
Eldri borgarar

Fólkið sem má ekki hitta neinn
Talið er að hátt í sjötíu þúsund Íslendingar, ungir og aldnir, tilheyri áhættuhópum og eru taldir líklegri til að veikjast alvarlega af völdum veirunnar en aðrir. Þetta fólk hefur meira og minna verið í svokallaðri verndarsóttkví frá byrjun mars og það sér ekki fyrir endann á henni.

Íbúar á hjúkrunarheimilum geta fengið einn gest fyrstu vikuna
Lagt er til að aðeins einum aðstandanda íbúa hjúkrunar- og dvalarheimila verði leyft að heimsækja þá fyrstu vikuna eftir að byrjað verður að slaka á heimsóknarbanni sem hefur verið í gildi vegna kórónuveirufaraldursins 4. maí.


Telur ekki ástæðu til að óttast það að heimsóknir hefjist að nýju
Formaður Landssambands eldri borgara segir tillögur um tilslakanir á heimsóknarbanni á hjúkrunarheimilum rökrétt næsta skref.

Fjörutíu daga heimsóknarbann hefur verið mörgum þungbært
Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, segir það hafa verið nauðsynlegt að setja á heimsóknarbann í ljósi þess ástands sem er í samfélaginu vegna kórónuveirufaraldursins.

Þakklát fyrir að muna eftir gleðistundum lífsins
Vígdís Finnbogadóttir segist á níræðisafmæli sínu vera þakklát fyrir að muna eftir hamingjustundum lífsins.

„Eldra fólk sefur ekki, einangrar sig, búið að missa kjarkinn og líður ótrúlega illa“
Formaður Landssambands eldri borgara hefur verulegar áhyggjur af stórum hópi eldra fólks sem hefur einangrast vegna samkomubanns og takmarkana á mannlegum samskiptum.

Alma, Víðir og Þórólfur nýi Dallas eldri borgara
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landsambands eldri borgara, hrósaði Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni, Ölmu Möller landlækni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni í hástert á daglegum upplýsingafundi almannavarna í dag.

Staðfest kórónuveirusmit hjá starfsmanni á Grund
Kórónuveirusmit uppgötvaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í gær. Þrír starfsmenn hafa verið settir í einangrun eða sóttkví. Ekki er grunur um að smit hafi borist til heimilismanna.

Vinnumálastofnun víki frá aldursskilyrðum vegna atvinnuleysisbóta
Félags- og Barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur óskað eftir því að Vinnumálastofnun víki frá aldursskilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar

Öldungur greinist með Covid-19
Einum aldurhópi bætt við súluritið.

Sérstök kórónuveirudeild á Hrafnistu tekin í notkun
Gripið hefur verið til fjölda aðgerða til að reyna að koma í veg fyrir kórónuveirusmit á hjúkrunarheimilum Hrafnistu en á heimilunum dvelja hátt í átta hundruð manns. Í vikunni tók til starfa sérstök deild á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Sléttuveg en henni er ætlað að taka á móti íbúum á Hrafnistu sem greinast með veiruna.

Barnabörnin bíða eftir því að amma Eygló komi og hrekki þau í sóttkvínni
„Ég á sex barnabörn í Borgarnesi og fer því á tvö heimili. Síðan stríði ég líka einhverjum góðum vinum í leiðinni,“ segir Eygló Lind Egilsdóttir, tæplega sjötug kona, sem skemmtir barnabörnum sínum á hverjum degi með því að mæta í búning fyrir utan stofugluggann í Borgarnesi.

„Við ætlum ekki að skilja fólk eftir bara því það átti einhvern afmælisdag“
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, segir nokkur hundruð eldri borgara lenda í því að geta ekki nýtt sér hlutabótaúrræði ríkisstjórnarinnar.

Bjóða 85 ára og eldri sem búa einir að fá símavin í ljósi ástandsins
Hringt verður í allt fólk á aldrinum 85 ára og eldri sem býr einsamalt í Reykjavík og hefur notið þjónustu borgarinnar.

