Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 148 ›
Þórdís verði forsætisráðherra og Bjarni komi nýr inn Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur eins og margir þátt í samkvæmisleiknum um það hver verði stólaskipan ríkisstjórnarinnar eftir helgi. Hún veðjar á að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir verði forsætisráðherra og Bjarni Jónsson matvælaráðherra. Innlent 6.4.2024 07:51
Gagnrýna bæjarstjórn fyrir samráðsleysi og vilja fjölbreyttari úrræði Fyrirtæki í Grindavík kalla eftir mun fjölbreyttari úrræðum vegna stöðunnar í bænum. Algjör óvissa sé um hvort og hvenær íbúar geti snúið til baka og því ljóst að hluti fyrirtækja muni þurfa að hætta starfsemi í bænum. Bæjarstjórn er gagnrýnd fyrir samráðsleysi. Innlent 5.4.2024 20:01
Vinstri græn vilja halda samstarfinu áfram Fullur vilji er hjá Vinstri grænum að halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram eftir brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur sem forsætisráðherra, að sögn Guðmundar Inga Guðbrandssonar, starfandi formanns flokksins. Hann segist ekki hafa ákveðið hvort hann sækist eftir að leysa Katrínu af hólmi. Innlent 5.4.2024 18:54
Ráðherrarnir mættir í kveðjuskál til Katrínar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er mætt á heimili hennar í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem einhvers konar kveðjustund fer fram. Katrín hefur leitt ríkisstjórnina í sjö ár en með framboði sínu til forseta Íslands lýkur senn löngum kafla hennar í stjórnmálum. Innlent 5.4.2024 18:28
Útilokar ekki kosningar eftir brotthvarf forsætisráðherra Formaður Framsóknarflokksins útilokar ekki að til kosninga komi eftir að Katrín Jakobsdóttir tilkynnti um að hún ætlaði að biðjast lausnar sem forsætisráðherra til að fara í forsetaframboð í dag. Eðlilegast sé þó að núverandi stjórnarflokkar ræði fyrst saman. Innlent 5.4.2024 18:04
Segist ekki verða pólitískur forseti Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi segist ekki munu verða pólitískur forseti. Hún segi nú skilið við stjórnmálin eftir tveggja áratuga starf. Innlent 5.4.2024 15:25
Þórdís veifar hvíta fánanum til Eyja Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir efnahags- og fjármálaráðherra hefur óskað eftir því að málmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12, en það varðar eyjar og sker, verði frestað svo unnt sé að endurskoða kröfur ríkisins. Innlent 5.4.2024 15:10
Bein útsending: Mikilvægi og framtíð kvikmyndagerðar á Íslandi Menningar- og viðskiptaráðuneytið í samstarfi við Íslandsstofu og Kvikmyndamiðstöð Íslands stendur fyrir ráðstefnu um efnahagslegt mikilvægi og framtíð kvikmyndagerðar á Íslandi í Hörpu frá klukkan 15 til 17. Innlent 5.4.2024 15:36
Fjármálaráðherra segir „lágmarks kurteisi“ að taka fram þegar gullhúða á lög Fjármála- og efnahagsráðherra sagði að það væri „lágmarks kurteisi“ að tekið væri fram í lagafrumvörpum þegar gengið væri lengra en EES-samningurinn kveði á um. Lagaprófessor sagði að það væri talsvert um að slíkt væri ekki haft upp á borðum. Það væri ólýðræðislegt gagnvart Alþingismönnum. Við þær aðstæður telji þeir að verið sé að innleiða reglur samkvæmt EES-samningum þegar svo sé ekki. Innherji 5.4.2024 14:14
Svona var fyrsta viðtal Katrínar sem forsetaframbjóðandi Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, veitir fjölmiðlum viðtöl í Hörpu klukkan 14. Innlent 5.4.2024 13:49
Katrín gefur kost á sér Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til embættis forseta Íslands. Innlent 5.4.2024 13:06
Katrín búin að taka ákvörðun og upplýsa ríkisstjórn Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir Katrínu hafa greint ríkisstjórn frá ákvörðun sinni. Það sagði hann að loknum ríkisstjórnarfundi. Forsætisráðherra muni sjálf tilkynna um ákvörðun sína. Innlent 5.4.2024 12:15
Katrín vildi engum spurningum svara Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra yfirgaf ríkistjórnarfund morgunsins án þess að gefa sér tíma til að svara spurningum fjölmiðla varðandi líklegt forsetaframboð sitt. Hún sagðist vera á leið í stjórnarráðið og myndi ræða við fjölmiðla síðar í dag. Innlent 5.4.2024 11:57
„Það er ákveðið óvissustig núna“ Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að möguleg ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, hafi ekki verið til formlegrar umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. Innlent 5.4.2024 11:55
Katrín hafi enn ekki ákveðið sig Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna, segir forsætisráðherra ekki enn hafa tilkynnt ákvörðun sína um mögulegt forsetaframboð. Innlent 5.4.2024 11:49
Katrín eigi næstu klukkustundir í opinberri umræðu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahags segir ríkisstjórnarfundinn sem var að ljúka hafa verið nokkuð hefðbundinn. Það hafi verið farið yfir mörg mál. Innlent 5.4.2024 11:49
