Loðnuveiðar
1 2 3 ›
Loðnukvótinn aukinn á sama tíma og verðmætasta veiðin er hafin Íslenskar loðnuútgerðir fá um fimmtíu þúsund tonna viðbótarkvóta í loðnu þar sem Norðmönnum tókst ekki að klára sinn kvóta áður en veiðitímabili þeirra á Íslandsmiðum lauk. Þetta gerist á sama tíma og verðmætasti þáttur loðnuvertíðarinnar, hrognavinnslan, er að hefjast. Viðskipti innlent 3.3.2022 23:30
Mun minni kvótaskerðing en varað hafði verið við Hafrannsóknarstofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2021/22 verði ekki meiri en 869.600 tonn. Um er að ræða lækkun um 34.600 frá ráðgjöf sem veitt var 1. október síðastliðinn. Hafró hafði áður varað við kvótaskerðingu upp á allt að eitthundrað þúsund tonn. Innlent 18.2.2022 17:24
Óveidd loðna Norðmanna gæti jafnað skertan kvóta Íslensku loðnuskipin voru í dag búin að veiða helming útgefins kvóta og er áætlað útflutningsverðmæti þegar komið í 22 milljarða króna. Stefnir í að vonir um góða loðnuvertíð muni rætast. Viðskipti innlent 15.2.2022 22:36
Ballið að byrja á loðnuvertíðinni Fundur stórrar loðnutorfu grunnt undan Suðausturlandi markar kaflaskil á yfirstandandi vertíð en þar með er staðfest að loðnan er gengin upp á landgrunnið, byrjuð að þéttast í torfur og að nálgast sitt verðmætasta form. Viðskipti innlent 11.2.2022 11:04
Loðnuskip komin í mokveiði grunnt undan Jökulsárlóni Stór loðnutorfa er fundin grunnt undan Suðursveit, sem markar kaflaskil á vertíðinni til þessa. Tíu loðnuskip eru komin á svæðið, átta íslensk og tvö færeysk, og mokveiða upp úr torfunni. Viðskipti innlent 10.2.2022 15:16
Bíða eftir kallinu að hefja gulltíma loðnuveiðanna Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson sigldi nú undir kvöld áleiðis á Vestfjarðamið til loðnumælinga, sem ráða úrslitum um endanlegan loðnukvóta. Á sama tíma bíður stór hluti loðnuflotans í startholunum að hefja verðmætasta veiðitímabil íslensks sjávarútvegs, eltingaleikinn við hrygningarloðnuna. Viðskipti innlent 9.2.2022 22:00
Hundfúlir að þurfa að hætta í mokveiði á loðnumiðunum Loðnuskipin streyma núna í höfn, hvert af öðru, eftir að Hafrannsóknastofnun varaði við yfirvofandi kvótaskerðingu. Skipstjórinn á Venusi segir að menn verði bara að taka þessu en viðurkennir að þeir séu hundfúlir. Innlent 3.2.2022 22:22
Gerir hlé á loðnuveiðum vegna viðvörunar um kvótaskerðingu Ný mæling á loðnustofninum, sem kynnt var síðdegis, bendir til að skerða þurfi loðnukvótann á yfirstandandi vertíð um eitthundrað þúsund tonn, eða um ellefu prósent. Þetta gæti þýtt fjögurra milljarða króna minni tekjur þjóðarbúsins en áður var vænst. Vinnslustöðin brást strax við með því að láta skip sín hætta veiðum. Innlent 2.2.2022 21:21
Vilhelm Þorsteinsson fljótur að slá aflamet systurskipsins Heimsmet Barkar NK, skips Síldarvinnslunnar, í loðnuafla stóð ekki lengi. Vilhelm Þorsteinsson EA, skip Samherja, er búinn að slá metið en hann landaði 3.448 tonnum í Fuglafirði í Færeyjum í gær. Það reyndist 39 tonnum meira en þau 3.409 tonn sem Börkur landaði á Seyðisfirði um helgina. Innlent 1.2.2022 20:57
Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa til öflunar meiri orku til að geta staðið við markmið um orkuskipti. Olíubrennsla að undanförnu vegna skorts á umfram raforku þurrki út árangur rafknúinna bifreiða í loftslagsmálum frá árinu 2010. Innlent 1.2.2022 19:20
Mokveiði loðnuskipa og Börkur landaði stærsta farmi sögunnar Mikill kraftur hefur færst í loðnuveiðarnar og hefur mokveiðst á miðunum undanfarna daga. Þannig landaði Börkur NK 3.400 tonna metfarmi á Seyðisfirði um helgina, sem er mesti fiskafli skips í einni veiðiferð í sögu fiskveiða við Ísland. Innlent 31.1.2022 21:21
Líklega mesta loðnuveiði sögunnar Börkur NK sem gerir út frá Seyðisfirði landaði 3.211 tonnum af loðnu í fiskimjölsverkmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði í gær. Verksmiðjustjóri segir þetta stærsta loðnufarm sem hann hafi heyrt um. Viðskipti innlent 14.1.2022 15:28
Telur tækifæri í hagstæðari fjármögnun Síldarvinnslunnar Þrátt fyrir að allt stefni í að árið 2022 verði magnað ár í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja sem hafa aflaheimildir í loðnu, eins og meðal annars Síldarvinnslan, þá þarf að hafa í huga að veiðar geta gengið misjafnlega vel. Innherji 12.1.2022 17:48
Endurunnin smurolía notuð til að keyra loðnubræðslur Smurolían sem tekin er af bílnum okkar þegar við förum með hann í smurningu mun nýtast loðnubræðslum landsins í vetur; sem endurunnin úrgangsolía í íslenskri endurvinnslu. Þannig sparast umtalsverður gjaldeyrir. Viðskipti innlent 29.12.2021 12:04