Einmanaleiki: Hinn faldi faraldur
Manneskjan er að eðlisfari félagsvera og má segja að það sé hluti af grunnþörfum mannsins að fá félagsskap. Við höfum flest upplifað einmanaleika einhvern tímann á lífsleiðinni.

Stjörnurnar sungu fyrir eldri borgara í Mörkinni
Sönghópurinn Lóurnar ásamt fleiri komu fram fyrir heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Mörkin en aðstandendur þeirra hafa ekki mátt koma í heimsókn síðustu misseri.

„Við höfum ekki gefið þau tilmæli út að afar og ömmur megi ekki hitta barnabörnin sín“
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að ekki hafi verið gefin út þau tilmæli að ömmur og afar megi ekki hitta barnabörnin sín. Það sé af og frá.

Sjötugur fastur á Spáni og óttast um líf sitt og heilsu
Óskar Hrafn Ólafsson fyrrverandi skipstjóri sér enga leið færa heim.

Fær ekki að hitta eiginkonu sína til sextíu ára
„Enginn getur komið í staðinn fyrir ástvin“, segir maður sem hefur ekki fengið að hitta eiginkonu sína í nærri hálfan mánuð vegna heimsóknarbanns á hjúkrunarheimilum. Þau hjónin hafa verið saman í sextíu ár og segir hann aðskilnaðinn síðustu vikur hafa tekið verulega á.

„Þetta er nákvæmlega sú kynslóð sem vill aldrei vera byrði“
Mikilvægt er að aðstandendur geri sér grein fyrir því að margir eldri borgarar vilji ekki vera byrði og forðist jafnvel að óska eftir aðstoð ef á þarf að halda. Þetta eigi einkum við um þá sem búi einir og eru sérstaklega einangraðir á tímum kórónuveirunnar.

Hugsanlegt að þúsundir eldra fólks séu búnar að loka sig af vegna veirunnar
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að mun fleiri séu í sóttkví hér á landi en opinberar tölur segja til um.

Heimsóknabann og möguleg samskipti
Corona veiran veður yfir heiminn og jafnvel ráðherrar og þingmenn smitast.

Undirbúa aðgerðir sem snúa að viðkvæmustu hópum samfélagsins
Ásmundur Einar Daðason barna- og félagsmálaráðherra segist vona að upplýsingar varðandi áhrif útbreiðslu kórónuveirunnar á viðkvæmustu hópa samfélagsins verði gefnar út sem fyrst. Verið

Heyrir daglega í fjölskyldu sinni í gengum síma vegna heimsóknarbanns
Íbúi á Hrafnistu heyrir daglega í fjölskyldu sinni í síma meðan á heimsóknarbanni stendur vegna kórónuveirunnar.

Fresta aðalfundi Félags eldri borgara vegna kórónuveirunnar
Félag eldri borgara hefur ákveðið að fresta aðalfundi félagsins sem átti að fara fram fimmtudaginn 12. mars. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi félagsins í dag.

„Við megum ekki láta veiruna yfirtaka allt“
Landlæknir segir mikilvægt að ekki verði rof í heilbrigðisþjónustu vegna kórónuveirunnar, ekki eigi til að mynda að afpanta læknistíma nema að höfðu samráði við lækna.

Skoða að kalla inn heilbrigðisstarfsfólk sem komið er á eftirlaun
Sex einstaklingar greindust með kórónuveiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómnum hér á landi í dag og eru stjórnvöld farin að undirbúa aðgerðir til þess að bregðast við álagi.

Stöðva heimsóknir til íbúa Hrafnistuheimilanna
Í Hrafnistuheimilunum átta, sem staðsett eru í fimm sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ hefur verið tekin sú ákvörðun að stöðva allar heimsóknir til íbúa frá og með morgundeginum, 7. mars.

Grái herinn í góðum gír þrátt fyrir kórónuveiru
Þórunn Sveinbjörnsdóttir segir eldri borgara verða 45 þúsund í árslok og óttast ekki að kórónuveiran höggvi skörð í hópinn.