. Fjárfestar hafa þannig minnkað stöðu sína í hlutabréfasjóðum um 3,6 milljarða á fyrstu fjórum mánuðum ársins sem kemur til viðbótar við útflæði úr slíkum sjóðum upp á samtals átta milljarða á öllu árinu 2022. Innherji 31.5.2023 08:55
Mikil áskorun að ná 3,5 prósenta raunávöxtun með verðbólgu í hæstu hæðum Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) var með lökustu raunávöxtunina meðal stærstu sjóða landsins á árinu 2022 sem einkenndist af afar krefjandi aðstæðum á flestum eignamörkuðum. Sé litið til síðustu tíu ára hefur árleg raunávöxtun sömu lífeyrissjóða að jafnaði verið á bilinu 4,5 til 5,3 prósent en stjórnarformaður LSR varar við því að krafa um að sjóðirnir nái að skila ávöxtun yfir 3,5 prósenta viðmiðinu verði veruleg áskorun þegar verðbólgan er í hæstu hæðum. Innherji 29.5.2023 16:31
„Hættan við of samræmdar reglur á fjármálamarkaði er samræmið“ Ítrekaðar athugasemdir Seðlabanka Íslands og erlendra stofnana við stjórnarhætti lífeyrissjóða og áhættustýringu þeirra rista ekki nógu djúpt að sögn framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs. Hann varar við því að tilraunir til að endurskoða reglur um áhættustýringu hjá sjóðunum – í því skyni að samræma regluverkið á fjármálamarkaði – geti leitt til þess að allir bregðist við áhættu á sama hátt og þannig magnað upp áhættu á markaði. Innherji 26.5.2023 10:45
Peningastefnunefnd ætti að funda oftar í ljósi krefjandi aðstæðna Markaðurinn brást við meiri stýrivaxtahækkun en væntingar stóðu til með því að ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hækkaði og hlutabréf lækkuðu í verði. Verðbólguálag til skemmri tíma hækkaði um 20-30 punkta. Sérfræðingur á markaði bendir á að mögulega hafi stýrivaxtahækkunin verið hærri í ljósi þess hve langt er í næsta fund peningastefnunefndar og gagnrýnir að peningastefnunefnd skuli ekki funda mánaðarlega í ljósi krefjandi aðstæðna í hagkerfinu. Innherji 24.5.2023 18:39
Deloitte og EY vilja sameinast Deloitte á Íslandi og EY á Íslandi hafa átt í viðræðum um mögulegan samruna fyrirtækjanna. Sameinað fyrirtæki mun starfa undir merkjum Deloitte og vera hluti af alþjóðlegu neti þess. Innherji 17.5.2023 10:18
Arion fylgir á eftir Íslandsbanka með útgáfu upp á 300 milljónir evra Arion banki hefur klárað útgáfu á almennum skuldabréfum til hóps alþjóðlega fjárfesta fyrir samtals 300 milljónir evra, jafnvirði um 45 milljarðar króna, en vaxtaálagið var 407 punktar. Það er lítillega lægra álag en í sambærilegri skuldabréfaútgáfu Íslandsbanka í síðustu viku en vaxtakjör bankanna eru með þeim óhagstæðustu sem þeir hafa fengið frá fjármálahruninu 2008 og endurspegla erfiðar aðstæður á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum. Innherji 16.5.2023 17:13
Vísisjóðir með fulla vasa fjár eftir tímabil sem var „orðið hálf klikkað“ Íslenski vísisjóðir, sem söfnuðu metfjármunum í nýjustu sjóði sína 2021 þegar vextir voru sögulega lágir, eru enn stútfullir af fjármagni þrátt fyrir að hafa fjárfest í fyrirtækjum fyrir um þrettán milljarða króna á síðustu tveimur árum. Sjóðirnir starfa nú í gjörbreyttu umhverfi þar sem verðlagning á sprotafyrirtækjum hefur lækkað verulega og þrengt hefur að möguleikum þeirra til að afla sér fjármagns. Við erum að koma út úr tímabili sem var „orðið hálf klikkað,“ útskýrir sjóðstjóri, og eðlilega muni núna hægja á sölum á sprotafyrirtækjum. Innherji 15.5.2023 08:29
