
Tjáningarfrelsi

Margrét sýknuð í Landsrétti
Landsréttur hefur sýknað Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, af ákæru fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdar aðgerðarsinna fyrir utan Benzin Café á Grensásvegi árið 2018.

Sendir annarri konu kröfubréf vegna ummæla um nauðgun
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hefur sent konu kröfubréf vegna ummæla sem hún lét falla um hann á netinu árið 2022. Heimildin greinir frá og hefur eftir lögmanni Ingólfs að ekki sé útilokað að kröfubréfunum fjölgi á hendur fólki sem hafi tjáð sig með meiðandi hætti um tónlistarmanninn.

Penn glatar 100 milljón dala gjöf vegna svara forsetans um þjóðarmorð
University of Pennsylvania í Bandaríkjunum hefur tapað 100 milljón dala gjöf eftir vitnisburð forseta skólans fyrir þingnefnd á þriðjudag.

Danir banna kóranbrennur
Danska þingið samþykkti í dag lög sem banna „óviðeigandi meðferð“ á trúarritum. Fjöldi hægri öfgamanna hefur brennt trúarrit múslima, Kóraninn, á götum úti síðustu misseri.

Flutti eigið meiðyrðamál og fékk á baukinn í Landsrétti
Áfrýjun Hugins Þórs Grétarssonar, á sýknudómi í meiðyrðamáli hans á hendur Maríu Lilju Þrastardóttur Kemp aðgerðarsinna, hefur verið vísað frá Landsrétti. Hann flutti mál sitt sjálfur og segir niðurstöðu Landsréttar til marks um það að borgurum sé gert ómögulegt að leita réttar síns án dýrrar lögfræðiaðstoðar.

Snorri hafði sigur í TikTok-málinu
Klippa sem Snorri Másson ritstjóri hafði sett inn á TikTok var eytt þaðan á þeim forsendum að um væri að ræða hatursorðræðu. Snorri veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið.

Segir Landsrétt þagga niður í konum með því að dæma sér í óvil
Sindri Þór Sigríðarson, hvers ummæli í garð Ingólfs Þórarinssonar voru dæmd dauð og ómerk í Landsrétti í gær, segir dómstólinn hafa með niðurstöðu sinni þaggað niður í konum.

Ingó eigi ekki að þurfa að vera ásakaður þó hann sé frægur
Landsréttur segir að ummæli Sindra Þórs í garð Ingólfs Þórarinssonar, sem er betur þekktur sem Ingó Veðurguð, hafi á forkastanlegan hátt gefið til kynna að sá síðarnefndi hafi haft samræði við börn.

„Réttlætinu er fullnægt“
Lögmaður Ingós veðurguðs, sem hafði í dag betur í meiðyrðamáli fyrir Landsrétti, segir að niðurstaðan komi ekki á óvart og dómurinn sé réttur. „Réttlætinu er fullnægt.“

Ingó hafði betur í Landsrétti gegn Sindra Þór
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hafði í dag betur í meiðyrðamáli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni í Landsrétti. Sindri Þór mátti ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“

Teiknari Guardian til 40 ára látinn fjúka vegna meintrar gyðingaandúðar
Breski miðillinn Guardian hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við skopmyndateiknarann Steve Bell, eftir að hann skilaði inn mynd sem miðlinum þótti ýta undir fordóma gegn gyðingum.

Þáttastjórnendur mega tjá sig um mál en ekki taka pólitíska afstöðu
Stjórnendur „flaggskipa“ BBC ættu að mega tjá skoðanir sínar á málefnum og stefnumótun opinberlega en ekki taka pólitíska afstöðu segir í nýrri skýrslu BBC.

Listin að segja...og þegja
Málfrelsi er ein undirstaða lýðræðisins og grunnur samfélagsgerðarinnar. Við sem búum við það eigum þar sannarlega lífsgæði sem að því miður eru ekki sjálfsögð eða öllum gefin.

Nemendur þurfa ekki að sitja tíma hjá Páli en hann ekki rekinn
Skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ segir skrif Páls Vilhjálmssonar, sem kennir við skólann, skaða skólann. Sá skaði sé þó léttvægur miðað við þá vanlíðan sem skrifin geti valdið hinsegin nemendum innan skólans.

Facebook bannar ekki forseta sem hótaði andstæðingum ofbeldi
Meta, móðurfélag Facebook, ákvað að hafna áliti eigin ráðgjafanefndar um að banna fyrrverandi forsætisráðherra Kambódíu sem notaði miðillinn til þess að hóta andstæðingum sínum ofbeldi. Ráðherrann hótaði að banna Facebook í landinu ef hann yrði sjálfur settur í straff.

Kveiktu í sendiráði Svía í Írak
Nokkur hundruð menn ruddust inn í sendiráð Svíþjóðar í Bagdad í Írak í morgun og kveiktu í ráðuneytinu. Ráðist var á sendiráðið eftir vegna skipulagðra mótmæla í Svíþjóð þar sem til stendur að brenna eintak af Kóraninum fyrir utan sendiráð Íraks í Stokkhólmi í dag.

