
Leiknir Reykjavík

Siggi Höskulds um 9-0 tapið í Víkinni: Þrusu gott fyrir okkur
Sigurður Höskuldsson, þjálfari Leiknis, telur að 9-0 skellurinn sem liðið fékk á móti Víkingi í Bestu-deildinni þann 7. september hafi verið góður fyrir Leikni, þar sem liðið sótti sex stig af sex mögulegum í næstu tveimur leikjum þar á eftir.

„Þurfum að brýna stálið“
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var þungur á brún eftir tapið fyrir Leikni, 1-2, í fallslag í Bestu deild karla í dag. Skagamenn skoruðu öll þrjú mörk leiksins.

„Höfum haldið haus og strákarnir eru að uppskera eftir því“
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, var hreykinn af sínu liði eftir sigurinn á ÍA, 1-2, á Akranesi í dag. Leiknismenn lentu undir en komu til baka og unnu leikinn, þökk sé tveimur sjálfsmörkum Skagamanna.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍA - Leiknir 1-2 | Skagamenn skoruðu öll mörkin í fallslagnum
Leiknir komst upp úr fallsæti Bestu deildar karla með 1-2 sigri á ÍA á Norðurálsvellinum á Akranesi í lokaumferð Bestu deildar karla í dag. Skagamenn skoruðu öll mörk leiksins.

Lygileg endurkoma í Kviss og allt undir í lokin
Sextán liða úrslitin halda áfram í Kviss á Stöð 2 en á laugardaginn mættust Leiknismenn og Valsmenn í hörku viðureign.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir 1-0 Valur | Svöruðu fyrir stórtapið með sigri á Val
Leiknir vann 1-0 sigur á Val í Breiðholtinu, þrátt fyrir að lenda einum manni færri eftir einungis 19 mínútur þegar Zean Dalügge var rekin af velli. Sigurmark Leiknis kom á 81. mínútu en þar var að verki Birgir Baldvinsson.

Þakkar fyrir ógleymanlegan stuðning eftir útreiðina í Víkinni
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis í Reykjavík, setti inn færslu á samfélagsmiðilinn Twitter í morgun eftir 9-0 tap liðs hans fyrir Íslands- og bikarmeisturum Víkings í Bestu deild karla í gærkvöld. Hann þakkar fyrir stuðning úr stúkunni við svo erfiðar aðstæður.

Sjáðu mörkin er Víkingum tókst næstum því að losna við metið slæma
Íslandsmeistarar Víkings unnu 9-0 stórsigur á Leikni Reykjavík er liðin mættust í Bestu deild karla í gærkvöld. Víkingar voru þar með einu marki frá því að losna við met sem hefur fylgt þeim frá árinu 1993.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur 9-0 Leiknir | Víkingar jöfnuðu met þegar þeir niðurlægðu Leikni
Víkingar rótburstuðu Leikni úr Breiðholti í Bestu deild karla í kvöld. Lokatölur 9-0 þar sem Leiknismenn sáu ekki til sólar.Fyrsta mark Víkinga kom á 14.mínútu og svo komu mörkin á færibandi. Staðan í hálfleik var 5-0 og eftir 42 sekúndur í síðari hálfleik var staðan orðin 6-0. Víkingar stigu aldrei af bensíngjöfinni en með sigrinum jafna þeir metið yfir stærsta sigur í sögu efstu deildar.

Arnar hugsaði út í metið: Aðalatriðið að taka ekki fótinn af pedalanum
„Frammistaðan var nánast fullkomin. Ég bað um svör eftir síðasta leik og fékk þau svo sannarlega, ég átti nú ekki von á þessu,“ sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga eftir 9-0 sigur liðsins á Leikni í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld.

Sjáðu vítaklúðrin hjá FH í botnslagnum
Tvær vítaspyrnur fóru í súginn hjá FH í botnslagnum gegn Leikni í Breiðholtinu í 20. umferð Bestu deildar karla í gær. Steven Lennon skaut í slá og Viktor Freyr Sigurðsson varði svo frá Birni Daníel Sverrissyni á lokaandartökum leiksins.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R.-FH 0-0 | Viktor Freyr hetja Leiknis er hann varði vítaspyrnu í uppbótartíma
Leiknir Reykjavík og FH gerðu markalaust jafntefli í sannkölluðum sex stiga fallslag í Bestu deild karla í dag. Gestirnir úr Hafnafirði brenndu af tveimur vítaspyrnum í leiknum. Þá fyrri setti Steven Lennon í þverslána og þá síðari, á síðustu mínútu uppbótartíma, varði Viktor Freyr Sigurðsson frá Birni Daníel Sverrissyni.

„Við erum aldrei að fara að falla úr þessari deild“
Atli Jónasson, markvörður Leiknis, lék í gær sinn fyrsta leik í efstu deild í 13 ár þegar Leiknir og Breiðablik áttust við í 19. umferð Bestu-deildar karla.

