
Hildur Guðnadóttir

Hildur Guðna og Sam giftu sig á ástarfleyi
Tónlistarkonan og Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir og bandaríska tónskáldið Sam Slater giftu sig í Þýskalandi um helgina. Brúðkaupið fór fram á bát í borginni Berlín, eða á ástarfleyi eins og móðir Hildar orðar það.

Hildur endurheimti hljóðfærið
Tónskáldið Hildur Guðnadóttir hefur endurheimt einstakt hljóðfæri, sem stolið var þegar brotist var inn á heimili hennar í Berlín í fyrradag. Hljóðfærið, sem minnir á selló og er kallað dórófónn í höfuðið á hönnuði þess Halldóri Úlfarssyni, vakti heimsathygli árið 2020 þegar Hildur notaði það í tónlist stórmyndarinnar Joker.

Brotist inn til Hildar
Brotist var inn til óskarsverðlaunahafans Hildar Guðnadóttur í Berlín. Hildur segir innbrotsþjófinn hafa stolið hljóðfæri sem hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir hana en sé verðlaust fyrir þjófinn. Hún óskar eftir hjálp við að finna hljóðfærið.

Hildur Guðna ekki tilnefnd til Óskarsverðlauna
Hildur Guðnadóttir er ekki tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í ár. Hún átti möguleika á tilnefningu fyrir tónlistina í kvikmyndinni Women Talking.

Hildur ekki tilnefnd til BAFTA verðlaunanna
Tónskáldið Hildur Guðnadóttir er ekki tilnefnd til bresku sjónvarpsverðlaunanna BAFTA í ár.

Hildur vann til verðlauna á Critics‘ Choice
Hildur Guðnadóttir vann til verðlauna fyrir bestu tónlist í kvikmynd á Critics‘ Choice verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt.

Tónlistin í Babylon þótti best
Hildur Guðnadóttir var ekki meðal sigurvegara á Golden Globe verðlaunahátíðinni að þessu sinni en hún var tilnefnd fyrir tónlistina í myndinni Women Talking. Það var Justin Hurwitz sem tók verðlaunin heim, fyrir Babylon.

Tónlist Hildar í tveimur myndum á lista fyrir BAFTA
Tónlist tónskáldsins Hildar Guðnadóttur í kvikmyndunum Tár og Women Talking er á stuttlista fyrir BAFTA verðlaunin. Hildur hefur áður unnið BAFTA verðlaun fyrir tónlist sína auk þess sem hún hefur unnið Óskarsverðlaun, Grammy, Golden Globe og Critic‘s Choice verðlaun.

Óskarsdraumar Hildar lifa áfram
Women Talking er ein tíu mynda sem eiga möguleika á tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir bestu tónlist. Hildur Guðnadóttir gerði tónlistina og lifa Óskarsdraumarhennar áfram. Um tíma var talið líklegt að Hildur yrði tilnefnd fyrir tónlist úr tveimur myndum en hún mun ekki hljóta tilnefningu fyrir tónlistina í kvikmyndinni Tár. Hildur fékk Óskarsverðlaunin árið 2020 fyrir kvikmyndina Joker.

Tónlist Hildar úr Tár útilokuð frá Óskarnum en annað verk hennar talið líklegt
Útilokað er að tónskáldið Hildur Guðnadóttir verði tilnefnd tvisvar í sama flokknum til Óskarsverðlauna á næsta ári eins og áður var talið mögulegt. Tónlist hennar úr myndinni Tár kemur ekki til greina. Þó er talið er líklegt að Hildur verði tilnefnd fyrir tónlistina í myndinni Women Talking.

Hildur Guðnadóttir hlýtur Golden Globe tilnefningu fyrir Women Talking
Tilnefningarnar til Golden Globe verðlaunanna voru tilkynntar rétt í þessu. Tónskáldið Hildur Guðnadóttir hlýtur tilnefningu fyrir Women Talking þar sem Rooney Mara og Frances McDormand fara með aðalhlutverk.

Hildur Guðnadóttir eigi möguleika á að slá met hljóti hún tilnefningu
Íslenska tónskáldið Hildur Guðnadóttir er sögð eiga möguleika á því að vera tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna á komandi hátíð. Bæði fyrir tónlist sína í kvikmyndinni „Tár“ og „Women Talking.“

Hildur Guðna orðuð við Óskarsverðlaun
Kvikmyndin Tár var í dag frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Cate Blanchett fer með aðalhlutverk myndarinnar og samdi Hildur Guðnadóttir tónlistina. Hildur er sögð líkleg til að vinna Óskarsverðlaun fyrir myndina.

