Skattar og tollar
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 29 ›
Gætu ráðstafað kolefnissköttum til tekjulágra til að draga úr ójöfnuði Íslensk stjórnvöld gætu stuðlað að réttlátum umskiptum í loftslagsmálum með því að ráðstafa skatttekjum af kolefnislosun til heimila og fyrirtækja í viðkvæmri stöðu, að mati Loftslagsráðs. Ólíkt öðrum Evrópuríkjum hefur Ísland enga stefnu um að láta tekjur renna til loftslagstengdra verkefna. Ráðið telur að auka þurfi gagnsæi og tengja loftslagsmál skýrar við áætlanagerð opinberra fjármála. Innlent 30.6.2022 08:00
Matarverðshækkanir og tollar Mikið hefur verið fjallað um hækkanir á matvælaverði að undanförnu og sýnist sitt hverjum um leiðir til að halda aftur af þeim. Sumir vilja fara leið samkeppnishamla, viðskiptahindrana og ríkisafskipta, aðrir vilja leitast við að efla samkeppni. Skoðun 24.6.2022 10:30
Skattamáli vísað frá héraði að ósk ákæruvaldsins eftir ákúrur Mannréttindadómstólsins Máli Ragnars Þórissonar, stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, var vísað frá héraðsdómi að ósk ákæruvaldsins í dag með öðrum dómi Hæstaréttar í málinu. Ragnar hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna málsins. Innlent 22.6.2022 15:09
Fyrrverandi stórstjarna Barcelona og Inter Milan fékk 22 mánaða dóm Samuel Eto'o, fyrrverandi sóknarmaður Barcelona, Inter Milan og mun fleiri liða, hefur verið dæmdur í 22 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Eto'o játaði að hafa svikið 3,2 milljónir evra undan skatti er hann spilaði fyrir Barcelona. Fótbolti 21.6.2022 07:30
Töf Samherjamálsins valdi réttarspjöllum ofan á orðsporsáhættu Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, telur að töf á rannsókn Samherjamálsins geti valdið réttarspjöllum ofan á þá „orðsporsáhættu sem augljós er“. Hún segir embætti héraðssaksóknara og skattrannsóknarstjóra vanfjármögnuð og sakar fjármálaráðherra um að kæra sig kollóttan um fjárhagsskort embættanna. Innlent 19.6.2022 15:01
Endurgreiðslur til kvikmyndaframleiðenda verða 35 prósent Alþingi samþykkti í kvöld frumvarp Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra sem kveður á um 35 prósent endurgreiðslu til kvikmyndaframleiðenda. Innlent 16.6.2022 00:49
Horft verði til þyngdar í aðgerðum sem eiga að skila ríkissjóði fimmtán milljörðum Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að meðal annars verði horft til þyngdar ökutækja þegar kemur að boðaðri endurskoðun á skattlagningu á umferð og ökutæki. Reiknað er með að flýting á innleiðingu nýrra gjalda vegna umferðar og eldsneytis skili ríkissjóði fimmtán milljörðum á árunum 2023 til 2027. Meirihluti nefndarinnar telur að ekki sé hægt að horfa mikið lengur framhjá því að núverandi fyrirkomulag komi niður á viðhaldi vega. Innlent 12.6.2022 08:47
Starfsmaður Búllunnar fékk skellinn í kjötmálinu Starfsmaður Búllunnar sem ákærður var fyrir tollalagabrot með því að veita rangar upplýsingar um innflutt kjöt þarf að greiða um fjörutíu milljónir í sekt vegna málsins. Sektin fellur þó niður haldi viðkomandi skilorð næstu tvö árin, meðal annars vegna þess að starfsmaðurinn var sú eina sem var látin svara til ábyrgðar fyrir málið, án þess þó að hafa haft af því nokkurn ávinning. Viðskipti innlent 11.6.2022 13:32
Afnemum tryggðarskatta Í viðskiptum tíðkast almennt að tryggð viðskiptavina skili sér í betri kjörum til lengri tíma. Einn þeirra geira sem sterkar vísbendingar eru um að sé undanskilinn þessu lögmáli eru tryggingar. Skoðun 10.6.2022 11:30