Spilaði síðast í efstu deild 2009 en varði víti gegn toppliðinu á sunnudag
Atli Jónasson stóð óvænt í marki Leiknis Reykjavíkur er liðið heimsótti Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, á sunnudagskvöld. Toppliðið vann vissulega öruggan sigur en Atli, sem var að spila aðeins sinn annan leik í efstu deild, stóð sig með prýði og varði meðal annars vítaspyrnu frá Höskuldi Gunnlaugssyni.

Fór út af vegna höfuðmeiðsla eftir að hafa nýlega jafnað sig á heilahristingi
Það ætlar ekki af miðverðinum Óttari Bjarna Guðmundssyni að ganga eftir endurkomu hans í Breiðholtið. Hann fór meiddur af velli í leik Breiðabliks og Leiknis í Bestu deild karla í gærkvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik 4-0 Leiknir | Blikar ekki í vandræðum með Leikni
Breiðablik vann sannfærandi 4-0 sigur á Leiknismönnum í 18. umferð Bestu deildarinnar í kvöld.

Rangur bróðir fékk skráð á sig sjálfsmark
Um tíma leit út fyrir að bræður hefðu skorað sjálfsmark fyrir sitt hvort liðið í sama leiknum í Bestu deild karla í gær. Þegar betur var að gáð þá ætti það ekki að vera þannig.

Sjáðu mörkin: Langþráður sigur FH, aukaspyrna Tryggva Hrafns og markaveisla í Breiðholti
Fjórtán mörk voru skoruð í þremur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. FH vann þar sinn fyrsta deildarsigur eftir þjálfaraskipti í júní, sjö mörk voru skoruð í Breiðholti og fjögurra marka jafntefli var í Víkinni.

„Ég gleymdi þessu sjálfsmarki um leið“
Bjarki Aðalsteinsson, fyrirliði Leiknis, skoraði sjálfsmark í 4-3 sigri þeirra á KR-ingum. Það skipti hann hins vegar litlu máli eftir leikslok.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. 4-3 KR | Markaveisla í Breiðholti
Botnlið Bestu-deildarinnar, Leiknir, vann eins marks sigur á KR í sjö marka leik í Breiðholti, 4-3. Leiknir lyftir sér úr botnsæti deildarinnar með sigrinum á meðan tapið heggur skrað í Evrópudrauma KR-inga.

Sigurður Heiðar: „Skorti hugrekki og trú þegar á hólminn var komið"
Sigurður Heiðar Höskuldsson var missáttur við frammistöðu lærisveina sinna hjá Leikni Reykjavík þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Fram í Bestu deild karla í fótbolta í Úlfarsárdal í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Fram-Leiknir R. 4-1 | Fram forðast fallsvæðið enn frekar
Fram hafði betur með fjórum mörkum gegn einu þegar liðið fékk Leikni Reykjavík í heimsókn í Úlfarsárdal í 17. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fram er nú að gæla sterklega við að komast á efra skiltið á töflunni en Leiknir er enn í kjallaranum.

Sjáðu vítaklúðrið, Skagamanninn klára Skagamenn og gjöf Leiknis í lokin
Sextándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk í gær með þremur leikjum og bættust þar sex mörk fyrir þau tuttugu sem voru skoruð í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir-Keflavík 1-2 | Frans tryggði Keflavík sigur á síðustu stundu
Keflavík sótti þrjú stig þegar liðið mætti Leikni Reykjavík í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Domusnova-vellinum í Breiðholti í kvöld. Sigurmark Keflavíkur kom eftir klaufagang í vörn Leiknis í uppbótartíma leiksins.

Leiknir getur sent FH í fallsæti með sigri á Keflavík
Leiknir Reykjavík tekur á móti Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fari svo að heimamenn landi sigri þá fara þeir upp fyrir FH í töflunni og senda Hafnfirðinga þar með í fallsæti.

Freyr réttir Leiknismönnum hjálparhönd
Leiknir R. hefur fengið danska framherjann Zean Dalügge á láni frá Lyngby. Lánssamningurinn gildir út tímabilið.

Pólski landsliðsmaðurinn yfirgefur Leikni
Maciej Makuszewski, sem á að baki fimm leiki fyrir pólska landsliðið í fótbolta, hefur yfirgefið Leikni og heldur heim á leið.

Adam Örn leikur með Leikni fram á haustið
Adam Örn Arnarson, leikmaður Breiðabliks, hefur verið lánaður í Leikni Reykjavík og mun hann leika þar út yfirstandandi leiktíð.

Umfjöllun: Leiknir - ÍBV 1-4 | Eyjamenn sendu Breiðhyltinga í fallsæti
ÍBV vann 4-1 sigur á Leikni Reykjavík á heimavelli síðarnefnda liðsins í Breiðholti í fyrsta leik 14. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. ÍBV vann þar með annan leik sinn í röð.

Stórkostleg frammistaða í Besta þættinum
Fulltrúar ÍBV og Leiknis úr Breiðholti áttust við í bráðfjörugri keppni í nýjasta þætti Besta þáttarins sem nú er hægt að sjá hér á Vísi.