Tónleikar á Íslandi
4 5 6 7 8 9 10 … 10 ›
Huggulegt stefnumót með konunni endaði með söng uppi á sviði í Eldborg Það var margt um manninn í Eldborg síðastliðið laugardagskvöld þegar tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson hélt stórtónleika í tilefni af 60 ára afmæli sínu. Hallgrímur Ólafsson leikari, jafnan þekktur sem Halli Melló, tók lagið með Jóni en var það þó algjörlega óundirbúið og hafði Halli ekki hugmynd um það, fyrr en hann var kallaður upp á svið fyrir framan um 1500 tónleikagesti. Tónlist 24.4.2023 15:30
Backstreet kallarnir aldrei verið nánari og hlakka til að skoða Ísland Strákasveitin Backstreet Boys heldur tónleika í fyrsta sinn hér á landi á föstudag. Sveitin fagnaði þrjátíu ára afmæli 20. apríl. Einn meðlimur sveitarinnar segir þá aldrei hafa verið jafn góða vini og nú. Lífið 24.4.2023 07:01
Þakklátur að geta valið tónlistina fram yfir herinn Tónlistarmaðurinn Daniil hefur náð miklum árangri í íslenskum tónlistarheimi en hann var kosinn Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár og var að senda frá sér plötuna 600. Hann verður með stóra útgáfutónleika í Gamla Bíó á morgun, föstudagskvöld, þar sem öllu verður til tjaldað. Blaðamaður tók púlsinn á þessum 21 árs gamla rappara, sem byrjaði að gera tónlist fyrir fjórum árum síðan. Tónlist 20.4.2023 09:00
Hugmynd sem kviknaði eftir pílagrímsferð til New York „Mig langaði að gera þeirri tónlist sem ég hef samið á undanförnum árum góð skil,“ segir píanóleikarinn og tónskáldið Magnús Jóhann Ragnarsson, sem stendur fyrir fjögurra kvölda tónleikaseríu í Mengi og hefst hún á fimmtudagskvöld. Blaðamaður tók púlsinn á Magnúsi Jóhanni. Tónlist 19.4.2023 07:00
Leggja gervigras í Hljómskálagarðinum Framkvæmdir við að byggja upp viðburðarsvæðið í Hljómskálagarðinum hefjast á næstu dögum. Meðal þess sem verður gert er að leggja gervigras á völlinn. Búist er við því að framkvæmdum verði lokið fyrir menningarnótt. Innlent 18.4.2023 10:57
Hlakkar til að heimsækja Ísland: „Þetta verður tímamótakvöld“ Tónlistarmaðurinn Brian Littrell, einn af meðlimum Backstreet Boys, er væntanlegur hingað til lands á næstu dögum. Hann ætlar að verja nokkrum dögum í það að skoða landið áður en Backstreet Boys stígur á svið í Nýju-höllinni þann 28. apríl næstkomandi. Lífið 13.4.2023 12:15
Vök hitar upp fyrir Backstreet Boys Íslenska hljómsveitin Vök mun hita upp fyrir strákabandið Backstreet Boys í Nýju-Höllinni þann 28. apríl næstkomandi. Lífið 13.4.2023 10:31
Höfðar mál gegn meðlimi Backstreet Boys fyrir nauðgun Nick Carter, einum meðlimi hljómsveitarinnar Backstreet Boys, hefur verið stefnt fyrir nauðgun. Söngkonan Melissa Schuman sakar hann um að hafa beitt sig ofbeldi fyrir tuttugu árum. Hún steig fyrst fram með ásökunina árið 2017. Þá neitaði Carter sök og gerir hann það enn samkvæmt lögmanni hans. Erlent 12.4.2023 12:00
Hinstu skilaboðin voru þau að hafa áfram gaman „Ég held að þetta verði ógleymanlegt kvöld,“ segir Berglind Häsler, ekkja Svavars Péturs Eysteinssonar heitins, jafnan þekktur sem ástsæli listamaðurinn Prins Póló. Berglind, Björn Kristjánsson og Benni Hemm Hemm eru í listrænni stjórn Havarí og standa fyrir Hátíð hirðarinnar, stórum minningartónleikum fyrir Svavar Pétur á afmælisdegi hans 26. apríl næstkomandi. Blaðamaður ræddi við Berglindi. Tónlist 2.4.2023 07:00
