Spænski boltinn

Leikmenn Real Madrid taka á sig launalækkun
Leikmenn spænska stórliðsins Real Madrid hafa tekið á sig tíu til tuttugu prósent launalækkun til að aðstoða félagið að takast á við þann fjárhagslega skell sem fylgir kórónufaraldrinum.

Framherji Barcelona klippti sig eins og Ronaldo á HM 2002
Martin Braithwaite ákvað að heiðra hinn brasilíska Ronaldo með nýjustu klippingu sinni.

Kórónuveiran hefur áhrif á Juventus og Ronaldo gæti farið aftur til Spánar
Ítalski fjölmiðillinn Corriere dello Sport greinir frá því að Cristiano Ronaldo gæti snúið aftur til Real Madrid næsta sumar og er kaupverðið talið í kringum 50 milljónir punda.

Klopp segir að Liverpool hafi sýnt Coutinho sanngirni
Jürgen Klopp fór yfir félagsskipti Philippe Coutinho til Barcelona og hvernig Liverpool hafi sýnt leikmanninum þá virðingu sem hann átti svo sannarlega skilið.

Fyrrum stjóri Real og Barcelona látinn
Fyrrum knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn, Serbinn Radomir Antic er látinn, 71 árs að aldri. Hann lék meðal annars með Partizan, Real Zaragoza og Luton á sínum ferli.

Dagskráin í dag: FA bikarinn, efsta deild karla í knattspyrnu og Atvinnumennirnir okkar
Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

Braut útivistarbann til að fagna 18 ára afmæli kærustunnar
Fedor Smolov, leikmaður Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni hefur brotið útivistarbann þar í landi svo hann geti fagnað 18 ára afmæli kærustu sinnar.

„Ég er ekki byrjaður í spænskunámi“
Ajax gæti þurft að horfa á eftir hollenska landsliðsmanninum Donny van de Beek í sumar en leikmaðurinn kveðst ekki búinn að taka ákvörðun um framtíð sína.

Ancelotti sagður vilja Real-par
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Everton, vill fá tvo fyrrverandi lærisveina sína frá Real Madrid að sögn spænska blaðsins Marca. Leikmenn sem Real vill losna við.

Xavi og Cunillera gefa sjúkrahúsi í Barcelona eina milljón evra
Kollegi Heimis Hallgrímssonar í úrvalsdeildinni í Katar, Barcelona-goðsögnin Xavi, og eiginkona hans Núria Cunillera hafa ákveðið að styðja myndarlega við sjúkrahús í Barcelona.

Birkir: Eiður Smári henti okkur inn í röðina fyrir framan Guardiola og Messi
Hver hefði ekki þegið það að skemmta sér með stórstjörnum Barcelona eftir að þeir unnu þrennuna vorið 2009. Birkir Kristinsson var svo heppinn að fá að vera með í fjörinu í Rómarborg.

Stjórn Liverpool hló að fréttum um að Mane sé á leið til Real Madrid
Stuðningsmenn Liverpool geta verið aðeins rólegri því félagið ætlar ekki að selja stjörnur sínar í sumar.

Di María fékk bréf frá Real fyrir úrslitaleik HM 2014 sem hann reif í tætlur
Angel Di Maria, leikmaður PSG og argentínska landsliðsins, greinir frá því í samtali við fjölmiðilinn Telefe í heimalandinu að Real Madrid hafi sent honum skilaboð fyrir úrslitaleikinn á HM 2014 gegn Þýskalandi og reynt að fá hann til þess að sleppa að spila leikinn.

Xavi veit ekki hvort Neymar passi félagslega inn í Barcelona-liðið og horfir til Gnabry og Sancho
Xavi, sem nú stýrir Al Sadd í Katar, er tilbúinn að taka við uppeldisfélagi sínu Barcelona fyrr en síðar. Hann segir þó að allt þurfi að vera í góðu lagi í búningsklefanum og enginn eituráhrif. Hann veit ekki hvort að koma Neymar aftur til félagsins væri góð hugmynd.

Ter Stegen: Ég veit ekkert um fótbolta
Það er ekki nauðsynlegt að fylgjast vel með fótbolta almennt til að vera í fremstu röð í íþróttinni.

