
Rangárþing ytra

63 greind smit tengd hópsýkingunni á Hótel Rangá í sumar
Hópsýking kom upp á Hótel Rangá í ágúst í sumar. Tugir einstaklinga smituðust og þurfti ríkisstjórnin meðal annars að fara í skimun vegna sýkingarinnar.

Sigríður Elva og Þórunn Antonía í stuði á Hótel Rangá
Tónlistarkonan Þórunn Antonía og fjölmiðlakonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir virtust skemmta sér vel á Hótel Rangá í gær.

Sjáðu norðurljósadýrðina í Fljótshlíðinni
Mikil norðurljósadýrð er í Fljótshlíðinni í kvöld en heiðskírt er yfir hlíðinni og sést því vel í ljósadýrðina.

„Sveitarfélagið Suðurland“ – nýtt sveitarfélag á Suðurlandi?
Á Suðurlandi er nú verið að kanna kosti og galla sameiningar fimm sveitarfélaga í Rangárvallasýslu og Vestur Skaftafellssýslu. Hópurinn, sem er skipaður fulltrúum allra sveitarfélaganna kallar sig "Sveitarfélagið Suðurland" en það gæti hugsanlega verið eitt af nöfnunum, sem kosið yrði um ef samþykkt verður að sameina sveitarfélögin.

Öldungurinn segir þetta bara sýnishorn af réttum
Líf og fjör var í Landréttum norðan Heklu í dag eftir erfiðar leitir á hálendinu. Barnafjölskyldur fjölmenntu en aðgangstakmarkanir vegna covid giltu aðeins um fullorðna. Myndir úr réttunum mátti sjá í fréttum Stöðvar 2.

Hápunktur ársins að smala með íslenskum bændum
Ráðskonurnar í fjárleitunum á Landmannaafrétti eru ákveðnar í því að reglum um sóttvarnir og aðskilnað smalamanna sé fylgt. Erlendir ferðamenn gengust undir sóttkví og tvöfalda skimun til að fá að taka þátt í leitunum, sem þeir segja hápunkt ársins.

Smalakonur í hríðarbyl segja skítkalt en ógeðslega gaman
Tugir karla og kvenna eru þessa dagana lengst inni á hálendi við fjárleitir í hríðarbyljum á Landmannaafrétti. Jöfn kynjahlutföll eru í hópi smalamanna þetta haustið en þetta er fertugasta árið sem Kristinn Guðnason í Skarði er fjallkóngur.

Auðvelt að leggja niður íslenskan landbúnað
Bóndi í Rangárvallasýslu segir auðvelt að leggja niður íslenskan landbúnað sé vilji til þess en með því væri verið að leysa upp öll þau störf, sem tengjast landbúnaði.

Kartöflukofarnir þróast upp í afkastamikil verksmiðjubú
Kartöflubændum í Þykkvabæ hefur á síðustu áratugum fækkað úr fjörutíu niður í tíu. Samhliða hefur kartöfluræktin þróast úr einföldum einyrkjabúskap í verksmiðjubú með tugmilljóna króna fjárfestingum í tækjum og húsnæði.

Frábær sprettutíð í sumarlok bjargar kartöfluuppskerunni
Kartöflubændur í Þykkvabæ þakka hlýindum og vætu í sumarlok það að nú stefni í bærilega uppskeru eftir kuldatíð langt fram eftir sumri. Þetta kom fram í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 af kartöfluakrinum í Rangárvallasýslu í kvöld.

Ekki orðið var við illt umtal um Hótel Rangá
Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár á Suðurlandi, óttast ekki að fjölmiðlaumfjöllun um hótelið í tengslum við smit sem uppgötvaðist hjá gestum hótelsins og sendi meðal annars ráðherra í ríkisstjórinni í sóttkví hafi slæm áhrif á reksturinn til framtíðar.

Starfsmenn þriggja skóla og Hins hússins smituðust líklega á Hótel Rangá
Starfsmaður Hins hússins sem greindist með kórónuveiruna síðastliðinn fimmtudag smitaðist á Hótel Rangá í liðinni viku. Starfsmaður Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskóla smitaðist einnig á Hótel Rangá. Starfsemi skólanna og Hins hússins hefur raskast töluvert vegna smitanna.

Fjöldi smita sýnir hversu skæð veiran er
Átta smit hafa komið upp á Hótel Rangá.

Sjö smituð á Hótel Rangá
Sex gestir og einn starfsmaður á Hótel Rangá reyndust smitaðir af kórónuveirunni og hefur hótelinu verið lokað.

Bíll með fimm ferðamönnum valt á Landmannaleið
Fólkið var ekki alvarlega slasað.