Lækkun afsláttar í fríhöfn liður í aðgerðum gegn þenslu Fjármála- og efnahagsráðherra lagði tillögur að breytingum á fjármálaáætlun fyrir fjárlaganefnd í dag, sem ætlað er að vinna gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu. Meðal tillagðra breytinga á tekjuhlið ríkissjóðs er lækkun á afslætti á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi í fríhöfninni. Innlent 9.6.2022 21:09
Ekki spretta grös við einsamlan þurrk Sú staða sem uppi er í heiminum í dag minnir okkur rækilega á hversu mikilvægt það er að tryggja fæðuöryggi í landinu. Innlend framleiðsla mun seint geta uppfyllt alla þá fjölbreytni sem eftirspurnin krefst. Skoðun 8.6.2022 14:30
Hlær að kenningum um að hann sé að refsa Lilju Fjármála- og efnahagsráðherra þvertekur fyrir að hann sé að refsa Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, fyrir gagnrýni sína á Íslandsbankamálið. Hann segir málið vera storm í vatnsglasi. Innlent 3.6.2022 13:20
Iðnmenntun og fasteignaskattar Á fimmtudag var tíunda þing Samiðnar sett, en Samiðn er eitt af aðildarsamtökum ASÍ og vettvangur fagfólks í ýmsum iðngreinum. Mér hlaust sá heiður að ávarpa setninguna og lagði út frá nauðsyn þess að skólakerfið okkar gæti sinnt þeim fjölmörgu sem hafa áhuga á iðn- og tæknimenntun á öllum aldri. Skoðun 3.6.2022 12:01
Ofgreiðsla skatta við slit félaga og réttur til endurgreiðslu Það er óhætt að fullyrða að með nýlegum úrskurðum hafi yfirskattanefnd tekið af skarið og kveðið á um það með afdráttarlausum hætti að sú framkvæmd sem ríkisskattstjóri hefur viðhaft við slit félaga um árabil fái ekki staðist. Umræðan 3.6.2022 10:00
Kalla eftir að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði Félag íslenskra bifreiðaeigenda kallar eftir því að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði, sem hefur aldrei verið hærra. Framkvæmdastjóri félagsins segir hækkanirnar sérstaklega koma niður á þeim sem hafi minna á milli handanna og þeim sem þurfi að ferðast langar vegalengdir. Neytendur 2.6.2022 19:12
Heppilegra að rjúfa það beina samhengi sem nú er á milli fasteignaverðs og skattlagningar Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir engin rök fyrir hækkun fasteignaskatta. Fjármálaráðherra telur núverandi fyrirkomulag innheimtu fasteignagjalda meingallað. Innlent 2.6.2022 18:31
Segir fyrirkomulag fasteignagjalda meingallað Fjármálaráðherra segir núverandi fyrirkomulag á innheimtu fasteignagjalda vera meingallað. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að stíga þurfi inn í þróunina og koma í veg fyrir hækkandi álögur. Innlent 2.6.2022 12:03
Fasteignaskattur hækkar úr öllu hófi Ráðast þarf í breytingar á þeirri lagaumgjörð sem gildir um fasteignaskatt. Fyrsti liðurinn væri að afnema þá heimild sem sveitarstjórnir hafa til 25 prósent hækkunar á skattstofni fyrir atvinnuhúsnæði og að innleiða varúðarreglur að norrænni fyrirmynd sem kæmu í veg fyrir stórfelldar hækkanir á fasteignaskatti. Umræðan 2.6.2022 09:00
Lilja segir gagnrýni úr ráðuneyti Bjarna fráleita Minnisblað úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu bendir á vankanta á frumvarpi Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, um hækkun á endurgreiðsluhlutfalli til kvikmyndagerðar. Þar segir að tími til yfirferðar á frumvarpinu hafi verið ónægur og samráð hafi skort við vinnu á því. Menningar- og viðskiptaráðherra telur umsögnina vanreifaða og segir þverpólitíska sátt um málið á þinginu. Innlent 2.6.2022 08:53
Fasteigna- og lóðagjöld íbúðarhúsnæðis eru lægst í Reykjavík Önnur sveitarfélög þyrftu að lækka fasteignaskatta- og lóðaleigu sína á íbúðarhúsnæði um tugi og jafnvel hundruð þúsunda á ári til að vera á pari við gjöldin í Reykjavík. Starfandi borgarstjóri segir hægt að koma til móts við tekjulægstu hópana með ýmsum öðrum hætti en lækkun fasteignaskatts. Innlent 1.6.2022 19:21
Minnir á að fasteignagjöld íbúðarhúsnæða eru lægst í Reykjavík Dagur B. Eggertsson, starfandi borgarstjóri, segir að fasteignagjöld íbúðarhúsnæða í Reykjavík séu þau lægstu á Íslandi. Álagning skatta verður ekki ákveðin fyrr en í haust við gerð fjárhagsáætlunar og því ekki ákveðin við myndun meirihluta í borginni. Innlent 1.6.2022 12:19
Ekki eðlilegt að nýr sólpallur hækki skatt á nágrannann Sveitarstjóri Ölfuss segir fasteignagjöld ósanngjarnan skatt í eðli sínu og telur að skoða þurfi tekjumódel sveitarfélaga. Lækka þurfi skatta á heimilin í landinu. Innlent 1.6.2022 11:43
Hyggjast mörg hver lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla mörg hver að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta til að bregðast við hækkun fasteignamatsins sem kynnt var í gær en gjöldin hafa aldrei áður hækkað jafn mikið í einu skrefi frá bankahruninu 2008. Innlent 1.6.2022 07:15
130 milljarða halli á ríkissjóði Afkoma ríkissjóðs var neikvæð um 130 milljarða króna í fyrra samanborið við 144 milljarða króna halla árið 2020. Ber hún þess merki að hagkerfið hafi enn verið að ná sér á strik eftir heimsfaraldur Covid-19 en afkoman var betri en áætlað var. Innlent 31.5.2022 16:18
Fasteignamat tekur mikið stökk á milli ára Þjóðskrá hefur gefið út fasteignamat fyrir árið 2023. Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9 prósent á milli ára, sem er umtalsvert meiri hækkun á milli ára en undanfarin ár. Innlent 31.5.2022 13:33
Stóð við sitt og hefur greitt um hálfan milljarð í skatta Haraldur Þorleifsson sem seldi fyrirtæki sitt Ueno til Twitter í fyrra samdi við félagið um að stærstur hluti kaupverðsins yrði greiddur með launagreiðslum svo hann gæti greitt skatta af sölunni á Íslandi. Viðskipti innlent 25.5.2022 14:00
Kvikmyndarisar bíði eftir aukinni endurgreiðslu Leifur B. Dagfinnsson, stofnandi og formaður stjórnar kvikmyndaframleiðandans True North segir að stór kvikmyndaver séu að bíða eftir því að endurgreiðsla stærri kvikmyndaverkefna verði 35 prósent hér á landi. Mikil tækifæri felist í slíkri endurgreiðslu fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki en stjórnvöld hafa þegar lagt fram frumvarp þess efnis. Viðskipti innlent 24.5.2022 15:27
Gert að greiða rúmlega 36 milljóna króna sekt vegna skattsvika Kona, sem sat í stjórn einkahlutafélagsins Hæ ehf., hefur verið gert að greiða rúmlega 36 milljóna króna sekt til ríkissjóðs fyrir skattalagabrot á árunum 2016 og 2017. Innlent 20.5.2022 17:39
Svínað á neytendum Innflutningur tollfrjálsra búvara frá ríkjum Evrópusambandsins eflir samkeppni á íslenzkum búvörumarkaði og stuðlar að lægra verði til neytenda. Eða það var að minnsta kosti meiningin, þegar þáverandi ráðherrar utanríkis- og landbúnaðarmála gerðu samning við Evrópusambandið árið 2015 um að stækka gagnkvæmar innflutningsheimildir án tolla, svokallaða tollkvóta. Skoðun 16.5.2022 11:31
Samþykktu að hækka endurgreiðslurnar upp í 35 prósent Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp þess efnis að hækka endurgreiðslu af framleiðslukostnaði til kvikmyndaframleiðenda upp í 35 prósent fyrir stærri verkefni. Viðskipti innlent 13.5.2022 13:38