Tuttugu ár í bransanum: „Af öllu sem ég hef skapað er ég stoltastur af börnunum mínum“ „Ég er búinn að vera að gera tónlist lengur en ég man eftir mér,“ segir tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr, jafnan þekktur sem Emmsjé Gauti. Hann er nú í óðaönn að skipuleggja tuttugu ára rappafmælis tónleika sína nú í vor í Gamla Bíó en árið 2002 kom hann fyrst fram og var það á Rímnaflæði. Blaðamaður hitti hann í kaffi og fékk að heyra nánar frá síðustu tuttugu árum. Tónlist 26.3.2023 08:00
Íhugar að setja mömmu sína á launaskrá „Nú fer hún að hætta í bankanum og þá þarf maður kannski bara að fara að setja hana á launaskrá. Svona fyrir að fylgjast með öllu og jafnvel „covera“ smá heima á vaktinni,“ segir Frikki Dór kíminn í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. Lífið 23.3.2023 13:00
Aflýsa Eistnaflugi vegna veirunnar Þungarokkshátíðin Eistaflug, sem haldin er árlega í Neskaupsstað, verður ekki haldin í ár vegna kórónaveirufaraldursins. Tónlist 21.3.2023 19:05
Sena og Concept Events sameinast Fyrirtækin Sena og Concept Events hafa gengið frá samkomulagi um kaup þess fyrrnefnda á því síðarnefnda. Við þetta munu fyrirtækin sameinast og bætast núverandi eigendur Concept Events í hluthafa- og stjórnendahóp Senu. Viðskipti innlent 16.3.2023 15:59
Sena tekur yfir Lewis Capaldi tónleikana Tónleikarnir með Lewis Capaldi sem fara fram í Laugardalshöllinni 11. ágúst næstkomandi hafa verið teknir yfir af Senu Live. Reykjavík Live sá áður um skipulagninguna. Tónleikunum var frestað síðasta sumar sólarhring áður en þeir áttu að hefjast. Lífið 15.3.2023 11:13
Streymisstríðið og Backstreet Boys Það er langbest að viðurkenna það bara. Backstreet Boys eru á leið til landsins og það hristir aðeins upp í farangursrýminu. Auðvitað rifjast upp eins og einn og einn slagari en sömuleiðis minningar um þá gömlu góðu daga þegar geisladiskakaup voru sennilega meginþorri vísitölu neysluverðs unglinga. Skoðun 14.3.2023 08:01
Þessi spila á Aldrei fór ég suður Ragga Gísla, FM Belfast og Bríet eru á meðal þeirra tónlistarmanna sem fram koma á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði 7.-8. apríl næstkomandi. Tónlist 7.3.2023 20:23
„Rússíbaninn heldur áfram“ Rafpopphljómsveitin Kvikindi ætlar sér að halda langþráða útgáfutónleika fyrir plötuna Ungfrú Ísland á Húrra 10. mars næstkomandi. Blaðamaður tók púlsinn á meðlimum sveitarinnar en það er sannarlega viðburðaríkt ár að baki hjá þeim. Tónlist 6.3.2023 15:30
Nánast uppselt á ferna tónleika þrátt fyrir engar auglýsingar Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, mun halda ferna tónleika í Háskólabíó 10. og 11. mars. Ingó segir 3700 af 4000 miðum selda sem er athyglisvert þar sem tónleikarnir hafa hvergi verið auglýstir. Hann er gífurlega spenntur fyrir tónleikunum þar sem gleði og skemmtun verður allsráðandi að hans sögn. Lífið 27.2.2023 17:28
Skynvíkkunarrokkarar með skæting snúa aftur Anton Newcombe er forsprakki sýrurokkssveitarinnar The Brian Jonestown Massacre. Í byrjun mars snýr hann aftur til landsins sem hann dvaldi á löngum stundum snemma á þessu árþúsundi. Tónlist 21.2.2023 09:16
Hrista tvö þúsund manna veislur fram úr erminni „Það er ekki nóg að stinga bara stofugræjunum í samband. Það þarf að huga að hljómburði hvort sem þú ætlar að halda tuttugu manna boð eða tvö þúsund manna viðburð. Það jafnast ekkert á við góða samkomu þar sem allir ná að skemmta sér saman og þá er mikilvægt að tækin sem er verið að nota séu fyrsta flokks, góður hljómur og að heyrist vel í ræðumanni, skemmtikröftum og tónlistinni,“ segir Jóhann Örn Ólafsson í HljóðX en fyrirtækið leigir út hljóðkerfi, ljósa- mynd- og sviðsbúnað fyrir allar stærðir viðburða. Lífið samstarf 21.2.2023 08:47