Vaktin: Dagurinn sem Katrín Jakobsdóttir bauð sig fram sem forseta Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tilkynnt að hún muni biðjast lausnar úr embættinu og gefa kost á sér í komandi kosningum til embættis forseta Íslands. Katrín tilkynnti ákvörðun sína með myndbandi á samfélagsmiðlum og ræddi svo við fjölmiðla. Innlent 5.4.2024 08:36
Telur Jón Gnarr geta verið kryptónít Katrínar Jón Gnarr gæti truflað ímynd Katrínar Jakobsdóttur í kosningabaráttu um embætti forseta Íslands, segir Andrés Jónsson almannatengill. Hann líkir Jóni við skáldaða efnið kryptónítið sem veikir ofurhetjuna Súperman. Innlent 4.4.2024 23:15
Framboðið hafi ekkert með Katrínu að gera Allt bendir til þess að Katrín Jakobsdóttir bjóði sig fram til forseta á morgun. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, sem tilkynnti um forsetaframboð í dag, segir framboð sitt ekkert hafa með forsætisráðherra að gera. Innlent 4.4.2024 20:24
Eðlilegt að bankarnir taki þátt í að fjármagna gjaldeyrisforðann Seðlabankinn hefur skikkað viðskiptabankanna til að auka vaxtalausar innistæður sínar hjá Seðlabankanum til að auka traust á peningastefnunni. Þetta vinnur gegn tapi Seðlabankans vegna neikvæðs vaxtamunar á tekjum hans og gjöldum. Innlent 4.4.2024 19:30
Katrín hafi mátað sig við forsetann frá tilkynningu Guðna Andrés Jónsson almannatengill segir að samkvæmt sínum heimildum hafi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verið að íhuga framboð til forseta Íslands frá því á nýársdag, þegar Guðni Th. Jóhannesson forseti tilkynnti að hann byði sig ekki fram í þriðja sinn. Innlent 4.4.2024 18:46
Bjartsýn á að samningar náist Katrín Jakobsdóttir forætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands sem fór fram í Hörpu í dag. Í ávarpi sínu segist hún vera bjartsýn á að hópar á almennum vinnumarkaði og starfsfólk hins opinbera muni fylgja á eftir og gera langtímakjarasamninga á borð við þá sem gerðir voru af aðilum á vinnumarkaði við Samtök atvinnulífsins í mars. Innlent 4.4.2024 18:24
Þarf að afhenda reikninga lögmannsstofunnar sem hefur malað gull Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verið gert að afhenda Frigusi II, sem lengi hefur staðið í stappi við ríkið í Lindarhvolsmálinu svokallaða, reikninga frá lögmannsstofunni Íslögum án yfirstrikana. Frá ársbyrjun 2018 hefur ráðuneytið greitt stofunni áttatíu milljónir króna. Innlent 4.4.2024 17:00
„Þessi stjórn er ekki að fara að springa í dag“ Prófessor í stjórnmálafræði segir líkurnar á því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bjóði sig ekki fram til forseta hverfandi. Eina sem gæti komið í veg fyrir það er ef ósætti er meðal ríkisstjórnarflokkanna um framboðið og möguleiki á að ríkisstjórnin springi. Innlent 4.4.2024 15:07
Segir mögulegt framboð Katrínar jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórn Þingmaður Pírata segir það jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina ef forsætisráðherra ákveður að fara í forsetaframboð. Hún segir það sýna mikið dómgreindarleysi að íhuga framboð sem forsætisráðherra og að ríkisstjórnin sé búin að gera skrípaleik úr því að stjórna landinu. Innlent 4.4.2024 12:57
Pallborðið: Forsetakapallinn og ríkisstjórn án Katrínar Talið er næsta víst að Katrín Jakobsdóttir muni áður en vikan er úti gefa kost á sér til embætti forseta Íslands og um leið biðjast lausnar sem forsætisráðherra landsins. Innlent 4.4.2024 10:21
Ný áfengis- og vímuvarnarstefna verði samvinnuverkefni allra þingflokka Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur kallað eftir samvinnu allra þingflokka við nýja stefnu í áfengis- og vímuvörnum. Starfshópur sem hann skipaði fyrir um ári síðan um nýja stefnu í skaðaminnkun á að skila til að hans tillögum á næstu vikum. Willum Þór segir ópíóíða þurfa miklu meiri athygli. Innlent 4.4.2024 08:50
Bíður enn svara frá Bankasýslunni og áformar að leggja hana niður Fjármála-og efnahagsráðherra segir kaup Landsbankans á TM tryggingafélagi í höndum Bankasýslu ríkisins, aðspurð hvort hún ætli að reyna að koma í veg fyrir kaupin. Hún væntir skýringa frá Bankasýslunni á aðkomu stofnunarinnar að kaupunum í næstu viku. Þá standi enn til að leggja Bankasýsluna niður. Innlent 3.4.2024 20:01
Segir „leik“ Katrínar stærsta aprílgabb sem til er Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata fer hörðum orðum um vinnubrögð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra vegna mögulegs forsetaframboðs í Facebook færslu í dag. Innlent 3.4.2024 19:58
Undarleg sviðsmynd hlyti Katrín ekki brautargengi og sneri aftur sem forsætisráðherra Eva Heiða Önnudóttir stjórnmálafræðingur segir að það yrði allt óvanalegt við það ef Katrín Jakobsdóttir færi í framboð til embættis forseta Íslands. Þá gæti myndast snúin staða ef Katrín næði ekki kjörin og myndi ákveða að snúa aftur í forsætisráðuneytið undir forseta sem hún hafi verið í baráttu við um embættið. Innlent 3.4.2024 19:32