Fjarskipti

Hagnaður Símans dróst saman um tæpan þriðjung milli ára
Rekstarhagnaður Símans var 2.079 milljónir króna árið 2023 samanborið við 2.945 milljónir króna árið 2022.

Síminn greiðir Sýn sautján milljónir í bætur
Síminn þarf að greiða Sýn á sautjándu milljón króna í bætur vegna brots á fjölmiðlalögum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Landsréttur á því að Síminn hafi ekki brotið lög með sölu enska boltans
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæðum sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport.

Gætu fengið yfir fimmtán milljarða fyrir þriðjungshlut í Ljósleiðaranum
Væntingar eru um að Ljósleiðarinn, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, geti verið verðlagður á nálægt fimmtíu milljarða króna í áformuðu hlutafjárútboði félagsins síðar á árinu þar sem til stendur að sækja aukið hlutafé með sölu á þriðjungshlut til nýrra fjárfesta. Mögulegur áhugi lífeyrissjóða veltur meðal annars á því að það takist að fá inn sérhæfða fjárfestingarsjóði að útboðinu.

Herdís Dröfn nýr forstjóri Sýnar
Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Sýnar að loknu ráðningarferli. Hún mun hefja störf þann 11. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Páll Ásgrímsson sem gegnt hefur starfinu undanfarna mánuði eftir brotthvarf Yngva Halldórssonar hverfur aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs félagsins.

Allar hugmyndir voru góðar hugmyndir
Þannig var árið okkar hjá Landsneti – ár krefjandi verkefna, stórra viðgerða, breytinga, nýsköpunar, umhverfis, veðurs, ísingar, jarðhræringa, samtals, uppbyggingaráforma og ár þar sem öllum góðum hugmyndum var fagnað.

Kröfur Sýnar gegn Jóni Einari ekki nægilega skýrar
Stefnu Sýnar á hendur Jóni Einari Eysteinssyni hefur verið vísað frá héraðsdómi. Sýn höfðaði mál á hendur honum fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva og streymisveitu félagsins.

Kemur ný í framkvæmdastjórn Nova
Renata Blöndal hefur verið ráðin í starf fararstjóra (Chief Strategy Officer) Nova og tekur hún jafnframt sæti í skemmtana- og framkvæmdastjórn hjá félaginu.

Reglur um farsímanotkun barna í nær öllum grunnskólum
Meirihluti skóla hefur sett reglur um farsímanotkun barna. Oftast er hún háð takmörkunum og jafnvel staðsetningu. Algengara er að eldri börn megi vera með síma en þau yngri. Stundum þurfa börnin símann til að komast í almenningssamgöngur og fá því að hafa hann í töskunni.

Netöryggi snýst ekki lengur bara um tækni - heldur um fólk
Við viljum öll geta verið sem mest á netinu og hafa aðgang að góðu og öflugu netsambandi. Lífið okkar hefur að svo miklu leyti færst yfir á stafrænar slóðir. Við eigum í samskiptum við fjölskyldu og vini í gegnum netið. Hver þekkir ekki að hafa skoðað ljósmyndir úr fermingu eða fimmtugsafmæli Fríðu frænku á Facebook.

Sýn skiptir miðlum upp í tvær rekstrareiningar
Ný rekstrareining sem ber heitið „Vefmiðlar og útvarp“ hefur verið mynduð hjá Sýn í kjölfar kaupanna á Já.is. Þar undir fellur rekstur Vísis, tengdra vefsíðna, rekstur Bylgjunnar og annarra útvarpsstöðva. Stöð 2 verður sjálfstæð rekstrareining við breytingarnar.

„Ekki vera með leiðindi, veittu mér bara betri þjónustu“
„Ungt fólk er með allt annað viðhorf en við þekktum áður og eldra fólk er að breytast með því. Við hugsum öðruvísi en fyrir tuttugu árum og það á þá líka við um það hvernig við metum vöru og þjónustu sem við kaupum sem neytendur,“ segir Ólafur Þór Gylfason sviðsstjóri markaðsrannsókna Maskínu.

Netvandræði á Akureyri vegna slits á streng
Slit á streng Mílu hefur komið upp við Hörgárbraut á Akureyri sem hefur áhrif á netsambönd til heimila og fyrirtækja á Glerársvæðinu.

Bjóða fólki að panta sérfræðing heim til sín
Vodafone hefur opnað á nýja þjónustu undir nafninu Snjallheimsókn en með henni býðst fólki að panta sérfræðing frá Vodafone heim til sín.

Kaup Sýnar á Já frágengin
Sýn hefur gengið frá kaupum á Eignarhaldsfélaginu Njálu, sem er móðurfélag Já hf. Áður hafði Samkeppniseftirlitið heimilað kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf. og Já hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn.

Segja upp allt að fjórtán þúsund manns
Finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia hyggst segja upp á milli níu þúsund til fjórtán þúsund starfsmanna fyrir lok árs 2026. Er um að ræða aðhaldsaðgerðir. Um er að ræða rúmlega sextán prósent af heildarfjölda starfsfólks.

Ljósleiðari Mílu slitinn við Hólmsá
Upp er komið slit á ljósleiðara Mílu á Suðurlandi, við Hólmsá milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs. Verið er að vinna að bilanagreiningu og er undirbúningur viðgerða hafinn.

Yngvi hættur hjá Sýn
Stjórn Sýnar og Yngvi Halldórsson, forstjóri, hafa í dag gert samkomulag um starfslok forstjóra. Viðræður um starfslokin áttu sér stað að frumkvæði forstjóra. Hann hefur látið af störfum.

Ljósleiðari slitnaði á Vesturlandi
Ljósleiðari Mílu á milli Akraness og Borgarness slitnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu.

Ný tegund netsvika beinist að heimabanka Íslendinga
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við nýju formi netsvika, svokölluðum smishing árásum. Þar er markmiðið að yfirtaka heimabanka með alvarlegum afleiðingum, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar. Fólk fái skilaboð sem líti út fyrir að vera frá þeirra viðskiptabanka.

Kaup Sýnar á Já fá grænt ljós
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf., móðurfélagi Já hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn. Í sáttinni felst að síðasta fyrirvara í samningi um kaup Sýnar er aflétt.

Kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar heimiluð
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar án skilyrða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ljósleiðaranum.

Víðtæk bilun á nettengingu hjá Reykjavíkurborg
Starfsemi hjá Reykjavíkurborg hefur verið í lamasessi víða framan af morgni þar sem starfsfólk kemst víða ekki á Internetið. Unnið er að viðgerð en starfsemi getur víða haldið óbreytt áfram.

„Hvaða ráðherra notar símaveski?“
Ráðherrar lögðu síma sína til hliðar áður en ríkisstjórnarfundur hófst á Egilsstöðum í dag. Mynd af símunum vakti nokkra athygli á samfélagsmiðlum í dag. Upp spratt umræða um hvaða ráðherrar ættu hvaða síma.

Ljósleiðarastrengur í sundur
Slit urðu á ljósleiðarastreng í Vatnsmýri í Reykjavík og getur það valdið netleysi eða truflunum hjá hluta borgarbúa. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Ljósleiðarans vegna málsins.

Hagnaður Sýnar á fyrri hluta árs eykst
Rekstrarhagnaður Sýnar hf nam 1.002 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst um 39 prósent á milli ára. Rekstrarhagnaður á öðrum ársfjórðungi var 574 milljónir króna samanborið við 322 milljónir á fyrra ári.

Rebekka og Snorri til Mílu
Míla hefur ráðið til sín tvo nýja stjórnendur. Rebekka Jóelsdóttir er nýr fjármálastjóri og Snorri Karlsson er framkvæmdastjóri innviðasviðs. Meðfram ráðningunum taka þau bæði sæti í framkvæmdastjórn Mílu.

Íslensk yfirvöld nýta ekki alþjóðlegar viðvörunarsamskiptareglur við hamfarir
Helsta kennileiti og aðdráttarafl Íslands er hrífandi landslag eyjunnar og þau náttúruundur sem hér má finna. Þessi einkenni eru einnig hennar helsta ógn, en hér þarf stöðugt að gera ráð fyrir snjóflóðum, jarðskjálftum og ógn af virkum eldfjöllum, auk annara óhjákvæmilegra náttúruafla sem hér ríkja.

Alvarlegir öryggisveikleikar í Tetra hafi lítil áhrif hérlendis
Ekki er talið að öryggisveikleikar sem fundust í Tetra talstöðvakerfinu hafi áhrif hér á landi en kerfið er notað af lögreglunni og flestum öðrum viðbragðsaðilum á Íslandi. Þetta segir framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar sem annast rekstur Tetra kerfisins.

Fjarskiptafélögin „hressilega ofseld“ upp á síðkastið
Fjarskiptafélögin Síminn og Sýn hafa ekki notið sanngirni á hlutabréfamarkaði að mati Jakobsson Capital en greiningarfyrirtækið telur að lækkanir á verði bréfanna hafi verið umfram tilefni. Þetta kemur fram í nýbirtu hlutabréfayfirliti fyrir júlí.