Flóttafólk á Íslandi
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 24 ›
Virkja leyniherbergi Alþingis vegna frumvarps um ríkisborgararétt Ákveðið var í dag að virkja leyniherbergi Alþingis vegna frumvarps um ríkisborgararétt. Þingmönnum verður í samræmi við það heimilt að skoða trúnaðargögn sem tengjast frumvarpinu í sérstöku herbergi, undir eftirliti, fram að afgreiðslu málsins. Ekki má skrifa niður eða taka myndir af gögnunum. Innlent 19.6.2024 20:18
Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Í gær birti Hanna Símonardóttir mynd á X, áður Twitter, þar sem sjá má nokkra Palestínufána blakta ásamt fána með merki Mosfellsbæjar og íslenska fánanum. Yfirskrift Hönnu var „dagurinn sem Mosfellsbær varð öðrum til fyrirmyndar“, en færslan hefur vakið misgóð viðbrögð. Innlent 17.6.2024 13:43
Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Dagurinn í dag fer í sögubækurnar sem mikill sorgardagur. Alþingi hefur enn einu sinni samþykkt breytingar á útlendingalögum sem fela í sér frekari skerðingar á grundvallarréttindum fólks á flótta, sem þrengja að möguleikum fólks sem neyðst hefur til þess að flýja stríð, átök, ofsóknir eða aðrar hörmungar til þess að fá alþjóðlega vernd á Íslandi, og auka misrétti í garð flóttafólks og hreinlega valda þeim skaða. Skoðun 14.6.2024 18:30
Flóttamannastraumurinn renni þangað sem stærstu glufurnar finnast Dómsmálaráðherra fagnar því að boðaðar séu veigamiklar breytingar á útlendingalöggjöf í áraraðir. Í eldhúsræðu sinni sagði hún málefni útlendinga eru viðkvæman málaflokk en hún hræðist ekki vegferðina sem er fram undan í útlendingamálum. Innlent 12.6.2024 22:43
Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Innlent 10.6.2024 22:27
Útlendingafrumvarpið afgreitt út úr þingnefnd Á fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis var útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra afgreitt út úr nefndinni. Innlent 4.6.2024 12:05
Enginn ágreiningur uppi og útlendingafrumvarpið afgreitt í vikunni Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir engan ágreining uppi á milli stjórnarflokkanna um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Innlent 4.6.2024 06:26
Hagsmunir barna ekki „tromp spil“ og niðurstaða umboðsmanns ótæk Dómsmálaráðuneytið segir umboðsmann barna komast að „ótækri“ niðurstöðu í umsögnum sínum um útlendingafrumvarpið svokallaða. Hagsmunir barna séu ekki „tromp spil“ í útlendingamálum. Innlent 3.6.2024 11:31
Vilja samstarf við Norðurlöndin vegna fólks sem vill ekki fara Fjórir þingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi feli dómsmálaráðherra að leita samstarfs við kollega sína á Norðurlöndum um móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafa fengið umsókn sinni synjað. Innlent 3.6.2024 10:18
Um 200 bíða þess að vera flutt af landi í þvinguðum brottflutningi Á lista stoðdeildar ríkislögreglustjóra eru 227 verkbeiðnir um þvingaðan brottflutning einstaklinga. Þar af er verið að afla ferðaskilríkja fyrir 58 einstaklinga. Síðustu tólf mánuði hafa alls 188 einstaklingar verið fluttir á brott í þvinguðum flutningi til margra ólíkra landa. Innlent 29.5.2024 06:46
Yazan bíður enn svara Algjör óvissa er enn í máli tólf ára palestínsks drengs, með hrörnunarsjúkdóm, sem senda á úr landi. Tæpar þrjár vikur eru síðan stoðdeild ríkislögreglustjóra heimsótti drenginn og foreldra hans til að undirbúa brottflutning en óskað hefur verið eftir endurupptöku málsins. Innlent 26.5.2024 15:01
Safna til að koma konunum í varanlegt skjól í Nígeríu Hópur fólks stendur nú fyrir söfnun til að aðstoða þrjár nígerískar konur sem var vísað úr landi fyrr í þessum mánuði. Konurnar fengu allar endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd fyrir um ári síðan og voru fluttar á brott í þvinguðum brottflutningi. Innlent 24.5.2024 09:32
Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal. Innlent 17.5.2024 11:59
Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? „Börn sem þurfa að flýja heimaland sitt sem flóttamenn eiga rétt á vernd og stuðningi við að nýta sér þau réttindi sem þau eiga samkvæmt Barnasáttmálanum í nýja landinu.“ Svona hljóðar 22. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um börn sem flóttamenn. Skoðun 16.5.2024 17:01
Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Kærunefnd útlendingamála hafði í upphafi maí á þessu ári 920 óafgreidd mál á sínu borði. Vegna þessa mikla fjölda hefur meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar lagt til tímabundna breytingu á fyrirhuguðum breytingum á útlendingalögunum. Innlent 16.5.2024 13:39
Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, hefur óskað eftir því að fulltrúar Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála og ríkislögreglustjóra komi á fund allsherjar- og menntamálanefndar til að ræða um brottvísun þriggja nígerískra kvenna í fyrradag. Konurnar hafa allar lýst því að vera þolendur mansals. Innlent 15.5.2024 15:00
Aleinn í heiminum? Fadi Bahar er 17 ára drengur sem hefur neyðst til þess að lifa á stanslausum flótta undanfarin 5 ár vegna mannlegrar plágu, sem herjar á land hans og þjóð. Skoðun 15.5.2024 09:01
Sérstök vitleysa Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp dómsmálaráðherra þar sem gera á enn eina aðförina að réttindum útlendinga sem hingað koma í neyð. Af mörgu slæmu í frumvarpi ráðherra er sýnu verst sú fyrirætlun að fella úr lögum skyldu stjórnvalda til að skoða umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi hafi viðkomandi umsækjendur sérstök tengsl við landið eða þegar sérstakar ástæður mæla annars með því. Þessi ákvæði hafa gefið íslenskum stjórnvöldum nauðsynleg tækifæri sem og tilefni til þess að líta til persónubundinna aðstæðna hvers umsækjanda, mannúðarsjónarmiða sem og fjölskyldutengsla. Skoðun 15.5.2024 07:31
Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Seint í gær var fjórum nígerískum ríkisborgurum vísað úr landi. Einn þeirra var hinn tvítugi Precious Felix Tanimola. Hann hefur verið á Íslandi í um tvö ár, var með atvinnuleyfi og er giftur íslenskri konu. Eiginkona hans segir brottvísun hans mikið áfall. Innlent 14.5.2024 20:58
Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Talskona Stígamóta segir íslenska ríkið brjóta alþjóðasáttmála með því að vísa þolendum mansals úr landi og tryggja ekki öryggi þeirra á viðkomustað. Fjórum nígerískum ríkisborgurum, þar af þremur konum, var flogið til Frankfurt seint í gær. Fulltrúar Stígamóta vinna að því að tryggja öryggi þeirra. Innlent 14.5.2024 12:02
Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Fjórum nígerískum ríkisborgurum, þar af þremur konum, var flogið af landi brott seint í gær. Auk þeirra var einn karlmaður með í för. Öll höfðu þau fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd á Íslandi. Innlent 14.5.2024 09:26
„Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Hópur fólks mótmælir nú við Keflavíkurflugvöll vegna yfirvofandi brottvísunar þriggja nígerískra kvenna. Útlendingastofnun hafnaði seinni partinn í dag beiðni lögmanns um frestun brottvísunar einnar þeirra, Blessing Uzoma Newton, af heilsufarsástæðum. Innlent 13.5.2024 23:04
Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður segir það mikil vonbrigði að Útlendingastofnun ætli ekki að verða við beiðni hans um að fresta brottvísun Blessing Uzoma Newton af heilsufarsástæðum. Hann á von á því að Blessing og konurnar hinar tvær sem eru í haldi verði fluttar úr landi í kvöld. Innlent 13.5.2024 17:38
Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt „Við höfum fengið svör en engin viðbrögð,“ segir Helgi Þorsteinsson Silva, lögmaður Blessing Uzoma Newton sem flytja á úr landi í dag. Samkvæmt læknisvottorði er hún ekki ferðafær vegna mjög slæmrar heilsu. Helgi hefur óskað eftir því að brottvísuninni verði frestað vegna þess og fengið svör um að beiðni hans hafi verið móttekin. Innlent 13.5.2024 11:55
Fyrir ykkur, Blessing, Mary og Esther Það er mæðradagurinn í dag þegar við skrifum þessa grein. Dagur sem okkur öllum þykir vænt um. Á einhvern hátt þráum við öll að tengjast, elska og sýna öðrum umhyggju. Skoðun 13.5.2024 07:31
„Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Lögmaður konu, sem vísa á úr landi á morgun og er alls ekki ferðafær samkvæmt læknisvottorði, segir það algjörlega forkastanlegt ef stjórnvöld svari ekki beiðni þess efnis að brottvísun verði frestað á grundvelli vottorðins. Innlent 12.5.2024 22:03
Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings Kona sem vísa á úr landi á morgun er við mjög slæma heilsu og alls ekki ferðafær samkvæmt læknisvottorði. Konan er ein þriggja kvenna sem vísa á úr landi á morgun. Innlent 12.5.2024 14:08
„Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Lögmaður kvenna sem vísa á úr landi eftir helgi segir skjóta skökku við að íslensk stjórnvöld ætlist til þess að fórnarlömb mansals stigi fram og segi sögu sína, þegar viðbrögð ríkisins séu þau að handtaka fórnarlömbin og senda þau úr landi. Konurnar segjast allar hafa verið fórnarlömb mansals áður en þær komu hingað til lands. Innlent 11.5.2024 12:24
Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Hópur mótmælenda reyndi að hindra för lögreglubíls eftir að einn þeirra var handtekinn nærri Héraðsdómi Reykjaness í Hafnarfirði í kvöld. Fólkið mótmælti fyrirhugaðri brottvísun þriggja nígerískra kvenna úr landi. Innlent 11.5.2024 00:01
Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Fjöldi leyfa til fjölskyldusameiningar hefur meira en tvöfaldast síðasta rúma áratuginn. Langflest leyfin voru vegna aðstandenda Íslendinga. Rétt rúmlega fimm prósent leyfanna frá 2013 voru vegna flóttamanna og mannúðarleyfishafa. Innlent 10.5.2024 19:04