Hófu eftirgrennslan eftir að neyðarkall barst
Skálaverðir hjá Ferðafélagi Íslands og björgunarsveitarmenn hófu eftirgrennslan að Fjallabaki eftir að neyðarkall barst á rás á VHF-kerfinu í gærkvöldi.

Myndband sýnir mikla vatnavexti í Kaldaklofskvísl
Miklar vatnavextir eru nú í ám á hálendinu vegna rigninga. Myndband frá Landsbjörg sýnir glöggt ástandið í Kaldaklofskvísl við Hvanngil þar sem bjarga þurfti ökumanni jeppa sem festa sig í ánni í morgun.

Beið á þaki bílsins í tvær klukkustundir
Ökumaður sem var á leið yfir Kaldaklofskvísl við Hvanngil í morgun festi bíl sinn í ánni og þurfti að koma sér upp á þak bifreiðarinnar til að forða sér frá vatni sem flæddi inn.

Kafbátarleitarvél mun sveima yfir Hellu á morgun
Dönsk björgunarþyrla frá danska hernum og kafbátaleitarvél verða á sveimi yfir Hellu á morgun sem hluti af dagskrá flughátíðarinnar „Allt sem flýgur“ um helgina.

Loftbelgur sveif yfir Suðurlandi, snerti næstum Rangá og flaug ofar skýjum
Stærðarinnar loftbelgur sást á flugi yfir Rangárvöllum í morgun og flaug hann svo lágt yfir Ytri-Rangá að hann var við það að snerta vatnsflötinn. Belgurinn er kominn hingað frá Þýskalandi í tengslum við flughátíð á Hellu.

Mokveiði og frítt í Frostastaðavatn
Frostastaðavatn inná Landmannaafrétt hefur verið ofsetið af bleikju síðustu ár og nú er haldið áfram með það átak sem hófst í fyrra að grisja vatnið með því að rukka ekki fyrir veiðileyfi.

Kjósandi ósáttur við mynd af Guðna á kjörstað
Mynd af Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands féll ekki í kramið hjá kjósanda nokkrum á Hellu í dag.

„Hver á alla þessa Salem pakka af sígarettum?“
Kvenfélagskonur í Kvenfélaginu Einingu í Holtum í Rangárþingi ytra hafa gengið um 75 kílómetra og tínt rusl.

Segir haförninn geta orðið illa úti í vindmyllugörðum
Fuglaverndarfélag Íslands varar við því að vindmyllugarðar verði leyfðir á farleiðum fugla og á búsvæðum hafarna og hvetur til varfærni og vandaðs umhverfismats.

Berbakt áskorun gengur á milli hestamanna
Skemmtileg áskorun gengur nú á milli hestamanna á samfélagsmiðlum þar sem þeir keppast við að beisla hest og leggja hnakkinn á hann sitjandi berbakt á hestinum með tilheyrandi kúnstum.

Tvær nýjar brýr yfir Þjórsá í bígerð á þessu og næsta ári
Tvær nýjar brýr yfir Þjórsá, sem nú eru í bígerð í tengslum við virkjanaframkvæmdir, gætu haft mikla þýðingu fyrir samgöngur og ferðaþjónustu í uppsveitum Suðurlands. Brú á móts við Árnes styttir vegalengdir um tugi kílómetra.

Víðfeðmasta sveitarfélag landsins í burðarliðnum
Fimm sveitarfélög með þéttbýliskjarnana Hellu, Hvolfsvöll, Vík í Mýrdal, Kirkjubæjarklaustur og Laugaland skoða sameiningu. Ef að henni verður yrði til víðfemasta sveitarfélag landsins sem næði yfir 16 prósent landsvæðis Íslands.

Strokupiltarnir þeir sömu og voru stöðvaðir með naglamottu í febrúar
Drengirnir þrír sem handteknir voru í aðgerðum lögreglunnar á Suðurlandi, sérsveitar Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar síðastliðinn fimmtudag eru þeir sömu og lögregla þurfi að beita naglamottu á til að stöðva för þeirra fyrr á árinu.

Landsmóti hestamanna 2020 frestað
Sú ákvörðun hefur verið tekin af Landssambandi hestamannafélaga, Félagi hrossabænda og Rangárbökkum, þjóðaleikvangi íslenska hestsins ehf. að fresta Landsmóti hestamanna sem fara átti fram á Hellu dagana 6. – 11. júlí.

Rannsaka hvort strokupiltarnir hafi ógnað starfsmönnum vistheimilisins
Þrír piltar struku á stolnum bíl af vistheimili fyrir ungmenni á Suðurlandi seint í gærkvöldi. Lögregla hélt úti miklum viðbúnaði vegna málsins en piltarnir voru loks handteknir við útihús í Þykkvabæ.