
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Nýtt met: 2.489 greindust innanlands í gær
2.489 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 106 á landamærum. Aldrei hafa fleiri greinst á einum degi.

Karlmaður á sextugsaldri með Covid lést á gjörgæslu
Karlmaður á sextugsaldri með COVID-19 lést á gjörgæslu í gær.

Enginn í öndunarvél annan daginn í röð
48 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu. Enginn er í öndunarvél, annan daginn í röð.

Heilsugæslan og Læknavaktin taka við Covid-göngudeildinni
Heilsugæslan og Læknavaktin munu taka við meginhluta af þjónustu og eftirliti með þeim sem eru veikir af Covid-19 af Landspítala frá og með deginum í dag. Yfirfærslan er í samræmi við þróun faraldursins hér á landi þar sem sífellt færri greinist alvarlega veikir.

Bólusetning virðist vernda gegn langvinnu Covid
Heilbrigðisöryggisstofnun Bretlands hefur yfirfarið fjölda breskra og alþjóðlegra rannsókna um áhrif bóluefna á svokölluðu langvinnu Covid og komist að þeirri niðurstöðu að bólusetning virðist veita ákveðna vörn.

Stutt gaman hjá Sturlu
Eftir að hafa verið í einangrun og svo sóttkví vegna kórónuveirusmits stærstan hluta Vetrarólympíuleikanna náði Sturla Snær Snorrason ekki langt í svigi í nótt.

Um helmingur íbúa lést á innan við mánuði
Saksóknari í Katalóníu á Spáni hefur ákært tvo stjórnendur öldrunarheimilis fyrir manndráp, en á innan við mánuði, létust 64 íbúar heimilisins, nær helmingur íbúa, vegna Covid 19. Lýsingar saksóknara á ástandinu á heimilinu minna á atriði úr hryllingsmynd.

Öllu aflétt eftir tíu daga og jafnvel fyrr
Heilbrigðisráðherra segir stefnt að því að aflétta öllum sóttvarnaraðgerðum eftir tíu daga og jafnvel fyrr ef aðstæður leyfa. Einangrun verði þá einnig aflétt en ráðherra hvetur þá sem veikjast til þess að halda sig heima - líkt og í öðrum veikindum.

1.712 greindust innanlands í gær
1.712 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 162 á landamærum.

Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fjölgar milli daga
47 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim um sex milli daga.

Munu geta fryst bankareikninga mótmælenda
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur veitt yfirvöldum auknar heimildir til að reyna að bæla niður þau mótmæli gegn bólusetningarskyldu sem staðið hafa í landinu síðustu vikur. Þetta er í fyrsta skipti sem forsætisráðherra Kanada virkjar ákvæði sérstakra neyðarlaga með þessum hætti.

Ríkissjóður greitt 1,3 milljarða fyrir hraðpróf
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa greitt rúmar 950 milljónir króna til einkaaðila vegna hraðprófa. Að sögn SÍ er líklegt að þessi tala eigi eftir að hækka þar sem reikningar fyrir þessa þjónustu berist stofnuninni með óreglulegum hætti.

Gætu þurft að kalla starfsfólk úr einangrun svo spítalinn geti starfað
Til skoðunar er að stytta eða hreinlega aflétta einangrun heilbrigðisstarfsfólks á næstunni til að leysa mönnunarvanda. Rúmlega þrjú hundruð starfsmenn eru frá vinnu á spítalanum vegna þess að þeir eru í einangrun.

Fjarvistir vegna COVID-19 valda áhyggjum
Allverulega hefur bæst í hóp þeirra sem eru frá vinnu á Landspítalanum vegna kórónuveirusýkingar. Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum segir þungar vikur fram undan. Möguleg allsherjar aflétting á sóttvarnatakmörkunum í samfélaginu fyrir mánaðamót veldur viðbragðsstjórn áhyggjum.

1.890 greindust innanlands í gær
1.890 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 62 á landamærum.

41 sjúklingur nú á Landspítala með Covid-19
41 sjúklingur liggur nú á Landspítala með Covid-19, sami fjöldi og í gær. Tveir eru á gjörgæslu, og þar af annar í öndunarvél.

Segir nýjustu bylgju Covid bera Hong Kong ofurliði
Carrie Lam, leiðtogi Hong Kong, segir nýjustu bylgju Covid-19 sem gengur nú yfir eyjuna vera að bera heilbrigðiskerfið þar ofurliði. Smituðum hefur fjölgað hratt þar á undanförnum dögum en í byrjun mánaðarins greindust um hundrað smitaðir á hverjum degi en í gær greindust 1.300.

Rúmlega 2.000 greindust í gær og smituðum fjölgar á Landspítala
2.054 manns greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær. Þá greindust 17 á landamærunum.

Segir Íslendinga standa á krossgötum þar sem Kanada er víti til varnaðar
Hjúkrunarfræðingur í framhaldsnámi í Kanada segir stöðuna þar í landi vera á suðupunkti vegna mótmæla en þau beinast í auknum mæli gegn heilbrigðisstarfsmönnum. Hún telur mikilvægt að Ísland fari ekki sömu leið og Kanada hefur gert og segir mikilvægt að landsmenn finni samstöðuna á ný.

Vinna að því að fjarlægja mótmælendur af Ambassador brúnni
Lögreglan í Ontario hefur nú hafist handa við að koma fólki frá sem hefur undanfarna viku mótmælt á Ambassador brúnni, sem tengir Ontario við Bandaríkin í gegnum Detroit borg.

Fólk stundum feimið við að taka niður grímuna
Framkvæmdastjóri Krónunnar segir enn marga feimna við að taka grímuna af sér eftir að slakað var á samkomutakmörkunum í gær. Hún telur að afnám grímuskyldu eigi eftir að ganga vel og segir það ekki síst létti fyrir starfsfólk.

Styrkjum íþróttafélögin í landinu
Íþróttafélög, héraðssambönd og sérsambönd í landinu hafa tapað miklum fjármunum í Covid, tapið hleypur á milljörðum, ekki síst vegna fækkunar áhorfenda og niðurfellingar á viðburðum. Til viðbótar er það reynsla margra félaga að erfiðara sé að fá styrki frá fyrirtækjum en áður var.

Gylfi bíður eftir uppsögn
Gylfi Þór Þorsteinsson segir að þrátt fyrir að áfram sé töluvert álag á farsóttahúsin þá búist hann við að þeim verði lokað fyrr en síðar. Starfsfólk sé þegar farið að svipast um eftir öðrum störfum. Sjálfur hefur Gylfi verið áberandi í heimsfaraldrinum sem forstöðumaður farsóttahúsanna.

Karlmaður á þrítugsaldri með Covid lést á gjörgæslu
Karlmaður á þrítugsaldri með Covid-19 lést á gjörgæslu Landspítalans í gær.

2.029 greindust smitaðir innanlands í gær
2.029 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær en 49 á landamærunum.

Katrín með Covid
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er með Covid-19. Frá þessu greinir Katrín á Facebook-síðu sinni í dag.

Sturla Snær keppir ekki í nótt
Skíðamaðurinn Sturla Snær Snorrason mun ekki keppa í stórsvigi í nótt. Sturla Snær er hluti af íslenska hópnum sem tekur nú þátt á vetrarólympíuleikunum en hann greindist með Covid-19 fyrir viku og hefur ekki enn jafnað sig.

Vörubílstjórar mótmæla enn þrátt fyrir lögbann
Ekkert lát er á mótmælum vörubílstjóra í Kanada þrátt fyrir að dómstóll hafi úrskurðað að mótmælunum skyldi hætt í gær.

Þessar tilslakanir tóku gildi á miðnætti
Nú á miðnætti tók gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir. Með nýrri reglugerð mega 200 manns koma saman innandyra og fjöldatakmarkanir utandyra falla alfarið á brott.

Böllin verða víruð, rosaleg, geggjuð
Á meðan segja má að enginn hópur hafi þurft að að súpa seyðið af sóttvarnatakmörkunum svo mjög sem ungmenni undanfarin misseri, er líka hægt að segja að enginn hópur hafi nú endurheimt frelsið með eins ótvíræðum hætti.