Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Agnar Már Másson skrifar 3. október 2026 22:27 Fjöldi lögreglumanna var á vettvangi í Auðbrekku en Vítisenglar héldu þar veislu í kvöld. Vísir/Viktor Freyr Lögreglan hefur verið með mikinn viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi í kvöld. Í götunni stendur yfir veisla á vegum mótorhjólaklúbbanna Vítisengla og Red Devils.
Ekki hefur náðst í lögreglu vegna aðgerðarinnar en lögreglumenn hafa ítrekað áður staðið í aðgerðum á svæðinu vegna samkoma Vítisengla. Á plakati sem hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum er einmitt boðað til veislu í húsakynnum Vítisengla að Auðbrekku 1 en þar segir að veislan sé á vegum Vítisengla auk annars mótorhjólaklúbbs að nafni Red Devils. Lögreglan við aðgerðir í Auðbrekku.Vísir/Vilhelm Sjónarvottur lýsti því að hafa séð fjölda lögreglubíla á vettvangi, þar af einn með viðbragðsljósin kveikt. Vítisenglar eða Hells Angels, eins og þeir eru þekktir fyrir utan landsteinana, eru víðast hvar skilgreind sem glæpasamtök. Plakat þar sem boðað er til veislu hjá Vítisenglum í kvöld. Sem fyrr segir hefur lögreglan áður ráðist í aðgerðir á svæðinu vegna samkoma Vítisengla. Lögregla var með mikinn viðbúnað á svæðinu á sama tíma og klúbburinn hélt upp á fimmtán ára afmæli sitt í maí á þessu ári. Í september 2025 voru þrír handteknir á samkomu þeirra og svo var aftur lokað fyrir umferð á svæðinu þegar þeir héldu aðra samkomu tveimur vikum síðar. Enn voru tveir lögreglumílar á vettvangi klukkan 23.30 í kvöld.Vísir/Viktor Freyr Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira