Almannavarnir
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 37 ›
Engar netárásir enn verið gerðar sem nýtt hafa Log4j Engar netárásir hafa enn verið gerðar hér á landi svo vitað sé sem nýtt hafa sér veikleikann Log4j. Áhyggjur eru uppi um að tölvuþrjótar muni nýta sér veikleikann til að koma fyrir vírusum á tölvukerfum. Innlent 13.12.2021 18:50
Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna Log4j Ríkislögreglustjóri í samráði við netöryggissveit CERT-IS og Fjarskiptastofu lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna Log4j veikleikans. Innlent 13.12.2021 17:07
Minnkandi líkur á gosi í Grímsvötnum Veðurstofan hefur fært fluglitakóða fyrir Grímsvötn niður á gult. Í kjölfar aukinnar skjálftavirkni í gærmorgun, þar sem meðal annars mældist skjálfti af stærð 3,6 sem er óvenjustór fyrir Grímsvötn, var fluglitakóðinn settur á appelsínugult í gær. Innlent 7.12.2021 11:20
Eldstöðin Grímsvötn sett á appelsínugula viðvörun Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig vegna Grímsvatna úr gulum lit í appelsíngulan lit fyrir alþjóðflug, sem táknar vaxandi líkur á eldgosi. Þetta var gert klukkan níu í morgun eftir jarðskjálftahrinu í eldstöðinni fyrr um morguninn. Innlent 6.12.2021 10:33
Aflýsa óvissustigi en vara fólk við að fara inn á hraunbreiðuna Ríkislögreglustjóri hefur aflýst óvissustigi vegna eldgoss í Geldingadölum. Þetta er gert í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Ekki hefur sést til hraunflæðis frá gígnum frá 18. september síðastliðnum. Innlent 3.12.2021 12:50
Gígjukvísl orðin tíföld og grannt fylgst með merkjum um gosóróa Hlaupið úr Grímsvötnum brýst núna fram á Skeiðarársandi með vaxandi þunga og var vatnsrennsli í Gígjukvísl í dag orðið tífalt miðað við árstíma. Veðurstofan segir í tilkynningu nú síðdegis að vísindamönnum komi saman um að Grímsvötn séu tilbúin að gjósa. Engin merki hafa þó enn sést um eldsumbrot. Innlent 2.12.2021 20:55
Vatnsflæðið úr Grímsvötnum komið í þrefalt rennsli Ölfusár Kraftur Grímsvatnahlaupsins fer stigvaxandi og er flæðið úr vötnunum núna á við þrefalt rennsli Ölfusár. Þá hefur íshellan yfir vötnunum sigið um sex metra frá því í gær og alls um sextán metra frá því hlaup hófst þar fyrir hálfum mánuði. Engin merki sjást enn um eldsumbrot. Innlent 2.12.2021 12:07
Íshellann í Grímsvötnum sigið um fjórtán metra Íshellan í Grímsvötnum heldur áfram að síga og hefur sigið um fjórtán metra frá því að hún mældist hæst. Vatn úr Grímsvötnum hefur verið að mælast í Gígjukvísl og hefur vatnshæð þar hækkað sem og rennslið. Innlent 2.12.2021 06:29
Grímsvatnahlaupið brestur undan jaðri Skeiðarárjökuls Grímsvatnahlaupið er byrjað að bresta undan jaðri Skeiðarárjökuls og lýstu Almannavarnir síðdegis yfir óvissustigi. Vatnshæðin í Gígjukvísl hefur hækkað um einn metra í dag en hvorki brúin né önnur mannvirki eru talin í hættu. Spenna ríkir um hvort eldgos fylgi hlaupinu en engin merki um gosóróa hafa enn sést. Innlent 1.12.2021 22:11
Reikna með hlaupi úr Grímsvötnum á allra næstu dögum Von er á því að hlaup úr Grímsvötnum í Vatnajökli hefjist á allra næstu dögum. Dæmin hafa sýnt að slíkum jökulhlaupum geta fylgt eldgos. Fundi vísindaráðs Almannavarna lauk á fimmta tímanum í dag. Innlent 24.11.2021 16:48
Flestir viðbragðsaðilar hafa þegar fengið þriðja skammt Viðbragðsaðilar á höfuðborgarsvæðinu hafa þegar fengið örvunarskammt af bóluefni gegn Covid-19 eða klára það á mánudag að sögn yfirlögregluþjóns. Byrjað verður að bjóða almenningi upp á þriðja skammt bóluefnis á mánudag. Innlent 13.11.2021 12:08
Myndasyrpa: Barnsgrátur og brunasár á flugslysaæfingu í Keflavík Fyrsta flugslysæfingin var haldin á Íslandi í fimm ár. Þar var öllu tjaldað til, kveikt í ýmsu braki, sem átti að vera úr flugvél og 150 leikurum, sem léku slaða flugfarþega, komið fyrir víða á stóru svæði við Keflavíkurflugvöll. Innlent 23.10.2021 17:32
Eldgosið fært af hættustigi niður á óvissustig Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að lækka almannavarnastig vegna eldossins í Geldingadölum af hættustigi og niður í óvissustig. Innlent 18.10.2021 15:08
Ekki talin ástæða til rýminga á Seyðisfirði Ekki er talin ástæða til að rýma hús á Seyðisfirði vegna mikillar úrkomu á Austurlandi. Fulltrúar Veðurstofunnar, almannavarna og Múlaþings funduðu í dag vegna úrkomuspár á Austurlandi. Innlent 17.10.2021 17:29