Ummæli um vælandi kerlingar og byrlanir bættu gráu ofan á svart
Áminning sem var veitt lögreglukonu sem gerði lítið úr þolendum kynferðisbrota og meðlimum Öfga á Facebook var í samræmi við lög. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi lögreglukonuna ekki eiga rétt á miskabótum vegna áminningarinnar og breytingar á starfi hennar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ummæli lögreglukonunnar um vælandi kerlingar og byrlanir höfðu áhrif á niðurstöðu dómsins.

Fullyrðing um nauðgun innan marka tjáningarfrelsisins
Kona nokkur hefur verið sýknuð af kröfu fyrrverandi kærasta um miskabætur og fangelsisrefsingu vegna ummæla sem hún lét falla á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram árið 2022. Þar sakaði hún ónafngreindan karlmann um nauðgun en fyrrverandi kærastinn taldi augljóst að um sig væri að ræða.

Kannast ekki við beiðni sem leiddi til tímamótadóms um mismunun
Maður sem var nefndur í máli sem kristinn vefsíðuhönnuður sem vildi ekki þurfa að vinna fyrir samkynhneigt fólk höfðaði fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna segist aldrei hafa óskað eftir þjónustu hönnuðarins. Dómurinn leyfði fyrirtækjum að meina samkynhneigðum um þjónustu.

Ráðist inn í sænska sendiráðið í Bagdad vegna Kóranbrennu
Hópur reiðra mótmælenda réðst inn í sænska sendiráðið í Bagdad. Mótmælin voru boðuð eftir að írakskur maður kveikti í Kóraninum fyrir utan mosku í Stokkhólmi í gær. Fjöldi múslimaríkja hefur fordæmt bókabrennuna.

Vilja banna forsætisráðherra á Facebook rétt fyrir kosningar
Sjálfstæð eftirlitsnefnd Meta leggur til að Facebook-aðgangi forsætisráðherra Kambódíu verði lokað í sex mánuði vegna myndbands sem hann birti þar sem hann hótaði pólitískum andstæðingum ofbeldi. Innan við mánuður er til kosninga í Kambódíu.

Bandaríski blaðamaðurinn í rússnesku fangelsi út sumarið
Dómstóll í Moskvu staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Evan Gershkovich, bandarískum blaðamanni sem er sakaður um njósnir, fram í seinni hluta ágúst. Fréttamenn fengu ekki að vera viðstaddir þegar úrskurðurinn var kveðinn upp.

„Við erum öll öðruvísi en allir hinir“
Kristján Hreinsson, skáld, segir taka þurfi umræðuna um minnihlutahópa á „æðra stig“. Við séum öll öðruvísi og „enginn geti í krafti einhverrar hneigðar eða einhverjar upplifunar, ákveðið að hann sé sérstakri en einhver annar“.

Endurmenntun endurræður Kristján og harmar óþægindin
Gert hefur verið samkomulag við Kristján Hreinsson um að hann ljúki kennslu ritlistarnámskeiðsins Skáldsagnaskrif, sem hófst í maí og lýkur í september næstkomandi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Hættuleg orðræða
Orð hafa áhrif. Við vitum þetta öll, en engu að síður er umræðan um það hvað er í lagi að segja - og hvað ekki - mjög skautuð og erfið. Undanfarið hefur verið fjallað um það hvort réttlætanlegt sé að búa til sérstaka aðgerðaráætlun til þess að taka á hatursorðræðu og fræða um hana víða innan stjórnkerfisins og meðal almennings.

Vill stefna Háskólanum vegna uppsagnar
Kristján Hreinsson skáld, greinir frá því á Facebook-síðu sinni að honum hafi verið sagt upp störfum hjá Háskóla Íslands, en hann hefur verið með hjá Endurmenntun: Skáldsagnaskrif.

Twitter sagt láta undan þrýstingi Erdogan
Andófsmaður og rannsóknarblaðamaður eru á meðal þeirra sem samfélagsmiðillinn Twitter virðist hafa fallist á að fela fyrir tyrkenskum notendum sínum rétt fyrir mikilvægustu kosningar í landinu í áraraðir. Twitter hefur ekki sagt hvers kyns efni miðilinn samþykkti að ritskoða.

Um tjáningarfrelsi kennara
Fyrir aðeins 15 árum var það almenn skoðun meðal Íslendinga að kynin væru tvö, karl og kona. Svo voru til frávik.

Segir meinta ritskoðun á Ríkisútvarpinu ritstjórn
Pistlahöfundurinn þekkti Sif Sigmarsdóttir heldur því fram að hún hafi mátt sæta ritskoðun þegar hún lagði til pistla í Morgunútvarp Rásar 2 Ríkisútvarpsins. Dagskrárstjórinn segir þetta úr lausu lofti gripið, um hafi verið að ræða ritstjórn, ekki ritskoðun og á þessu tvennu sé munur.

Tjáningarfrelsið og málefni trans barna og ungmenna
Það má tjá skoðanir á hver sé þróun málefna trans barna og ungmenna hér á landi. Margir veigra sér þó við því. Hvers vegna? Væntanlega er ein ástæða þess að sú hætta er raunveruleg að sá sem tjái skoðanir sínar um málaflokkinn verði í framhaldinu brennimerktur á opinberum vettvangi.