Xavi tekur ekki við Barcelona nema hann fái að ráða
Barcelona goðsögnin Xavi kveðst hafa skýra sýn á framtíð félagsins og vonast til að fá tækifæri til að taka við stjórnartaumunum á Nou Camp.

Brunaútsala hjá Real í sumar?
Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, er talinn vilja losna við fimm leikmenn frá félaginu í sumar en hann vill hreinsa til og koma með nýtt blóð inn í félagið.

Óeining innan leikmannahóps Barcelona um launalækkun vegna kórónuveirunnar
Spænski miðillinn Sport greinir frá því að allir leikmenn Barcelona séu ekki sammála því um að taka á sig launalækkun vegna kórónuveirunnar en félagið hefur beðið leikmennina um að taka á sig lækkunina.

Neville hlustaði ekki á ráðleggingar Ferguson og skömmu síðar var hann rekinn
Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United og stjóri Valencia á Spáni, segir að hann hafi hunsað ráðleggingar frá læriföður sínum Sir Alex Ferguson er hann stýrði Valencia.

Liverpool gæti mögulega fengið spænskt undrabarn frítt
Valencia strákurinn Ferran Torres gæti endað á Anfield í framtíðinni og það án þess að Liverpool þurfi að borga fyrir hann.

Ronaldinho spurði eftir Eiði Smára eins og Haukur í Coca Cola-auglýsingunni
Brasilíski snillingurinn Ronaldinho spurði eftir Eiði Smára Guðjohnsen í Barcelona.

Eiður um Ronaldinho: Þegar er talað um hann á að vera talað um galdramann á fótboltavellinum
Eiður Smári Guðjohnsen segir að það eigi að minnast brasilíska snillingsins á fótboltavellinum sem töframanns. Hann segir að hann og Ronaldinho hafi náð einkar vel saman og að það sé erfitt að ná ekki vel saman við Ronaldinho.

Stærstu fótboltadeildir Evrópu gætu tapað meira en 600 milljörðum á COVID-19
Fimm stærstu fótboltadeildir Evrópu tapa gríðarlegum fjárhæðum á því að ekkert sé spilað vegna kórónuveirunnar.

Segir að Messi og Ronaldo gætu kannski freistast til að spila í Hvíta-Rússlandi
Það er aðeins verið að spila fótbolta í einu landi í dag og það er heimaland fyrrum leikmanns Arsenal og Barcelona. Hann vill sjá tvær stærstu stjörnur heims koma til Hvíta Rússlands.

Iðar í skinninu að fá að spila með Messi
Hinn tvítugi Francisco Trincao er spenntur fyrir því að fá að spila með argentínska snillingnum Lionel Messi en Börsungar festu kaup á Francisco í janúar.

Messi styrkir baráttuna gegn kórónuveirunni í Barcelona og Argentínu um eina milljón evra
Lionel Messi, einn besti knattspyrnur heims og allra tíma, hefur lagt baráttunni gegn kóronuveirunni lið og styrkt heilsugæslustöðvar bæði í Barcelona sem og heimalandinu.

Real tilbúið að hleypa Bale frá félaginu í sumar eftir stormasamt samband við Zidane
Real Madrid hefur opnað dyrnar fyrir Gareth Bale og er tilbúið að láta hann fara í sumar en talið er ólíklegt að Wales-verjinn snúi ekki aftur í ensku úrvalsdeildina því launakröfur hans eru alltof háar.

Ronaldinho fékk magnaða kveðju frá Messi í afmælisgjöf
Lionel Messi ber enn mjög mikla virðingu fyrir Ronaldinho og það sést heldur betur á afmæliskveðju Argentínumannsins um helgina.

Hjálpaði við að slá út Liverpool á dögunum en gæti verið á leiðinni þangað í sumar
25 ára Úrúgvæmaður hjá spænska liðinu Atletico Madrid er sagður vera á óskalista Jürgen Klopp í sumar.

Marco Asensio óstövandi í FIFA leiknum um helgina
Real Madrid leikmaðurinnMarco Asensio vann FIFA tölvuleikjamótið fyrir sitt félag um helgina en mótið fór fram um helgina og heppnaðist mjög vel.