Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. september 2026 20:00 Unnur Birna Backman fer með hlutverk Elmu í samnefndum spennuþáttum og Nikulás Hansen Daðason leikur samstarfsmann hennar, Sævar. Juliette Rowland Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á fyrstu stiklu þáttanna Elmu, sem er ný íslensk spennuþáttaröð úr bókinni Marrið í stiganum eftir Evu Björgu. Unnur Birna Backman og Nikulás Hansen Daðason fara með aðalhlutverk.
Elma verður frumsýnd í Sjónvarpi Símans Premium 15. október. Þættirnir eru byggðir á glæpasögu Evu Bjargar og nú hefur fyrsta stiklan úr þáttunum litið dagsins ljós, en hana má sjá í spilaranum hér að neðan: Klippa: Stikla úr sjónvarpsþáttunum Elmu Sjónvarpsserían Elma segir frá rannsóknarlögreglukonunni Elmu Jónsdóttur sem snýr aftur á æskuslóðir sínar á Akranesi eftir mikið áfall í Reykjavík. Hún vonast eftir rólegra lífi á Skaganum en það reynist skammgóður vermir. „Við höfum verið mjög spennt fyrir því að sýna Elmu og er sérstaklega gaman að geta loksins gefið fólki fyrstu almennilegu innsýnina í þættina. Marrið í stiganum er frábær grunnur að spennandi íslenskri þáttaröð. Við hlökkum mikið til að áhorfendur fái að kynnast Elmu og þessum heimi í október,“ segir Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum. Unnur Birna Backman fer með hlutverk Elmu.Juliette Rowland Fljótlega eftir heimkomuna dregst Elma inn í rannsókn sem teygir anga sína langt aftur í fortíð bæjarins. Mál sem í fyrstu virðist afmarkað vekur upp spurningar um hvarf átta ára stúlku 25 árum áður og smám saman fara gömul leyndarmál að koma upp á yfirborðið. Með Elmu í rannsókninni er samstarfsmaður hennar, Sævar, og saman þurfa þau að greiða úr flóknu máli þar sem fortíð og nútíð fléttast saman og ekki er allt sem sýnist. Þættirnir hefja göngu sína á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi. „Það var mikill heiður á sínum tíma að ná samningum við Evu Björgu og Forlagið um þennan bókaflokk. Bækurnar um Elmu hafa komið út í hátt í tuttugu löndum og Eva Björg á því lesendahóp langt út fyrir landsteinana, þannig að serían stendur á góðum grunni. Nú er loksins komið að frumsýningu og við hlökkum til að koma sögunni til íslenskra áhorfenda. Svo vonum við að þættirnir eigi eftir að ferðast jafn víða og bækurnar,“ segir Andri Ómarsson, framkvæmdastjóri Glassriver. Glassriver framleiðir Elmu í samstarfi við Símann og Mediawan.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira