Nýr listi yfir þær kvikmyndir sem eiga möguleika á að vinna til Óskarsverðlauna í tíu flokkum var birtur í dag. Kom þar í ljós að Hildur gæti hlotið tilnefningu fyrir bestu tónlistina fyrir kvikmyndina Women Talking en fimm af myndunum tíu munu hljóta tilnefningu.
Hún hlýtur ekki tilnefningu fyrir kvikmyndina Tár en fyrir rúmri viku var greint frá því að of hátt hlutfall tónlistar myndarinnar sé samið af öðrum en Hildi til að hún gæti verið tilnefnd.
Tilkynnt verður um tilnefningar til Óskarsverðlauna þann 24. janúar næstkomandi en verðlaunahátíðin sjálf fer svo fram 12. mars.
Meðal þeirra sem berjast við Hildi um tilnefningu eru Ludwig Göransson fyrir Black Panther: Wakanda Forever, Alexandre Desplat fyrir Pinocchio og tónlistargoðsögnin John Williams. Williams gæti fengið sína 53. tilnefningu sem er það mesta fyrir núlifandi einstakling.
Einnig var tilkynnt hvaða kvikmyndir eiga möguleika á tilnefningu sem besta erlenda myndin. Kvikmyndin Berdreymi var framlag Íslands en mun ekki eiga möguleika á tilnefningu.