Fékk lag frá Hildi Guðnadóttur í stuttmyndina sína
Eydís Eir Brynju- og Björnsdóttir gaf nýlega út stuttmyndina Chrysalis. Myndin fjallar um Tourette heilkennið og í aðalhlutverki er 13 ára stúlka. Lag eftir margverðlaunaða tónskáldið Hildi Guðnadóttur er notað í myndinni.

Bein útsending: Íslensk kvikmyndatónlist rædd á Bransadögum RIFF
Yfir hundrað fagaðilar, blaðamenn og kvikmyndagerðarmenn koma að utan og taka þátt í Bransadögum RIFF í ár en þeir hefjast í dag í Norræna húsinu og standa til 9. október.

Joker sýnd í Hörpu á RIFF: Tónlist Hildar Guðna flutt af Kvikmyndahljómsveit Íslands
Tónlist af ýmsu tagi verður í forgrunni á RIFF í ár sem hefst í lok mánaðar, þann 30. september til 10. október. Meðal annars verður sérstök sýning á Óskarsverðlaunamyndinni Joker við undirspil hljóðfæraleikara.

Hildur vinnur Grammy-verðlaun fyrir Jókerinn
Hildur Guðnadóttir, tónskáld, vann í dag Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker. Hildur vann Óskarsverðlaun fyrir tónlistina í fyrra og Grammy-verðlaun í sama flokki í fyrra fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl.

„Mikilvægast af öllu að eiga hamingjusamt líf“
„Báðir foreldrar mínir eru tónlistarfólk og því er þetta bæði í blóðinu og ég uppalin við mikla tónlist. Ég man ekki hvenær það byrjaði en það hefur einhvern veginn alltaf verið til staðar. Þegar mamma var ólétt sagðist hún vita að ég myndi heita Hildur og að ég yrði sellóleikari,“ segir Hildur Guðnadóttir.

Íslensk erfðagreining hlýtur Útflutningsverðlaun forsetans
Íslensk erfðagreining hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2020. Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins, veitti verðlaununum viðtöku við lokaða athöfn í Hörpu en við sama tilefni var tónskáldinu og tónlistarkonunni Hildi Guðnadóttur veitt heiðursviðurkenning fyrir störf sín á erlendri grund.

Atli fær Grammy-tilnefningu
Tónlistarmaðurinn Atli Örvarsson er tilnefndur til Grammy-verðlaunanna fyrir tónlistina í kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire and Saga.

Hildur tilnefnd til Grammy-verðlauna í annað sinn
Hildur vann Grammy-verðlaun á þessu ári. Hún gæti unnið tvenn til viðbótar í janúar 2021.

Enn sópar Hildur að sér verðlaunum fyrir Joker
Hildur Guðnadóttir, tónskáld og Óskarsverðlaunahafi, vann í gær til enn einna verðlaunanna fyrir tónlist sína fyrir kvikmyndina Joker

Hildur Guðna tilnefnd til sjónvarpsverðlauna BAFTA
Hildur Guðnadóttir tónskáld er tilnefnd til bresku sjónvarpsverðlauna BAFTA fyrir tónlist hennar í þáttunum Chernobyl en þættirnir fá alls 14 tilnefningar. BBC greinir frá.

Vök með flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2020 voru tilkynntar rétt í þessu.

Bein útsending: Samtal við Hildi Guðnadóttur
Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir er annar lykilfyrirlesara níundu Hugarflugsráðstefnu Listaháskóla Íslands sem hófst í dag.

„Loksins komin heim með tárin í augunum“
"Guð minn góður kæru vinir og vandamenn. Ég er loksins komin heim með tárin í augunum að lesa allar kveðjurnar frá ykkur.“

Hildur breytir sögunni hvað varðar konur í kvikmyndatónlist
Það má segja að Hildur Guðnadóttir hafi breytt sögunni hvað varðar kynjahlutföll þegar kemur að verðlaunum í tengslum við kvikmyndatónlist.

Nærmynd af Hildi Guðnadóttur: Heil, hlý og litríkur sprelligosi
Hildur Guðnadóttir tónskáld vann eins og allir vita Óskarsverðlaun fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker í gærkvöld.

Skreyta Hörpu með nafni Hildar
Tónlistarhúsið Harpa mun heiðra Hildi Guðnadóttur, tónskáld og fyrsta Óskarsverðlaunahafa Íslands með kveðju á glerhjúpi hússins í kvöld. Þessa stundina má sjá orðin "Til hamingju Hildur!“ lýsa upp Hörpuna að utan og getur fólk vænst þess að sjá hamingjuóskirnar fram til miðnættis.

Hildur heiðruð með kveðju á Hörpu
Hildur Guðnadóttir, tónskáld og fyrsti Óskarsverðlaunahafi Íslands, fær ljómandi hamingjuóskir frá tónlistarhúsinu Hörpu í kvöld. Til stendur að birta kveðjuna "Til hamingju Hildur!“ á glerhjúpi hússins.