Gæti komið til rýminga á Seyðisfirði vegna rigninga Komið gæti til þess að rýma þurfi einhver hús undir Botnabrún á Seyðisfirði í byrjun næstu viku en mikilli úrkomu er spáð á svæðinu frá aðfaranótt mánudags. Innlent 15.10.2021 16:42
Ekki óhætt að fara að gígnum fyrr en nokkrum mánuðum eftir goslok Of snemmt er að lýsa yfir goslokum í Geldingadölum að mati jarðeðlisfræðings. Kvika hefur ekki komið upp úr gígnum í um fjórar vikur sem er lengsta hlé á virkninni síðan gosið hófst. Innlent 14.10.2021 19:01
Segja þörf á átaki í skriðumálum líkt og gert var í snjóflóðamálum Kanna þarf landform með tilliti til hreyfinga á lausum jarðefnum við ellefu þéttbýlisstaði á landinu. Þetta kemur fram í minnisblaði vísindamanna Veðurstofu Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands og Háskóla Íslands. Innlent 13.10.2021 07:13
Aflétta rýmingu og aflýsa hættustigi á Seyðisfirði Rýmingu sem var í gildi á nokkrum húsum á Seyðisfirði vegna hreyfinga í hlíðum ofan bæjarins hefur verið aflétt að fullu. Þá hefur hættustigi almannavarna verið aflýst. Innlent 12.10.2021 17:22
Óljóst hversu lengi húsin sem standa eftir verða rýmd Rýming húsa á Seyðisfirði sem hefur varað í rúma viku vegna skriðuhættu var aflétt að hluta til í gær en íbúar fjögurra húsa af níu fengu að snúa aftur á heimili sín. Íbúafundur fór fram á Seyðisfirði í gær þar sem íbúum var tilkynnt um málið en óljóst er hversu lengi húsin fimm sem eftir standa verða rýmd. Innlent 12.10.2021 11:57
Húsin sem næst standa varnargarðinum áfram rýmd Útreikningar á virkni leiðigarða og safnþróar undir óstöðugum hrygg milli stóru skriðunnar sem féll á Seyðisfjörð í desember á síðasta ári og Búðarár liggja fyrir. Líkur eru taldar á að varnargarðar og safnþró leiði skriðuna til sjávar en þar sem enn mælist hreyfing á hryggnum hefur rýmingu á nokkrum húsum á Seyðisfirði ekki verið aflétt. Innlent 11.10.2021 18:11
Óvissustigi aflétt í Útkinn Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra að fella niður óvissustig í Útkinn í Þingeyjarsveit. Innlent 11.10.2021 14:22
Rýmingum ekki aflétt fyrr en búið er að verja svæðið Ekki er útilokað að rýmingar á Seyðisfirði muni standa þar til búið er að tryggja byggðina með fullnægjandi hætti. Þá verði íbúum á svæðum sem ekki er hægt að tryggja ekki heimilað að snúa aftur heim. Innlent 9.10.2021 19:15
Stórauka þarf vöktun vegna skriðufalla Enn minnir náttúran á sig hér í Norðausturkjördæmi eftir miklar rigningar þar sem bæði aur og vatnsflóð hafa skilið eftir sig mikla eyðileggingu. Fólk þarf að rýma hús sín - sumir sem betur fer í stuttan tíma, en aðrir vita ekki hvenær þeir geta snúið heim. Skoðun 9.10.2021 09:31
Almannavarnir um skriðuhættu ofan Seyðisfjarðar: Líklegra að svæðið muni falla í smærri brotum Svæðið sem fylgst er með í hlíðinni ofan Seyðisfjarðar er talsvert sprungið og því talið líklegra að það muni falla í smærri brotum fremur en að það fari allt í einu. Innlent 8.10.2021 22:14
Hættustigi aflétt í Útkinn Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra hefur ákveðið að aflétta hættustigi sem verið hefur í gildi í Útkinn í Þingeyjarsveit vegna skriðuhættu. Innlent 8.10.2021 14:31
Mælingar truflast áfram vegna rigningar Jarðvegsfleki utan við Búðará á Seyðisfirði hefur færst um rúma fjóra sentímetra síðan á sunnudag. Truflun hefur hins vegar orðið á mælingum þar sem mælar virka aðeins í þurru veðri og góðu skyggni. Íbúar á rýmingarsvæðum fá ekki að fara inn í hús sín um helgina. Innlent 8.10.2021 12:01
Veðurstofan svarar spurningum Seyðfirðinga á íbúafundi Fulltrúar Veðurstofunnar munu halda fund með íbúum Seyðisfjarðar klukkan fjögur í dag þar sem þeir munu fara yfir stöðu mála vegna skriðuhættu úr skriðusárinu, og svara spurningum bæjarbúa. Innlent 8.10.2021 11:04
Enn hreyfing á flekanum við Búðará Enn mælist hreyfing á flekanum sem liggur hægra megin við Búðará Við Seyðisfjörð, sunnan megin í skriðusárinu frá desember 2020. Rýmingar eru enn í gildi fram yfir helgi. Innlent 7.10.2021 10:25
Aurskriðurnar í Útkinn: „Það er 3-0 fyrir náttúruna alls staðar“ „Það er 3-0 fyrir náttúruna alls staðar hérna,“ segir Bragi Kárason, bóndi á Nípá í Útkinn í Þingeyjarsveit, sem staddur var uppi í fjalli til að kanna aðstæður á rafstöð bæjarins þegar fréttastofa náði tali af honum. Innlent 6.10.2021 22:29
Gera ekki ráð fyrir frekari rýmingum Hættustig almannavarna er enn í gildi á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum. Lítil úrkoma hefur verið á svæðinu síðustu tvo sólarhringa þannig að dregið hefur úr hækkun á vatnshæð í borholum. Innlent 6.10.2021 12:20