Horfur fyrir lánshæfi Íslands batna Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru staðfestar og horfur lánshæfis hans eru taldar hafa batnað í nýju mati alþjóðlegs matsfyrirtækis. Matið byggir á því að horfur í opinberum fjármálum og geta Íslands til að mæta áföllum haldi áfram að batna, mögulega umfram væntingar. Viðskipti innlent 13.5.2023 09:00
Útgáfan endurspeglar varkárni í tvísýnu efnahagsástandi Íslandsbanki ákvað að gefa út almenn skuldabréf í vikunni, þrátt fyrir óhagfellda þróun á skuldabréfamarkaði, í því skyni að byggja upp trú erlendra fjárfesta á bréfum íslenskra banka og til að sýna varkárni á tímum sem litast af viðvarandi markaðssveiflum. Innherji 12.5.2023 09:47
Forstjórarnir héldu báðir titlum sínum við samrunann Guðný Helga Herbertsdóttir og Haraldur Þórðarson verða bæði áfram forstjórar eftir sameiningu Vátryggingafélags Íslands (VÍS) og Fossa. Viðskipti innlent 5.5.2023 21:46
Hrun hjá Marel og feðgarnir töpuðu 7,5 milljörðum Verð á hlutabréfum Marel lækkaði í gær um 17,56 prósent og fór markaðsvirði félagsins úr 452 milljörðum niður í 381 milljarð. Eignarhlutur Eyrir Invest, stærsta hluthafinn í Marel, rýrnaði um 19,5 milljörða króna vegna lækkunarinnar. Hlutur tveggja stærsta eigenda Eyris, feðganna Þórðar Magnússonar og Árna Odds Þórðarsonar rýrnaði um 7,5 milljarða vegna lækkana gærdagsins. Viðskipti innlent 5.5.2023 10:33
Landsbankinn hagnaðist um 7,8 milljarða króna á fyrstu mánuðum ársins Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 nam 7,8 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 3,2 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2022. Viðskipti innlent 4.5.2023 13:37
Væntingar um traust ríkisfjármál vinna á verðbólgu Staðreyndin er sú að ef ríkissjóður er rekinn með halla, þá þarf hann að fjármagna þann halla með útgáfu nýrra skuldabréfa. Þannig eykst framboð ríkisskuldabréfa á markaði, sem aftur lækkar verð þeirra og leiðir til þess að vextir hækka. Eitt skýrasta dæmið um að tiltekt í ríkisfjármálum og trúverðug stefna hafi skilað vaxtalækkun var að finna í forsetatíð Bill Clintons, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Umræðan 4.5.2023 07:15
Kristrún vill að minnsta kosti Landsbankann eftir sem áður í eigu ríkisins Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fákeppnismarkað eins og Ísland þurfi að regluvæða: „Ástæðan fyrir því að ég og fleiri höfum talað fyrir því og fleiri að við höldum að minnsta kosti Landsbankanum í opinberri eigu er að við séum þá með einn banka sem er með opinbert viðmið um eðlilega arðsemi, eðlileg kostnaðarhlutföll.“ Innlent 3.5.2023 10:46
Stefnir í greiðsluþrot í júní verði skuldaþakið ekki hækkað Bandaríska alríkisstjórnin gæti lent í greiðsluþroti strax um mánaðamótin samþykki Bandaríkjaþing ekki að hækka svonefnt skuldaþak ríkisins í tæka tíð, að sögn Janet Yellen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Repúblikanar krefjast mikils niðurskurðar gegn því að þeir samþykki það. Erlent 2.5.2023 11:03
Sakar stjórnvöld um að tefla trúverðugleika ábyrgðar ríkisins í tvísýnu Með áformum sínum um að boða slit á uppgjöri ÍL-sjóðs með lagasetningu hafa íslensk stjórnvöld skapað óvissu sem á eftir að hafa „neikvæð áhrif á mun fleiri verkefni“ en sem snúa að gamla Íbúðalánasjóði, fullyrðir framkvæmdastjóri Gildis. Að sögn ráðgjafa lífeyrissjóðanna eru engin dæmi um sambærilegar aðgerðir meðal annarra Evrópuríkja nema þar sem um hefur verið að ræða neyðaraðstæður. Innherji 2.5.2023 07:01
„Funheitt“ hagkerfi kallar á aðra stóra vaxtahækkun Seðlabankans Nýlega birtar verðbólgutölur, mun hærri en greinendur höfðu vænst, ásamt öðrum hagvísum sem sýna mikinn þrótt í hagkerfinu þýðir að líkur eru á að vextir Seðlabankans verði hækkaðir í annað sinn í röð um 100 punkta síðar í þessum mánuði en verðbólguálag á skuldabréfamarkaði fer rísandi á nýjan leik. Áfram er mikill vöxtur í nýjum útlánum bankanna til atvinnufyrirtækja þrátt fyrir að fjármagnskostnaður hafi aukist verulega. Innherji 1.5.2023 11:27
JPMorgan taka yfir First Republic-bankann Búið er að selja bandaríska bankann First Republic til annars banka, JPMorgan, eftir að bankinn fór í greiðslustöðvun. Tekur JPMorgan nú við öllum eignum og skuldum First Republic. Viðskipti erlent 1.5.2023 09:45
Stoðir kaupa ráðandi hlut í Arctic Adventures Stoðir leiða hóp innlendra fjárfesta sem hafa gengið frá kaupum á samtals nærri helmingshlut í Arctic Adventures. Viðskiptin voru gerð eftir að fyrrverandi forstjóri félagsins nýtti sér forkaupsrétt og seldi áfram hlutina í Arctic Adventures til fjárfestingafélagsins sem er nú orðið stór eigandi í þremur ferðaþjónustufyrirtækjum. Innherji 28.4.2023 11:48
Þórður Magnússon hættir sem stjórnarformaður Eyris eftir 23 ára starf Þórður Magnússon hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn Eyris Invest. Hann hefur leitt félagið sem stjórnarformaður í 23 ár. Friðrik Jóhannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Burðarás, mun taka við sem stjórnarformaður fjárfestingafélagsins. Hann mun koma nýr inn í stjórnina ásamt Elínu Sigfúsdóttur, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans. Kristín Pétursdóttir, annar stofnandi Auðar Capital, mun ekki heldur gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Innherji 26.4.2023 15:04
Sjóðstjórar í ólgusjó þegar þeim var reitt þungt högg við verðhrun Alvotech Íslenskir hlutabréfasjóðir hafa orðið fyrir þungu höggi eftir að gengi Alvotech, sem þar til fyrir skemmstu var verðmætasta fyrirtækið á markaði, hefur fallið um 36 prósent á aðeins sjö viðskiptadögum. Sjóðir Akta, einkum vogunarsjóðir í stýringu félagsins, höfðu meðal annars byggt upp verulega stöðu á skömmum tíma sem nam vel yfir fimm milljörðum króna daginn áður en tilkynnt var um að FDA myndi ekki veita Alvotech markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sitt stærsta lyf að svo stöddu. Greining Innherja á umfangi innlendra fjárfesta og sjóða í hluthafahópi Alvotech leiðir meðal annars í ljós að skuldsetning að baki hlutabréfastöðum í félaginu virðist hafa verið fremur hófleg. Innherji 26.4.2023 12:06
Bankarnir bíða með óþreyju eftir sjálfbærri útgáfu ríkissjóðs Íslensku viðskiptabankanir bíða óþreyjufullir eftir því að ríkissjóður gefi út sitt fyrsta sjálfbæra skuldabréf sem myndi gagnast sem viðmið fyrir verðlagningu á sjálfbærum íslenskum skuldabréfum á erlendum mörkuðum. Engin ákvörðun hefur verið tekin um tímasetningu enda er ríkissjóður, sem uppfyllir alla lánsfjárþörf sína með útgáfu á innlendum markaði, ekki í neinum flýti. Innherji 24.4.2023 13:52