Backstreet Boys á leiðinni til Íslands Bandaríska „strákasveitin“ Backstreet Boys eru á leið til landsins. Þeir munu halda tónleika í Nýju-Laugardalshöllinni föstudaginn 28. apríl næstkomandi. Lífið 20.2.2023 14:17
Eydís Evensen tilkynnir Evróputúr Það er mikið um að vera hjá tónskáldinu og píanóleikaranum Eydísi Evensen, sem hefur vakið athygli í hinum stóra heimi, en hún var að senda frá sér tónverkið Tephra Horizon og tónlistarmyndband við. Er um að ræða fyrstu smáskífu af væntanlegri plötu en Eydís er einnig á leið í stórt tónleikaferðalag. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá. Tónlist 17.2.2023 11:30
Frægðin aldrei nokkurn tíma heillað „Mig langaði að taka inn hinn tilfinningaskalann sem er þessi fögnuður, gleði, partý og fyrir alla,“ segir tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir um cornucopiu, væntanlega tónleikaseríu sína í Laugardalshöll. Blaðamaður settist niður með henni og fékk nánari innsýn í hennar stöðugt vaxandi og skapandi hugarheim. Tónlist 17.2.2023 06:00
Jóhanna Guðrún heiðrar Celine Dion Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Sena tilkynntu í dag að söngkonan heldur Celine Dion heiðurstónleika þann 19. maí næstkomandi. Tónlist 14.2.2023 12:33
„Maður skilur tónlistina aldrei til fulls“ „Maður skilur tónlistina aldrei til fulls og verður þess vegna bara að fikra sig áfram við að búa hana til,“ segir tónlistarkonan Ólöf Arnalds. Hún stefnir á að halda uppskerutónleika næstkomandi fimmtudag á Húrra. Tónlist 13.2.2023 18:00
Mikilvægt að geta verið GDRN inn á milli Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð vakti fyrst athygli í íslensku samfélagi árið 2017 þegar hún sendi frá sér sitt fyrsta lag, Ein. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan en hún hefur meðal annars farið með aðalhlutverk í Netflix seríunni Katla og gefið út nokkrar plötur ásamt því að eignast barn. Næstkomandi laugardag 11. febrúar verða hún og Magnús Jóhann með útgáfutónleika í Hörpu á plötunni Tíu íslensk sönglög sem þau sendu frá sér síðastliðið haust. Blaðamaður tók púlsinn á þessu öfluga tvíeyki og fékk að heyra nánar frá nýjum veruleika Guðrúnar. Tónlist 9.2.2023 06:01
Lukas Graham ásamt hljómsveit í Hörpu í apríl Danska sveitin Lukas Graham er væntanleg hingað til lands í vor og efnir til stórtónleika í Silfurbergi Hörpu 26. apríl næstkomandi. Tónlist 8.2.2023 08:29
Björk tilkynnir tónleikaröð í Reykjavík: Stærsta sýningin hingað til Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir var að tilkynna tónleikaröð hérlendis í júní en hún mun halda þrenna tónleika í Laugardalshöll. Tónlist 7.2.2023 11:31
Iceland Airwaves valin besta innihátíð ársins 2022 Iceland Airwaves vann verðlaunin „besta innihátíðin“ á Evrópsku hátíðarverðlaununum (e. European Festival Awards) í Groningen í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2020 sem verðlaunin eru afhent. Tónlist 19.1.2023 14:44
Ingó hyggur á stórtónleika í Háskólabíó í mars Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hyggst halda stórtónleika í Háskólabíó á nýju ári. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða tónleikarnir haldnir undir yfirskriftinni „Loksins gigg“, föstudaginn 10. mars. Formleg miðasala er ekki hafin en vinir og vandamenn hafa verið beðnir um að taka kvöldið frá. Lífið 30.12.2022 15:19