Áhöfn olíuskips á útopnu að þjóna loðnubræðslum Viðbótar olíuflutningar til loðnuverksmiðja til að mæta óvæntri raforkuskerðingu jafngilda farmi 550 olíubíla af stærstu gerð. Umferð olíutrukka á þjóðvegunum mun þó ekki aukast því eina olíuskip Íslendinga fer í verkefnið. Viðskipti innlent 18.12.2021 22:44
Loðnutekjur af Íslandsmiðum redda grænlenskum flugvelli Væntanlegur loðnugróði Grænlendinga af Íslandsmiðum veldur því að íbúar stærsta bæjar Suður-Grænlands fá loksins nýjan flugvöll. Þar var tíðindunum fagnað með söng og flugeldasýningu á dögunum. Viðskipti innlent 13.12.2021 20:40
Segir sorglegt að loðnubræðslur þurfi að skipta úr raforku í olíu Fulltrúi fiskimjölsiðnaðarins segir það áfall og sorglegt að loðnubræðslur þurfi núna að skipta yfir í olíu í stað rafmagns. Málið var rætt í ríkisstjórn í morgun. Innlent 7.12.2021 21:41
Segir raforkuskerðingu mikið áfall í upphafi loðnuvertíðar Ákvörðun Landsvirkjunar um að skerðing raforku til loðnuverksmiðja taki strax gildi er mikið áfall, að sögn formanns Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda, sem segir þetta þýða óhemju notkun á olíu. Tilkynningin kom sama dag og loðnuvertíðin hófst fyrir alvöru. Viðskipti innlent 7.12.2021 12:16
Eitt fyrsta verk Svandísar að liðka fyrir veiðum á loðnu Svandís Svavarsdóttir, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag breytingu á reglugerð sem heimilar veiðar á loðnu með flotvörpu tímabundið á afmörkuðum svæðum úti fyrir Norðurlandi. Líklegt má telja að þessi ákvörðun setji loðnuvertíðina af stað en loðnan hefur verið illveiðanleg með hefðbundinni loðnunót sökum þess hversu djúpt hún liggur í sjónum. Innlent 30.11.2021 18:19
Raunhæft að loðnan skili 60 milljörðum að sögn forstjóra Síldarvinnslunnar Gunnþór Ingvarsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, mælir með því að væntingum um verðmætin sem hægt er að ná úr loðnuvertíðinni verði stillt í hóf. Fyrirséð er að verðin sem sáust á síðustu vertíð verði ekki í boði ef mikið verður framleitt. Innherji 25.11.2021 20:00
Loðnutorfur fundnar á Hala en bræla hamlar veiðum Áhöfnin á Berki NK, skipi Síldarvinnslunar í Neskaupstað, er búin að sjá loðnutorfur á Halamiðum út af Vestfjörðum. Bræla hamlar hins vegar veiðum sem stendur en búist við að lægi í kvöld. Viðskipti innlent 16.11.2021 13:26
Fyrsta veiðiskipið ræst af stað á næstu loðnuvertíð Loðnuveiðar, sem gætu orðið þær mestu í tuttugu ár, eru að hefjast, þremur mánuðum fyrr en síðastliðinn vetur, og var fyrsta veiðiskipið að búa sig brottfarar í Sundahöfn í Reykjavík í dag. Innlent 8.11.2021 22:21
Mögulegt verkfall í miðri loðnuvertíð til umræðu á þingi SSÍ Að sögn Valmundar Valmundarsonar, formanns Sjómannasambands Íslands, er lítil hreyfing á kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Verkfallsboðun verði meðal þess sem rætt verður á þingi sambandsins á fimmtudag og föstudag. Innlent 2.11.2021 06:51
Covid kreppunni lokið að mati Landsbankans Covid kreppunni er lokið samkvæmt þjóðhagsspá Landsbankans sem birt var í dag þar sem gert er ráð fyrir miklum hagvexti á þessu ári og því næsta. Ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af húsnæðismarkaðnum þar sem framboð á íbúðum muni aukast á næstu árum. Innlent 20.10.2021 19:20
Leiðandi hagvísir ekki verið hærri frá 2018 Leiðandi hagvísir Analytica hækkaði í september og hefur ekki verið hærri síðan sumarið 2018. Hann hefur nú hækkað í eitt ár samfleytt. Viðskipti innlent 19.10.2021 11:28
Möguleiki á stærstu loðnuvertíð í tuttugu ár Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í gær grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Innlent 13.10.2021 10:55
Aukinn hagvöxtur og hraðari efnahagsbati þökk sé loðnunni Greining Íslandsbanka telur að aukin loðnuveiði komi til með að auka hagvöxt um 0,8 prósentustig á næsta ári og ýta undir efnahagsbata eftir faraldurinn. Viðskipti innlent 5.10.2021 16:07
Leggja til mikla loðnuveiði Hafrannsóknarstofnun leggur til að fiskveiðiárið 2021/2022 verði ekki veidd meira en 904.200 tonn af loðnu. Það er mun meira en lagt var til í fyrra en samtals veiddust 128.600 tonn af loðnu á fiskveiðiárinu 2020/2021. Var það með minnsta móti frá því loðnuveiðar hófust, séu ár án veiði undanskilin. Innlent 1.10.2021 10:10
Kennsla í loðnuveiði: Dæla úr nót annarra „Það er bara fundin torfa og kastað,“ svarar skipstjórinn á Beiti NK, Sturla Þórðarson, þegar við biðjum hann um að útskýra fyrir áhorfendum hvernig loðnuveiðar fara fram. Innlent 5.4.2021 07:43